Neytendablaðið - 01.03.2010, Page 8
Frá því að bókarisinn Amazon kynnti fyrir neytendum fyrstu
gerð ina af Kindle bókatölvunni árið 2007 hafa rafbækur og þar
til gerðir lesarar fengið æ meiri athygli og þróast mjög hratt.
Áhugi neytenda er að vakna og framleiðendur hafa tekið við
sér.
Forritið
Neytendur geta vissulega keypt rafbækur án þess að eiga bókatölvu.
Á vefsvæðum eins og bn.com (Barnes & Noble) og Amazon.com er
hægt að hlaða niður lestrarforriti til að lesa rafbækur á venjulegri
tölvu, iPod, Blackberry og fleiri græjum. Áskrift að rafrænum
dag blöðum og tímaritum hentar vel í þetta form.
Hvað er bókatölva?
Bókatölva, öðru nafni eReader, er hönnuð til að lesa rafræn skjöl
og notar forrit eins og þau sem nefnd eru hér að ofan. Hún er eins-
konar rafræn tafla, handhæg með fáum tökkum og skýrum skjá.
Hug myndin er að hún komi í staðinn fyrir prentað efni, þar sem
neyt endur geta hlaðið niður bókum og lesið í bókatölvunni hvar og
hve nær sem er.
Bókatölvur hafa marga eiginleika:
• eInk skjátækni, hefur sömu eiginleika og blað, jafnvel í sterku
sólskini (engin bakgrunnslýsing).
• Flestar bókatölvur geyma allt að 1500 bækur, með möguleika á
aukaminniskorti.
• Flestar gerðir eru þynnri en 1” og eru fáanlegar í stærðum frá
5” – 10”.
• Rafbækur (eBook) hlaðast niður á einfaldan hátt frá ýmsum
þar til gerðum vefsíðum með usb-tengingu eða þráðlausu sam -
bandi.
• Endurhlaðanlegar rafhlöður endast í þúsundir blaðsíðuflett inga.
• Margir aðrir eiginleikar bjóðast, allt eftir gerð tölvunnar. Hér
má nefna snertiskjá, upplestur, mp3-spilara, skjáveltu (snýr text-
anum eins og tölvan snýr) og þráðlausa tengingu (3G).
Verðlag
Bókatölvur frá Sony og fleiri framleiðendum voru komnar á
markað á undan Kindle frá Amazon, en Kindle var hins vegar
fyrsta tölvan sem bauð uppá þráðlaust niðurhal á rafbókum með
3G tækni. Kindle kom fyrst á markað á verðinu 399$, eða 52.000
kr. miðað við gengið 130, en Amazon lækkaði verðið í 259$ (tæpar
34.000 kr.) og lokkar kaupendur með tilboði sem felur í sér að nýjar
bækur kosta aðeins 10$ eða 1.300 kr. Bókarisinn Barnes & Noble
er í samkeppni við Amazon með vefverslun og hann kynnti Nook
bókatölvuna í nóvember 2009 á sama verði og Kindle. Reader frá
Sony, sem annars geymir margar nýjungar, er ekki með þráðlausa
tengingu. Þar sem Sony hefur ekki öfluga bókaverslun eins og
Barnes & Noble og Amazon hefur fyrirtækið í staðinn gert samning
um aðgang að bókasöfnum landsins fyrir Reader-notendur í Banda-
ríkjunum. Minnsta tegundin af Reader kostar 200$ (26.000 kr.) og
stærri gerðir kosta 300$ (39.000 kr.). Nýjasta græjan á markaðnum
er svo iPad frá Apple, sem er miklu meira en bókatölva og það á
reyndar einnig við um margar af þeim græjum sem eru nefndar hér.
Markaðurinn
Enn eru rafbækur langt á eftir almennri bókasölu í heiminum en
markaðurinn hefur heldur betur tekið við sér. Samkvæmt skipu-
leggjendum risastórrar raftækjasýningar sem haldin er árlega í Las
Vegas, Consumer Electronic Show (CES), voru 2,2 milljónir bóka-
tölva pantaðar í verslanir árið 2009, og er það næstum 4 sinnum
Bókatölvur í miklu úrvali
eBook − Rafbók, bók sem er gefin út í rafrænu formi
eReader – Bókatölva, tæki sem er notað til að lesa rafbók
eInk – Skjátækni sem lætur rafbók líta út eins og venjulegan texta á blaði en ekki eins og tölvuskjá. Engin
ljós í bakgrunni og óháð birtuskilyrðum.
Dæmi um bókatölvur: Kindle frá Amazon, Nook frá Barnes & Noble, BeBook Reader, Irex, QUE frá Plastic Logic, Sony
Reader og iPad frá Apple.
Public Domain books – bækur sem falla ekki undir höfundarrétt. Sjá Google books
8 NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2010