Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.03.2010, Blaðsíða 6

Neytendablaðið - 01.03.2010, Blaðsíða 6
Neytendastarf er í allra þágu 10-11 11-11 Actavis Apótekarinn Apótekið Atlantsolía Bananar Borgun Bónus Brimborg Byko Creditinfo Eimskip elisabet.is Frumherji Hagkaup Heilsuhúsið Hekla Húsasmiðjan Iceland Express Icelandair IKEA Ísfugl Íslandsbanki Íslandspóstur Kaskó Kjarval Krónan Landsbankinn Lyf og heilsa Lyfja Matfugl MS N1 Nettó Nova Nóatún Nýherji Orkan Orkuveita Reykjavíkur Penninn Rúmfatalagerinn Samkaup-Strax Samkaup-Úrval Samskip Securitas Shell Síminn Sjóvá Sláturfélag Suðurlands Sölufélag garðyrkjumanna Tryggingamiðstöðin Valitor Vátryggingafélag Íslands Vífilfell Vínbúð Vörður tryggingar hf. Öryggismiðstöðin PIN númer í stað undir skriftar Örgjörvar hafa verið notaðir í kreditkortum um nokkurra ára skeið. Það hefur fyrst og fremst gagnast þegar kortin eru notuð erlendis, en örgjörvarnir geyma öryggisupplýsingar, m.a. PIN-númer, sem ekki er mögulegt að koma fyrir í segulrönd. Eins og margir þekkja er víða erlendis farið fram á slegið sé inn PIN-númer þegar greitt er með korti í verslunum. Það hefur ekki verið hátturinn hér á landi, heldur hefur undirritun á kvittun verið látin duga til að sanna að um réttan korthafa sé að ræða. Til stendur hins vegar að innleiða þennan greiðslumáta einnig á Íslandi. Unnið er að dreifingu debetkorta með örgjörva og söluaðilar eru að uppfæra hjá sér búnað til að taka við innslætti á PIN-númerum. Mörg dæmi eru um að fólk hafi notað röng kort án þess að upp komist enda hafa fæstir fyrir því að bera saman mynd og undirskrift. Tilkoma PIN-númera ætti því að gera kortanotkunina öruggari. Áætlað er að um 70% kortaviðskipta fari fram með þessum hætti í byrjun næsta árs. Á www.kortogpin.is má finna kynningarvef um þessa breytingu. Gildistími vegabréfa Að gefnu tilefni vilja Neytendasamtökin benda á að ef ferðast er innan Evrópu, óháð því hvort ferðast er til ríkis í Schengen eða ekki, þarf að hafa vegabréf sem gildir í 3 mánuði umfram ferðatíma. Annars geta ferðalangar átt á hættu að verða neitað um far. Þetta á þó ekki við innan Norðurlandanna. Ennfremur er vert að benda á að ef ferðast er til Banda- ríkjanna þarf gilt vegabréf að gilda í 6 mánuði um fram ferðatíma. Einnig þarf þá að sækja um rafræna ferða- heimild „ESTA“. Það er á ábyrgð farþegans að sækja um umrædda ferðaheimild og þarf að sækja um hana minnst 72 tímum fyrir brottför. Heimildina þarf að prenta út og hafa með sér í flug. Heimildin gildir í 2 ár þannig að ef ferðast er aftur til Bandaríkjanna innan 2ja ára þarf ekki að sækja um aðra heimild. Á www.ns.is eru fjölmargir molar um réttindi neytenda sem vert er að kynna sér. 6 NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2010

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.