Víkurfréttir - 18.12.2008, Blaðsíða 6
6 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 51. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn
og auglýsingar:
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamenn:
Ellert Grétarsson,
sími 421 0004, elg@vf.is
Valur Jónatansson,
sími 421 0003, valur@kylfingur.is
Auglýsingadeild:
Gunnar Einarsson,
sími 421 0001, gunnar@vf.is
Útlit, umbrot og prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Magnús Geir Gíslason,
sími 421 0005, magnus@vf.is
Þorsteinn Kristinsson,
sími 421 0006, steini@vf.is
Þórgunnur Sigurjónsdóttir,
sími 421 0011, thorgunnur@vf.is
Skrifstofa Víkurfrétta:
Rut Ragnarsdóttir,
sími 421 0009, rut@vf.is
Aldís Jónsdóttir,
sími 421 0010, aldis@vf.is
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og kylfingur.is
Afgreiðsla Víkurfrétta
er opin alla virka daga frá
kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga
er opið til kl. 15.
Með því að hringja í síma
421 0000 er hægt að velja
beint samband við auglýsingadeild,
fréttadeild og hönnunardeild.
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN ER
Í SÍMA 898 2222
VÍKURFRÉTTIR EHF.
VÍKURSPAUGMynd: Guðmundur Rúnar
SIMPLY CLEVER
4.9
L/100 KM
Kvenfélagskonur í Gefn í
Garði afhentu um helgina
Velferðarsjóði Suðurnesja
myndarlegt framlag þegar
séra Björn Sveinn Björnsson,
sóknarprestur að Útskálum,
veitti viðtöku 300.000
krónum sem kvenfélags-
konurnar gáfu til sjóðsins.
Fjármunirnir hafa þegar
verið lagðir inn á reikning
Velferðarsjóðs Suðurnesja og
verða notaðir til stuðnings
við efnaminni á nýju ári.
Séra Björn Sveinn þakkaði
framlag Gefnar-kvenna og
sagði að framlag þeirra væri
mikilvægt. Það væri líka í
anda þeirra kvenna sem stofn-
uðu Kvenfélagið Gefn, en eitt
af markmiðum félagsins væri
að styðja við efnaminni.
Það er ástæða til að hvetja
til þess að þeir sem séu
aflögufærir nú fyrir jólin
styðji við Velferðarsjóð Suð-
urnesja, því búast má við að
verkefnin verði ærin eftir
áramótin. Björn Sveinn upp-
lýsti að það væri nú á könnu
Hjálparstarfs kirkjunnar að
veita þeim stuðning sem
þurfa fyrir jólin, en á nýju
ári muni Velferðarsjóðurinn
bætast í hjálparstarfið.
Kvenfélagskonur
í Garði gáfu
300.000 kr.
í Velferðarsjóð
Frá afhendingu gjafarinnar í Velferðarsjóðinn. Herborg Hjálmars-
dóttir, formaður Gefnar og Jóhanna Kjartansdóttir gjaldkeri,
afhenda séra Birni Sveini staðfestingu þess að fjármunirnir hafi
verið lagðir inn á reikning Velferðarsjóðs Suðurnesja.
Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Afdjöfluð skata á
Vocal á Þorláks-
messu
Loksins mun Flughótel
aftur bjóða upp á skötu-
hlaðborð á Þorláksmessu.
Hlaðborðið verður í nýjum
stórglæsilegum veitingastað
Flughótels, Vocal restaurant.
Pétur Þorsteinsson, prestur
Óháða safnaðarins, mun
halda létta hugvekju og „af-
djöfla“ skötuna. Pétur mun
einnig tryggja létt og gott
andrúmsloft á staðnum og
sjá til þess að skatan renni
ljúft niður í maga gesta.
Boðið verður upp á vest-
firska vel kæsta skötu,
tindabykkju, þrjár tegundir
af saltfiskréttum, hnoð-
mör, vestfirska hamsatólg,
heimabakað rúgbrauð og
að sjálfsögðu viðeigandi
meðlæti. Fyrir þá sem
ekki treysta sér í þessar
lystisemdir, þá bjóðum við
líka upp á lasagna og pasta.
***
Jólaball í Ytri-
Njarðvíkurkirkju
Jólaball verður í Ytri-Njarð-
víkurkirkju sunnudag-
inn 21. desember kl.11.
Dansað í kringum jólatré
og jólasveinn sem á heima
í fjallinu Keili mætir í kirkj-
una. Hann gefur öllum
börnum eitthvað gott til
að hafa með sér heim.
Barna- og unglingakórar
Njarðvíkurkirkna syngja
og Gunnhildur Halla Bald-
ursdóttir stjórnar söng.
Hvetjum við mömmur,
pabba, afa og ömmur til
að mæta og eiga góða
stund með börnunum
í kirkjunni á síðasta
sunnudegi í aðventu.
Starfsfólk kirkjunnar í
Njarðvíkurprestakalli.