Neytendablaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 9
Nýjar sláandi, fjölþjóðlegar rannsóknir
sýna að flestar gerðir af morgun
verðarkorni sem ætlaðar eru börnum
innihalda alltof mikinn sykur. Í mörgum
gerðum er hlutfallslega meira af sykri en
er í kexi og kökum. Dísætur morgunmatur
er liður í „fitubylgjunni“ og eykur hættuna
á lífsstílstengdum sjúkdómum.
Utan á pökkum og í auglýsingum um
morgunverðarkorn eru líflegar myndir, oft
með hressum teiknimyndapersónum, sem
boða girnilegt innihald, kolvetni og trefjar.
Gefið er í skyn að kornið í kassanum tryggi
börnum gott upphaf dagsins. Staðreyndin
er þó sú að morgunkorn er að miklu leyti
sykur og í því er líka oft of mikið af salti
og fitu.
Alþjóðleg rannsókna- og prófunarstofnun
neytenda, International Consumer Reseach
and Testing (ICRT), hefur í samvinnu við
Consumer International (CI) og neytenda-
blöð víðs vegar um heim gert umfangs-
miklar markaðs- og gæðakannanir á morg-
unkorni sem markaðssett er með börn í
huga. Sú markaðssetning er í formi teikn-
inga, leikja, keppna og smágjafa sem fylgja
í pakkanum.
Þetta er umfangsmesta könnunin af sínu
tagi í heiminum hingað til en rannsakaðar
voru 13 gerðir morgunkorns í 32 löndum.
Hvatinn að könnuninni er síaukin offita
barna og unglinga; „fitubylgjan“ eins og
sumir kalla fyrirbærið.
Rannsóknin er hluti af baráttu neytenda-
samtaka fyrir því að Alþjóða heilbrigðis-
málastofnunin (WHO) gangist fyrir því að
sett verði bann á markaðssetningu óhollrar
fæðu fyrir börn um heim allan.
Hátt sykurinnihald
Þumalfingursreglan er sú að með tilliti til
heilsufarssjónarmiða eigi að vera innan við
10 gr af sykri í hverjum 100 gr af morgun-
korni. Í rannsókn ICRT var það hins vegar
talið ásættanlegt ef sykurmagnið var undir
12,5%. Í Evrópusambandinu gilda þær reglur
að ekki má setja á umbúðir morgunkorns
áletrunina „Lágt sykurinnihald“, eða eitt-
hvað í þeim dúr, nema hlutfall sykurs sé
innan við 5%.
Sláandi niðustöður
Niðurstöður könnunarinnar eru sláandi.
Meðalhlutfall sykurs í sýnunum frá öllum
32 löndunum er 34,7 gr af sykri í hverjum
100 gr af morgunkorni. Flestar gerð-
irnar reyndust sem sé að þriðja hluta til
vera sykur. Átta af hverjum tíu gerðum
morgunkorns innihalda svo mikinn sykur
að réttast væri að tala um sætindi og fáar
gerðir eru í samræmi við ráðleggingar
matvælastofnana um sykurinnihald. Margar
gerðirnar í könnuninni, og þar á meðal þær
mest seldu, eru með um 40 gr af sykri í
hverjum 100 gr og mætti því flokka fremur
sem sælgæti en matvæli. Það er alls engin
ástæða til þess að morgunkorn sé jafn sætt
og raunin er.
Kellogg’s Honey Smacks trónir á sykur-
toppnum, en þar reyndist sykur vera 54,9%
af innihaldinu í pakka sem keyptur var í
Bandaríkjunum. Í Kellogg’s Smacks (sem
er önnur tegund en nefnd er hér á undan)
sem keypt var í Noregi var hlutfallið 43 gr
sykurs í hverjum 100 gr. Í auglýsingum í
Svíþjóð stóð um nýja sykurminni gerð
af Frosties frá Kellogg’s: „Nú með 33%
minna af sykri“. Rannsókn ICRT sýndi að
sykurinnihald vörunnar var eftir sem áður
25,2%.
Mini Fras morgunkorn frá Quaker er ein
af fáum gerðum sem fær hól hvað lágt
sykurinnihald varðar, en í því eru sjö til
níu grömm af sykri í hverjum 100 gr.
Morgunkornið Kellogg’s Rice Krispies er
líka hagstætt í þessu efni, en ókostirnir eru
þeir að of mikið salt og of lítið af trefjum er
í þeirri vöru..
Ekki bara óhollt
Ýmsar tegundir af morgunverðarkorni sem
eru þekktar og vinsælar hérlendis voru ekki
í könnuninni að þessu sinni, en Neytenda-
samtökin könnuðu innihald sykurs og fitu í
nokkrum algengum morgunkornstegundum
hér á landi einungis með tilliti til sykurs- og
fituinnihalds og í ljós kom að Weetabix og
Cheerios innihalda minnst af sykri. Ekkert
slær þó hafragrautinn út þegar kemur að
lágu sykurinnihaldi.
Nammidagar alla daga
Vörutegund
Sykur í
100 gr.
Fita í
100 gr.
Fram-
leiðandi
All-Bran 17.0 3.5 Kellogg’s, UK
Cheerios 4.5 6.6 GM. BNA
Coco Pops 34.0 3.0 Kellogg’s UK
Cocoa Puffs 40.5 4.6 GM. BNA
Corn Flakes 8.0 0.9 Kellogg’s, UK
Guldkorn 35.0 1.6 H.M.Foods, UK
Honey Nut
Cheerios 33.9 4.9 GM. BNA
Lucky Charms 40.7 4.0 GM. BNA
Rice Krispies 10.0 1.0 Kellogg’s UK
Solgryn 1.0 7.0 OTA, Danm.
Special K 17.0 1.5 Kellogg’s UK
Weetabix 4.4 2.0 Weetabix, UK
Weetaflakes 12.5 1.3 Weetabix, UK
Weetos 23.5 4.9 Weetabix, UK
Sykur og fituinnihald vinsælla tegunda (í grömmum).
Raðað eftir sykurmagni. Upplýsingar á umbúðum í
verslunum.
Morgunkorn á Íslandi
NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2008