Neytendablaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 21
10-11
11-11
Actavis
Apótekarinn
Apótekið
Atlantsolía
Bananar
Bensínorkan
Borgun
Bónus
Brimborg
Búr
Byko
Ego
Eimskip
elisabet.is
Europris
Frumherji
Glitnir
Hagkaup
Hekla
Húsasmiðjan
Iceland Express
Icelandair
IKEA
Íslandspóstur
Ístak
Kaskó
Kjarval
Krónan
Landsbankinn
Lyf og heilsa
Lyfja
Matfugl
MS
N1
Nettó
Nóatún
Nói-Síríus
Orkuveita Reykjavíkur
Penninn
Rúmfatalagerinn
Samkaup-Strax
Samkaup-Úrval
Samskip
Securitas
Sjóvá
Skeljungur
Sláturfélag Suðurlands
SPARISJÓÐIRNIR
Tryggingamiðstöðin
Vátryggingafélag Íslands
Visa Ísland
Vífilfell
Vínbúðirnar
Vodafone
Vörður tryggingar hf.
Öryggismiðstöðin
Þeir eru ófáir tölvupóstarnir sem fólk hefur
fengið frá óheppnum Nígeríubúum sem
hafa lent í því óréttlæti að geta ekki losað
háar upphæðir út úr banka án liðsinnis
heppinna einstaklinga sem fá tækifæri til að
eignast hluta fjárins ef þeir einungis hjálpa
til við að millifæra upphæðina. Þá hafa
sumir fengið tilkynningu um lottóvinning
þrátt fyrir að fólk muni jafnvel ekkert eftir
að hafa keypt miða. Vonandi fara þessir
póstar beina leið í ruslakörfuna en sumt
virkar trúverðugra en annað.
Um dagin gekk um netheima tölvupóstur
með myndum af húsi, eða höll öllu heldur,
sem sögð var eign Mugabe einræðisherra
í Simbabwe. Á meðan þjóð hans sveltur
byggir einræðisherrann dýrðarinnar hús
þar sem ekkert er til sparað. En ekki er
alltaf allt sem sýnist. Á heimasíðunni
www.snopes.com er hægt að sjá hvort
tölvupóstar sem ferðast um heiminn séu
byggðir á áreiðanlegum heimildum eða lygi.
Samkvæmt síðunni er talið afar ólíklegt að
húsið tilheyri einræðisherranum alræmda.
Það mun vera staðsett í Kaliforníu og
hefur verið notað sem upptökustaður fyrir
sjónvarpsþætti og kvikmyndir sem útskýrir
hvers vegna það er til svo mikið af myndum
af því.
Hvað er satt og hvað er logið?
Neytendastofa
kannar
verðmerkingar
Neytendastofa, sem hefur m.a. það hlut-
verk að fylgjast með því að reglum
um verðmerkingar sé framfylgt, hefur
kannað verðmerkingar hjá seljendum að
undanförnu. Upp úr miðjum júní voru
verðmerkingar í bakaríum kannaðar. Í
ljós kom að af 37 bakaríum voru 13
sem þurftu að bæta sig og verðmerkja
betur. Algengt var að vörur í kælum
væru lítið eða illa merktar. Bakaríunum
13 voru send tilmæli um að bæta verð-
merkingar og gefin frestur til að koma
verðmerkingum í lag.
Bakarí beitt sektum
Neytendastofa fór aftur á vettvang í
byrjun ágúst og þá kom í ljós að níu
bakarí höfðu ekki farið að tilmælum
Neytendastofu. Bakaríin voru því beitt
stjórnvaldssekt að upphæð 100.000
krónur hvert, en bakaríin hafa áfrýjað.
Neytendastofa hefur einnig kannað
verðmerkingar í verslunum og í búðarg-
luggum. Neytendasamtökin fagna því
að þessi mál séu tekin föstum tökum
enda er verðmerkingum allt of víða
ábótavant.
1 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2008