Víkurfréttir - 11.12.2008, Blaðsíða 20
20 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
Fjölmargir hafa lagt leið sína í hljóðver Geimsteins í gegnum
tíðina. Hér er Rúnar við mixerinn en hljómsveitin heitir Róbert
og víkingarnir og er frá Færeyjum.
Rúnar Júlíusson áritar ævisöguna Hr. Rokk, sem Ásgeir
Tómasson skráði 2005. Hér er Rúnar að árita í Kaskó.
Úr fimmtugsafmæli Rúnars Júlíussonar. Í fremri röð Erlingur Björnsson,
Gunnar Þórðarson, Einar Júlíusson, Karl Hermannsson og Rúnar
Júlíusson. Við trommurnar situr Eggert Kristinsson.
Rúnar Júlíusson tók fyrstu skóflustunguna að Hljómahöllinni ásamt þeim Böðvari Jónssyni og
Ragnheiði Skúladóttur síðasta vetur. Rúnar hafði það verk að sjá um að koma Poppminjasafni
Íslands inn í húsið, enda enginn tengdari sögunni en Rúnar sjálfur.
Rúnar Júlíusson efndi til stórtónleika í Laugardalshöllinni í október á síðasta ári
þar sem hann átti stefnumót við allt það tónlistarfólk sem hann hefur spilað og sungið
með á tónlistarferlinum. Hér er hann með Björgvin Halldórssyni á sviði.
Þeir áttu m.a. samleið í Ðe Lónlí blú bojs.
Rúnar ásamt tónlistarmönnunum Bubba Morthens og KK.
Myndin var tekin í fimmtugsafmæli Rúnars á Hótel Íslandi.
Rúnar og Bubbi náðu einkar vel saman í GCD. Að neðan má sjá
mynd sem tekin var í Keflavíkurkirkju eftir óvænt brúðkaup
þeirra Rúnars og Maríu árið 2007.
Tekið á loft í Glaumbergi. Rúnar Júlíusson í hópi helstu
tónlistarmanna Suðurnesja sem komu saman á stórri
söngskemmtun sem slegið var upp í veitingahúsinu
Glaumbergi þar sem nú er frumleikhúsið.