Víkurfréttir - 11.12.2008, Síða 38
38 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
Körfu bolta stúlk ur í 7. og 8.
bekk í Kefla vík eru að safna
fyr ir æf ing aferð næsta sum ar.
Í því skyni eru þær að fara af
stað með sölu á körfu bolta-
kaffi sem Kaffi tár hef ur sér-
bland að fyr ir þær af þessu
til efni. Einnig hafa þær til
sölu drykkj ar mál fyr ir heita
og kalda drykki sem til val ið
er að nota til að drekka körfu-
bolta kaff ið úr. Þrí vídd ar teikn-
ar inn Dav íð Ingi Jó hanns son
sá um hönn un út lits. Körfu-
bolta kaff ið og drykkj ar mál in
eru til val in í jóla pakk ann og
verða gjafa pakkn ing ar til sölu
frá 1.500 krón um. Stúlk urn ar
munu ganga í hús og fyr ir tæki
og bjóða kaff ið til sölu.
Körfu bolta stúlk ur selja
kaffi fyr ir æf inga ferð
Keflavíkurstúlkur unnu góðan sigur á KR í
Frostaskjólinu sl. laugardag með 90 stigum
gegn 62. Jón Halldór Eðvaldsson segir að þetta
hafi verið einn besti leikur liðsins í langan tíma.
Birna Valgarðsdóttir átt enn einn stórleikinn
og sýndi að hún er ein besta ef ekki besta
körfuboltakona landsins. Hún skilaði 30
stigum. Svava Ósk Stefánsdóttir var traust
og skoraði 17 stig og Pálína Gunnlaugsdóttir
var með 15 stig. Keflavíkurstúlkur voru
í forystuhlutverkinu allan tímann en
gerðu út um leikinn í þriðja leikhluta
þegar þær völtuðu yfir KR 8-27.
Grindvíkingar heimsóttu lið FSu sl.
fimmtudag en Suðurlandsdrengirnir sem
byrjaðu af krafti í deildinni hafa dalað í
undanförnum leikjum. Grindvíkingar innbyrtu
sigur 88-97 og skoraði Páll Axel Vilbergsson
29 stig og Þorleifur Ólafsson tuttugu.
Keflvíkingar sigruðu lið Tindastóls í Toyota
höllinni sl. föstudagskvöld með 93 stigum gegn
75 í Iceland Express deildinni í körfubolta.
Sigurður Þorsteinsson fór hamförum í leiknum
og skoraði 28 stig og tók tíu fráköst og var
annað að sjá til risans en gegn Njarðvík.
Nágrannarnir úr Njarðvík fóru í
Kópavoginn og unnu þar frábæran sigur eftir
tvíframlengdan leik 103-107. Magnús Þór
Gunnarsson kann orðið ágætlega við sig í
Njarðvíkurbúningi en hann skoraði 32 stig í
þessum mikla leik. Logi Gunnarsson var með
29 stig. Hjörtur Hrafn Einarsson hefur bæst í
lykilleikmannahóp UMFN og er orðinn einn
af burðarásunum. Hann skoraði 25 stig.
Njarðvíkingurinn ungi, Jóhann Árni Ólafsson
hefur verið að standa sig vel með þýska liðinu
Proveo Merlins en liðið er í þýsku Pro B
deildinni. Í fyrrakvöld var Jóhann enn einu
sinni í byrjunarliði Merlins sem vann TSV
Tröster á heimavelli 109-82. Jóhann skoraði
11 stig, var með 4 stoðsendingar og 3 fráköst.
Körfuboltafólk úr Suðurnesjaliðunum
verður í eldlínunni á laugardag þegar árlegir
stjörnuleikir karla og kvenna fara fram.
Gamlar stórstjörnur mæta í þriggja stiga
keppnina í karla- og kvennaflokki. Fólk
eins og Teitur Örlygs, Guðjón Skúla, Valur
Ingimundarson, Falur Harðarson og hjá
kvenfólkinu Björg Hafsteinsdóttir og Kristín
Blöndal. Auðvitað verða bestu skyttur liðanna
í dag í keppnunum við þær gömlu líka.
Stjörnudagurinn hefst á Ásvöllum í
Hafnarfirði með kvennaleiknum kl. 13.
Tveir sundmenn ÍRB sem kepptu á
Norðurlandameistaramóti unglinga í
Svíþjóð með unglingalandsliði Íslands unnu
til verðlauna. Sindri Þór Jakobsson vann
silfurverðlaun í 100m flugsundi og Soffía
Klemenzdóttir vann til bronsverðlauna í
200m fjórsundi. Þetta voru einu verðlaun
íslenska liðsins. Fjórir sundmenn frá okkur
voru á þessu móti en það voru þau Gunnar
Örn Arnarson, Lilja Ingimarsdóttir Sindri
Þór Jakobsson og Soffía Klemenzdóttir
Góðir sigrar hjá
Suðurnesjaliðunum
Soffía og Sindri
á verðlaunapalli
á NM unglinga
Soffía á fullu í
lauginni.
Svava Ósk
á fullri ferð
Svava Ósk hefur verið drjúg
í undanförnum leikjum. Hún
verður í eldlínunni á Ásvöllum
í Hafnarfirði á laugardaginn.
VF-mynd/pket.