Víkurfréttir - 11.12.2008, Blaðsíða 8
8 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
Skákmót fyrir börn og unglinga verður
haldið að Nesvöllum Njarðarvöllum 6,
laugardaginn 13. desember 2008.
Mótið hefst kl. 12:00.
SKÁKMÓT
FYRIR BÖRN OG UNGLINGA
Athugið að þetta er síðasta
æfi ngin/mótið á þessu ári
SKÁKFÉLAG REYKJANESBÆJAR
Hvetjum alla krakka til að mæta.
Mánudaga til fimmtudaga frá 18.00 til 19.00
Föstudaga frá 17.00 til 19.00
Laugardaga og sunnudaga frá 13.00 til 17.00
Tilkynning frá Kirkjugarði Njarðvíkur vegna
kveikingar á jólaljósum í kirkjugarði.
Byrjað verður laugardaginn 13. des.
kl. 13.00. og opnunartími er sem hér segir.
Nánari upplýsingar í
síma 660-3691.
Kirkjugarður Njarðvíkur
Fimmtudaginn 18. desem-
ber ætlar einvalalið tónlist-
ar manna tengd ir Suð ur-
nesjunum að koma fram á
jólatónleikum til styrktar Vel-
ferðarsjóði Suðurnesja. Á tón-
leikunum munu koma fram
Elíza Geirsdóttir Newman,
Jóhann Helgason, Karlakór
Keflavíkur, Klassart, Kvenna-
kór Suðurnesja, Magnús,
Kjartan Már og Finnbogi
Kjartanssynir, Védís Hervör
og Þóranna Kristín. Allir
aðstandendur, og þeir sem
fram koma, gefa vinnu sína
og rennur andvirði aðgöngu-
miða óskert til Velferðar-
sjóðs Suðurnesja.
Fráfall Rúnars Júlíussonar
hefur haft mikil áhrif á Suður-
nesjamenn og hefur jafnframt
áhrif á tónleikana, en Rúnni
ætlaði að koma fram á tónleik-
unum ásamt fjölskyldu sinni
og var það auðsótt mál að fá
hann til að taka þátt. Tónleik-
arnir verða því haldnir í minn-
ingu hans enda hafa flestir ef
ekki allir tónlistarmennirnir
sem fram koma kynnst Rúnna
og margir hverjir unnið með
honum í gegnum tíðina.
Skipuleggjandi tónleikanna,
Þóranna K. Jónsdóttir, segir
að viðtökur við hugmyndinni
hafi verið frábærar og allir
boðnir og búnir til að leggja
sitt af mörkum. Auk tónlist-
armannanna hafi fyrirtæki
tekið vel í að styrkja verk-
efnið með framlögum í ýmsu
formi. Þannig leggur Bláa
lónið til salinn, Sparisjóður-
inn styrkir verkefnið og sér
auk þess um miðasölu á tón-
leikana, Grágás gefur prentun
og keflvískir hönnuðir sjá um
auglýsingagerðina auk þess
sem Víkurfréttir gefa auglýs-
ingabirtingar. Allt þetta gerir
það mögulegt að láta ágóðann
renna óskertan til málefnisins.
Þór anna legg ur áherslu á
að tilgangur tónleikanna sé
ekki eingöngu að styrkja fjöl-
skyldur með framlagi í sjóð-
inn heldur einnig að gefa Suð-
urnesjamönnum tækifæri til
að koma saman á aðventunni.
Tónleikarnir séu tilvalin leið
til að taka hlé frá jólastress-
inu og efnahagsástandinu og
í ljósi nýliðinna atburða, að
minnast Rúnna Júl. Þóranna
hvetur alla til að sýna samhug
í verki, njóta fallegrar jólatón-
listar með sínu heimafólki og
stuðla um leið að því allir geti
átt gleðileg jól á Suðurnesjum.
Tónleikarnir eru fimmtudag-
inn 18. desember og hefjast
kl. 20:00 í Lava sal Bláa lóns-
ins. Miðaverð er kr. 2.500,- og
forsala aðgöngumiða fer fram
í útibúum Sparisjóðsins um öll
Suðurnes. Ef einhverjir hafa
áhuga á að aðstoða í kringum
tónleikana er þeim bent á að
hafa samband við Þórönnu í
síma 690 4412. Fjárframlög til
Velferðarsjóðs Suðurnesja má
leggja inn á reikning: 1109-
05-1151 og kt. 680169-5789.
Einstakir jólatónleikar
til styrktar fjölskyldum á Suðurnesjum
Það gerist ekki oft að gjörvöll bæjarstjórn
Reykjanesbæjar bóki sameiginlega um
ákveðin málefni en það gerðist þó á fundi
hennar á þriðjudaginn. Reyndar var bókað
sameiginlega í tveimur málum, annars vegar
vegna álvers í Helguvík og hins vegar vegna
málefna HSS.
Bókunin vegna álversins er beint til yfirvalda
en í henni leggur bæjarstjórnin þunga áherslu á
að lokið verði sem fyrst við endurskoðun álvers-
framkvæmda og ríkisstjórnin sýni verkefninu
fullan stuðning.
Bókunin er svohljóðandi:
„Bókun vegna álversframkvæmda í Helguvík.
Í ljósi efnahagsástands og yfir eitt þúsund
íbúa á Suðurnesjum sem þegar eru skráðir at-
vinnulausir, leggur bæjarstjórn Reykjanesbæjar
þunga áherslu á að þeim þáttum sem enn er
ólokið við endurskoðun álversframkvæmda í
Helguvík verði flýtt sem kostur er.
Miðað við fyrirliggjandi hugmyndir skapast
yfir 2000 störf við byggingu álvers, virkjanir og
línulagnir.
Verktíminn gæti staðið sleitulaust í 5 ár frá og
með næsta ári.
Sú stækkun sem rædd hefur verið er bundin því
að þegar að henni kemur liggi fyrir jákvætt um-
hverfismat og að öllum lagaskyldum og reglum
hafi verið framfylgt. Enginn ætlast til undan-
tekninga frá því. Hins vegar er afar brýnt að
ríkisstjórnin samþykki sambærilega samninga
að baki álveri í Helguvík og gert hefur verið um
aðrar álversframkvæmdir.
Komið hefur fram að álver í Helguvík kallar á
300 milljarða kr. fjárfestingu inn í landið.
Þegar framleiðsla hefst skapast 700 varanleg,
vel launuð störf og gríðarlegar gjaldeyristekjur.
Bæjarstjórn treystir á að ríkisstjórnin sýni verk-
efninu fullan stuðning á mjög viðkvæmum
tíma þess.“
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar:
Sameiginleg bókun vegna álvers