Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.12.2008, Blaðsíða 33

Víkurfréttir - 04.12.2008, Blaðsíða 33
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 4. DESEMBER 2008 35TAKIÐ ÞÁTT Í JÓLALUKKU VÍKURFRÉTTA OG VERSLANA2008 Kornflexsmákökur 4 eggjahvítur 2 bollar púðursykur > stífþeytt. 4 bollar kornflex 2 bollar af kókosmjöli blandað saman við 100 gr af smáttsöxuðu suðusúkkulaði 1 tsk af vanilludropum Sett með teskeið á bökunarpappirsklædda plötu í smá toppa. Bakað við 150 gráðu hita í ca 15 mín. Marsipankökur 500 gr marsipan 300 gr flórsykur 1-2 eggjahvítur 2msk hveiti. Hveitinu er sáldrað á borðið, marsipanið rifið þar ofan á og vætt í með eggjahvítunum. Hnoðað vel í nokkuð fast deig. Flatt frekar þykkt út og stungnar út kökur með piparkökumótum. Bakaðar ljósbrúnar við vægan hita. Bræddu súkkulaði smurt ofan á. Lion bar kökur 100 gr Lion bar 100 gr saxað suðusúkkulaði 150 gr púðursykur 80 gr smjörlíki 1 egg 160 gr hveiti 1/4 tsk natron 1⁄2 tsk salt 1 tsk vanilludropar Allt hrært vel saman, lion bar sett saman við síðast smátt saxað. Sett á bökunarpappír með teskeið uþb 1⁄2-1tsk í hverja köku. Hafið bil á milli því þær renna dálítið út. Bakaðar í ca 8 mín við 180 gráður. EF þær eru of lengi í ofninum verða þær grjótharðar. Kókossúkkulaðikökur frú Jónu 2 egg 2 dl sykur > Þeytt vel saman 3 dl kókosmjöl 2 dl hveiti 1 tsk lyftiduft 50 gr brytjað súkkulaði Blandað saman við eggjahræruna og sett með teskeið á plötu og bakað við 160°c. Þessu uppskrift er á u.þ.b. 2 plötur. Súkkulaðidropakökur 3 egg 2 bollar sykur 2 bollar púðursykur 300 g smjörlíki 6 1/2 bolli hveiti 2 bollar kókosmjöl 2 tsk natron 1 tsk salt (má sleppa) Súkkulaðidropar til skreytingar eftir bakstur. Deigið er hnoðað og búnar til litlar kúlur. Bakað við 200°c. Þegar platan er tekin út úr ofninum ber að hafa hraðar hendur við að raða einum súkkulaðidropa ofan á hverja köku svo JÓLASMÁKÖKUR að þeir festist við kökurnar. Bráðnar smá fyrst svo ekki er hægt að raða þeim fyrr en súkkulaðið storknar aftur. Lakkrístoppar 3 eggjahvítur 200 gr. púðursykur 150 gr. rjómasúkkulaði 2 pokar súkkalaðihúðað lakkrískurl Stífþeyta eggjahvítur og bæta sykri úti og þeyta áfram þar til sykur er alveg horfin. Bæta þá söxuðu súkkulaði + lakkrískurli útí (hræra með sleif). Set með teskeið á plötu með bökunarpappír og bakað við 175 gráður í c.a 12-14 mín. Negulkökur 250 gr. hveiti 250 gr. púðursykur 125 gr. íslenskt smjör (lint) 1 stk egg 1,5 tesk. lyftiduft 0,5 tesk. matarsódi 1 tesk. engifer 0,5 tesk. kanill 0,5 tesk. negull Öllu skellt saman í skál og hnoðað rólega saman. Kælt í smá stund. Gerðar litlar kúlur og settar á bökunarplötu og síðan þrýst á með fingri eða gaffli. Bakað við 180 gráður í 8-10 mín. Amerískar súkkulaðibitakökur I 2,5 bollar hveiti 1 tesk. matarsódi 1. tesk salt 1 bolli smjör/smjölíki 3/4 bollar sykur 3/4 bollar púðursykur 1 tesk vanilludropar 2 egg 2 bollar súkkulaðibitar, best að nota eitthvað ekta súkkulaði... 