Víkurfréttir - 11.12.2008, Síða 6
6 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn
og auglýsingar:
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamenn:
Ellert Grétarsson,
sími 421 0004, elg@vf.is
Valur Jónatansson,
sími 421 0003, valur@kylfingur.is
Auglýsingadeild:
Gunnar Einarsson,
sími 421 0001, gunnar@vf.is
Útlit, umbrot og prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Magnús Geir Gíslason,
sími 421 0005, magnus@vf.is
Þorsteinn Kristinsson,
sími 421 0006, steini@vf.is
Þórgunnur Sigurjónsdóttir,
sími 421 0011, thorgunnur@vf.is
Skrifstofa Víkurfrétta:
Rut Ragnarsdóttir,
sími 421 0009, rut@vf.is
Aldís Jónsdóttir,
sími 421 0010, aldis@vf.is
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og kylfingur.is
Afgreiðsla Víkurfrétta
er opin alla virka daga frá
kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga
er opið til kl. 15.
Með því að hringja í síma
421 0000 er hægt að velja
beint samband við auglýsingadeild,
fréttadeild og hönnunardeild.
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN ER
Í SÍMA 898 2222
VÍKURFRÉTTIR EHF.
VÍ
KU
RS
PA
UG
M
yn
d:
G
uð
m
un
du
r R
ún
ar
Minnum á Jólalukkuna
Dagblað VF
er á Netinu!
www.vf.is
Stjórnir Sparisjóðsins í Keflavík, Byrs
sparisjóðs og SPRON hafa undirritað
viljayfirlýsingu þess efnis að hefja und-
irbúning og vinnu sem miðar að því að
sameina sparisjóðina. Sparisjóðirnir
hafa skuldbundið sig til að ræða ekki við
aðra aðila um samstarf eða sameiningu á
meðan að viðræður standa yfir. Stefnt er
að því að niðurstaða liggi fyrir eins fljótt
og hægt er.
Í viljayfirlýsingunni kemur fram að unnið
verður eftir aðgerðaráætlun og er stefnt
að því að stofnfjáreigendur og hluthafar
verði boðaðir til fundar í febrúarmánuði
til þess að fjalla um tillögu að samruna
sem mun miðast við 1. janúar 2009.
„Sparisjóðurinn er jákvæður fyrir samein-
ingarviðræðunum. Þessir þrír sparisjóðir
eiga hvað mesta samleið og gangi samein-
ingin eftir verður til sterk eining í spari-
sjóðafjölskyldunni öllum sparisjóðum til
hagsbóta. Á þessum erfiðu tímum sem
framundan eru, þá mun sameinaður
sterkur sparisjóður mynda tryggan rekstr-
argrundvöll og skapa traust viðskiptavina
og annarra hagsmunaaðila. Sameinaður
sparisjóður mun áfram þjónusta sitt starfs-
svæði á öflugan hátt og í góðum tengslum
við samfélagið. Sameining sjóðanna mun
leggja grunninn að framtíð sparisjóða á Ís-
landi,“ segir Geirmundur Kristinsson spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík.
Sparisjóðir undirrita viljayfirlýsingu um sameiningu
Tek ist var á í bæj ar ráði
Reykjanesbæjar fyrir helgi
um tilboð bæjarins í kaup
á landi HS utan Járngerðar-
staða og Hópstorfu ásamt
samningi um hagnýtingu
náttúruauðlinda.
Fulltrúar A-listans lögðu fram
tillögu þess efnis að bæjar-
stjóra yrði falið að leita eftir
vilja ríkisvaldsins til að eignast
þau landsvæði sem væru í eigu
HS orku og þar með stuðla að
því að náttúruauðlindir sem
kynnu að finnast á viðkom-
andi landsvæðum yrðu eign
þjóðarinnar. Tillagan var felld
með atkvæðum meirihlutans.
„Það er ekki vilji meirihluta
Reykjanesbæjar að ríkið eign-
ist meira land á svæði sveitar-
félaganna, enda engar upplýs-
ingar um að ríkið hafi áhuga á
því. Hins vegar mætti vel ræða
við ríkið í framhaldinu hvort
vilji sé til að ríkið eignist auð-
lindarréttinn á umræddum
landssvæðum.
Með tilboði um kaup Reykja-
nesbæjar á landi HS hf. er
verið að tryggja að land og
auðlindir séu að öllu leyti í
eigu sveitarfélaganna. Þannig
er stuðlað að sátt um eign auð-
lindarinnar,“ segir í bókun
sem meirihlutinn lagði fram.
Fulltrúar A-listans lögðu þá
fram aðra tillögu í þá veru að
bæjarráð samþykkti að fela
bæjarstjóra að leita eftir vilja
sveitarfélaga á Suðurnesjum
til að eignast sameiginlega þau
landsvæði sem eru í eigu HS
orku „og þar með stuðla að því
að náttúruauðlindir sem finn-
ast á viðkomandi landsvæðum
verði í samfélagslegri eign,“
eins og segir í tillögunni. Hún
var felld með atvæðum meiri-
hlutans eins og sú fyrri.
Í annarri bókun meirihlutans
kom fram að í viðræðum við
forsvarsmenn sveitarfélaganna
Voga og Grindavíkur hefði
komið fram áhugi á að kaupa
það land sem nú væri í eigu
Tekist á um auðlindamál í bæjarráði
HS og lægi á skipulagssvæði
viðkomandi sveitarfélaga.
Reykjanesbær muni fagna því
ef svo gæti orðið.
Bæjarráð samþykkti með at-
kvæðum meirihlutans að leggja
fram fyrirliggjandi tilboð til
HS orku í land og auðlindina.
Minnihlutinn sat hjá við at-
kvæðagreiðsluna og lagði fram
bókun þar sem hann lýsir sig
sammála þeirri meginhugsun
að náttúruauðlindir verði í
samfélagslegri eigu en hefði
viljað sjá aðrar útfærslur með
vísan í ofangreindar tillögur.
Skiptar skoðanir eru um nýtingu
orkulinda. VFmynd/elg