Víkurfréttir - 24.04.2013, Side 21
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudagurinn 24. apríl 2013 21
LIST ÁN LANDAMÆRA Á SUÐURNESJUM 2013
BRÝTUR NIÐUR MÚRA
OG BÆTIR HEIMINN!
MIÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR Á SUÐURNESJUM
vinalegur bær
2013
SUMARDAGURINN FYRSTI 25. APRÍL KL. 13.00
OPNUN SAMSÝNINGAR Í BÍÓSAL DUUSHÚSA
Sossa, Amanda Auður Þórarinsdóttir, Hrafnhildur Gísladóttir, Rut Ingólfsdóttir,
félagar frá Hæfingarstöðinni, verk úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar og
gestalistamaðurinn Guðrún Bergsdóttir, listamaður Listar án landamæra 2011.
Sýningin stendur til og með 1. maí og er opin virka daga frá kl. 12:00-17:00
og um helgar frá kl. 13:00-17:00.
Aðgangur ókeypis
KL. 13.00 – 16.00
GEÐVEIKT KAFFIHÚS Í SVARTA PAKKHÚSINU
Félagar úr Björginni geðræktarmiðstöð standa fyrir Geðveiku kaffihúsi
í Svarta pakkhúsinu að fyrirmynd Hugarafls.
Kl. 14:00 Guðmundur Sigurðsson tenór ásamt Arnóri Vilbergssyni organista.
Birta Rós, Brynjar og Guðmundur R frumflytja tvö heimasmíðuð lög.
Kl. 15.00 Bestu vinir í bænum sýna brot úr verki sínu Tímavélin
STRÆTÓSKÝLI FÁ ANDLITSLYFTINGU
Hvað gerist þegar hugmyndaríkt fólk fær
tækifæri til að gefa strætóskýlunum nýtt líf?
Gefið strætóskýlunum í bænum grannt auga á næstunni.
Unnið af félögum úr Björginni geðræktarmiðstöð í samvinnu við
Kompuna-nytjamarkað undir stjórn
Guðmundar R Lúðvíkssonar myndlistarmanns.
LAUGARDAGUR 27.
OG SUNNUDAGUR 28. APRÍL
FRUMLEIKHÚSINU VESTURBRAUT 17,
KL. 16:00 BÁÐA DAGANA
Bestu vinir í bænum frumsýna Tímavélina
Tímavélin gerist í litlu þorpi þar sem litríkar persónur búa.
Fráfall einnar manneskju í þorpinu hrindir af stað óvenjulegri atburðarás.
Með aðalhlutverk fara: Birna Dögg Gunnarsdóttir, Bjarni Valur
Agnarsson, Davíð Már Guðmundsson, Lára Ingimundardóttir,
Ívar Egilsson, Henning Emil Magnússon, Bylgja Dís Gunnarsdóttir
og Steinunn Birna Ólafsdóttir
Leikstjórar eru Bylgja Dís Gunnarsdóttir
og Henning Emil Magnússon.
Leikendur leika og syngja af hjartans einlægni og láta engan ósnortinn.
Frítt er inn á sýningarnar.
List án landamæra á Suðurnesjum er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum í samvinnu við Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum,
Hæfingarstöðina og Björgina geðræktarmiðstöð. Verkefnið nýtur stuðnings frá Menningarsjóði Suðurnesja.