1 bolli heslihnetur eða aðrar hnetur (má sleppa) Smjör/smjöríki, púðursykri, sykri og vanilludropum hrært saman, síðan er eggjunum bætt útí einu í einu. Þurrefnunum bætt rólega saman við. Að lokum er súkkulaið og hnetum (ef vill) bætt útí. Sett með teskeið á plötu og bakað við 180 í um 10 mín. Amerískar súkkulaðibitakökur II 1,25 bolli hveiti 1 tesk. matarsódi 1/2 tesk. salt 1/2 tesk. kanill 1 bolli smjör 3/4 bolli sykur 3/4 bolli púðursykur 2 egg 1 tesk. vanilludropar 3 bollar haframjöl 340 g. brytjað súkkulaði, best að nota gott ekta súkkulaði Smjör, sykur, púðursykur, egg og vanilludropar er þeytt saman og þurrefnunum (nema haframjöli) bætt smám saman úti. Að lokum er haframjöli og súkkulaði blandað útí degið. Sett með teskeið á bökunarplötu (með pappír) þarf að hafa gott bil á milli því þær renna út. Bakað við 200 gráður í 8 mín ef þær eiga að vera mjúkar en í 10 mín ef þær eiga að vera stökkar Loftkökur 750 gr flórsykur 7 tsk kakó 2 egg 2 tsk hjartasalt Bakað í 5-6 mín v/200°c Hálfmánar 250 gr hveiti 100 gr smjör 100 gr sykur 1 egg 1/4 tsk kanill 1/4 tsk kardimommudropar tæpl. 3/4 tsk lyftiduft 1 msk mjólk 1/4 hjartasalt Deigið flatt út, skorið út með glasi, sett smá sulta inn í hverja köku og lokað með gaffli. Bakað v/180°c í 8-10 mín Súkkubitakökur 150 g Suðusúkkulaði 25 g smjör 200 g sykur 1 egg 1/2 tsk vanilludropar 150 g hveiti 1/2 tsk lyftiduft 50 g valhnetur eða peakan hnetur Bræðið 100 g súkkulaði og 25 g smjör yfir vatnsbaði.Látið sykur ,egg og vanillu í skál og blandið bræddu súkkulaðinu saman við.Hrærið hveiti og lyftidufti saman við.Blandið brytjuðu súkkulaði 50 g saman við ásamt hnetum.Mótaðar kúlur og bakað ofarlega í 200 gráða heitum ofni í 10 -15 mín.Njótið vel! Súkkulaði - og hnetusmákökur 2 1/4 bollar hveiti 1 tsk lyftiduft 1 tsk salt 1 bolli mjúkt smjörlíki 3/4 bolli hvítur sykur 3/4 bolli púðursykur 1 tsk vanillu dropar 2 egg 1 bolli saxaðar hnetur 2 bollar súkkulaðibitar (hvernig sem er...) Forhitið ofninn í 175 gráður, blandið saman hveiti, lyftidufti og salti í litla skál. Blandið svo í aðra stóra skál smjörlíkinu, sykrinum, púðursykrinum, og vanilludropunum. Því næst koma eggin, eitt í einu, og hrærið vel saman. Þá er að bæta úr hveitiblöndunni úr litlu skálinni yfir í stóru skálina, og síðast koma súkkulaðibitarnir og hneturnar. Gerið kökurnar hringlaga með hjálp teskeiðar og raðið á bökunarplötuna. Bakið þar til kökurnar verða fallega brúnar og bíðið svo í ca 10 mín eftir að þær verða kaldar....þá er bara að smakka á þeim :) m&m's smákökur 450 g hveiti 250 g sykur 200 g m&m's að eigin vali 200 g smjörlíki 1 dl nýmjólk 1 msk lyftiduft 3 stk egg Aðferð Saxið m&m's gróft. Hrærið saman sykur og smjör þar til það er létt og ljóst. Setjið eggin saman við eitt í einu, hrærið vel á milli. Bætið mjólkinni út í, síðan lyftidufti og hveiti. Blandið m&m's varlega saman við. Mótið kúlur eða setjið deigið með teskeið á bökunarplötu, klædda bökunarpappír. Skreytið með m&m's. Bakstur Bakið kökurnar í 10-15 mín. (eftir stærð) við 180°C.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.