Víkurfréttir - 11.12.2008, Page 13
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 11. DESEMBER 2008 13STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Útför Tómasar Þorvaldssonar útgerðarmanns
var gerð frá Grindavíkurkirkju á þriðjudag.
Félagar í Björgunarsveitinni Þorbirni
stóðu heiðursvörð en Tómas var formaður
sveitarinnar í þrjá áratugi, auk þess að
gegna formennsku í slysavarnadeildinni
Þorbirni í áratug. Tómas fæddist að Eiði í
Grindavík 26. desember 1919. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2. desember
sl.
Tómas kynntist snemma sjómennskunni. Á
stríðsárunum stjórnaði hann vinnuflokkum
sem unnu við að byggja upp flugvelli og
braggahverfi fyrir breska hermenn. Eftir stríðið
fór Tómas aftur til sjós. Árið 1948 gerðist
hann bílstjóri og verkstjóri. Tómas var virkur
í félagsmálum bæði til sjós og lands. Tómas
var fyrsti formaður Björgunarsveitarinnar
Þorbjarnar í Grindavík 1947 og gegndi
því starfi til ársins 1977. Þá tók hann við
formennsku í Slysavarnadeildinni Þorbirni í
Grindavík og sinnti henni til ársins 1987.
Tómas stofnaði ásamt þremur félögum sínum
útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Þorbjörn hf.
í Grindavík árið 1953 og var framkvæmdastjóri
þess fram til ársins 1985. Hann var í stjórn
Þorbjarnar til ársins 2000 eða í 47 ár. Tómas
var mjög virkur í öllu félagsstarfi í sjávarútvegi
allan sinn starfsaldur.
Jólastemmn ing Nú um þess ar mund ir er stað an í at vinnu mál um hvergi al var legri hér lend is en hér á
Suð ur nesj um. Alls eru yfir
1150 at vinnu laus ir á svæð inu,
eins og fram kom í frétt um
nú í vik unni. Eft ir ára mót
er áætl að að fjöld inn fari
í 1400 manns. Ástand þetta
er von andi tíma bund ið enda
leggj ast nú all ir á ár arn ar að
snúa þess ari óheilla þró un
við. En á með an það stend ur
yfir þurf um við öll að leggja
okk ur fram til þess að styðja
þá sem eiga um sárt að binda.
Vel ferð ar sjóð ur Suð ur nesja er
sam starfs verk efni sveit ar fé lag-
anna, kirkj unn ar og ým issa fé-
laga sam taka á svæð inu. Með
hon um bæt ist við það fjár-
magn sem í boði er til þess að
veita þeim að stoð sem á þurfa
að halda. Þeg ar hef ur kom ið í
ljós hversu brýn þörf in er fyr ir
slík an stuðn ing. Fjöldi um sækj-
enda um fjár hags að stoð hef ur
marg fald ast nú þessa að vent-
una frá því sem ver ið hef ur
und an far in ár. Stór hluti þeirra
sem nú leit ar að stoð ar hef ur
ekki þurft að gera slíkt áður.
Þau spor eru aldrei auð veld en
þau koma til af brýnni neyð.
„Gott er að gefa“ söng Rún ar
heit inn Júl í us son í fal legu
lagi sem er eins og trú ar játn-
ing þessa ást sæla lista manns.
Við ætt um að taka þau orð
til okk ar nú þeg ar mik ils er
af okk ur vænst. Marg ir hafa
þeg ar lát ið fé af hendi rakna til
sjóðs ins en bet ur má ef duga
skal. Við þurf um öll að leggj-
ast á eitt við að efla hann svo
að hann geti veitt að stoð sem
um mun ar, þar til að stæð ur
batna að nýju. Sér stakt átak
verð ur gert í söfn un inni á
tón leik um í Kefla vík ur kirkju
sunnu dags kvöld ið kem ur, 14.
des em ber kl. 20:00. Þar koma
fram kór ar og ein söngv ar ar
og verð ur dag skrá in há tíð leg
eins og hæf ir á að vent unni.
Ókeyp is verð ur inn á tón leik-
ana en fólk hef ur tæki færi
til þess að gefa fé til sjóðs ins
þarna um kvöld ið.
Ver um bjart sýn, hug rökk og
ör lát! Mæt um á tón leik ana á
sunnu dags kvöld ið og leggj um
okk ar af mörk um til þess að
efla þetta sam fé lag okk ar hér á
Suð urn esj um nú þeg ar þörf in
er mest.
Skúli S. Ólafs son,
sókn ar prest ur í Kefla-
vík ur kirkju
Gott er að gefa
Tón leik ar í Kefla vík ur kirkju
sunnu dag inn 14. des em ber kl. 20:00
Tómas Þorvaldsson jarðsunginn