Neytendablaðið - 01.03.2011, Side 17
læknisþjónustu og lyf en innan við 10% í mat. Ætti þetta ekki að
vera öfugt?“
Ekki bara spurning um bragð
„Ég réttlæti aukinn matarkostnað fjölskyldunnar með því að lífræni
maturinn gefi okkur meiri og betri næringu, sé bragðmeiri og –betri,
sé ekki erfðabreyttur og engin hætta sé á eiturefnaleifum. Fram
hafa komið fjölmargar rannsóknir sem sýna fram á með óyggjandi
hætti að lífrænt ræktuð matvæli innihaldi meira af vítamínum,
steinefnum, andoxunarefnum og öðrum næringarefnum. Bragð er
auðvitað einstaklingsbundið og hvet ég fólk til að kaupa lífræna
agúrku, tómat eða epli og svo hefðbundna framleiðslu og bera
saman.“ Oddný ítrekar að lífræn ræktun snúist þó um margt annað
en bragðið. „Með því að kaupa lífrænar vörur er ég að draga úr
mengun því öll þessi skordýra, arfa, sveppa og önnur eiturefni
og hormónar sem notuð eru í hefðbundinni ræktun ásamt tilbúna
áburðinum valda gríðarlegum umhverfisspjöllum. Þau síast niður í
jarðveginn, út í hafið og í grunnvatnið og drepa ekki einungis það
sem þau eiga að drepa heldur einnig mikilvægar örverur og dýr og
raska því jafnvæginu í náttúrunni. Það er þó meðferð sláturdýra
sem skiptir mig einna mestu máli. Ég hef kynnt mér vel hvernig
farið er með búfé á hinum svokölluðu verksmiðjubúum og er það
oft efni í hryllingsmynd og aldrei ásættanlegt. Það á líka við hér á
landi í alifugla og svínarækt, þ.m.t. eggjaframleiðslu og að nokkru
leyti í mjólkurframleiðslu og nautgriparækt.“
Betur farið með dýran mat
„Til að vega upp á móti auknum kostnaði fer maður líka að fara
betur með vöruna því maður ber meiri virðingu fyrir henni, bæði
vegna verðsins en einnig vegna þess að maður veit hve mikið
var lagt í hana við ræktun og framleiðslu. Talið er að samfélagið
hendi hátt í 50% af þeim mat sem framleiddur er, sem er auðvitað
hræðileg sóun. Að auki mættum við flest við því að borða aðeins
minna jafnvel þó við séum ekki of þung. Hingað til hefur allt snúist
um að bjóða meira af einhverju fyrir sama verð en oft er dregið úr
gæðum á móti. Er ekki ánægjulegra að maula lítið magn af hágæða
lífrænu súkkulaði með Fair Trade vottun en að gúffa í sig risa
Snickers sem dæmi?“
Mikið aðgengi að óhollum mat
Aðspurð segir Oddný að Íslendingar séu almennt ekki nógu vel
upplýstir um hollt mataræði. „Mér finnst Ísland vera svolítið
eins og litla Ameríka og það kom mér á óvart hvað framboðið af
óhollustu hér var orðið gríðarlegt. Nánast alveg sama hvar maður
er; næringarsnauður skyndibiti er í seilingarfjarlægð, uppfullur af
viðbættri fitu, sykri, salti og alls kyns aukefnum. Í ofanálag eru
hinir svokölluðu nammibarir og sælgæti alls staðar. Ég tek hins
vegar eftir mikilli vitundarvakningu og maður opnar varla netið
eða blað, kveikir á sjónvarpi eða útvarpi án þess að verið sé að
fjalla um mataræði og heilsu og matsölustaðir með hollum réttum
spretta upp eins og gorkúlur. Sífellt fleiri verslanir bjóða lífrænt
vottaðar vörur og úrvalið hefur stóraukist.“
Breytt neyslumynstur lífsspursmál
Oddný segir að heilsufarsleg vandmál vegna óhollrar fæðu séu
ómæld. „Lífsstílssjúkdómar eins og áunnin sykursýki, krabbamein,
hjarta og æðasjúkdómar er núna algengasta dánarorsökin og
gríðarstór baggi á heilbrigðiskerfinu. Slíkir sjúkdómar finnast varla
hjá ættbálkum sem ekki hafa tekið upp vestrænan lífsstíl. Í dag sé
ég þetta sem stærsta og mikilvægasta mál samfélagsins því með
breytingu á neyslu bætum við ekki einungis heilsu okkar og vellíðan
heldur drögum einnig úr mengun og ágangi á náttúruauðlindir.“
Ísland er eftirbátur
„Hefðbundin matvælaframleiðsla, þ.m.t. garðyrkja og verksmiðju
búskapur, mengar meira og gengur hraðar á náttúruauðlindir
en flestar aðrar greinar iðnaðar í heiminum í dag. En til að gera
Íslend ingum kleift að skipta yfir í lífrænar vörur er lykilatriði að
íslenskir bændur og framleiðendur taki við sér og stórauki ræktun
og framleiðslu lífrænna vara. Stjórnvöld þurfa að móta stefnu um
að auka lífræna ræktun í landinu en á því sviði er Ísland verulegur
eftirbátur annarra þjóða. Kosturinn fyrir neytendur og umhverfið er
sá að þá þarf að flytja minna af vörum yfir lönd og höf og verðið
ætti að lækka,“ segir Oddný að lokum.
Sjá meira um samtökin á www.lifraen.is
Oddný sótti vikulega körfu fulla af nýuppteknum lífrænum ávöxtum og grænmeti sem ræktað var í grenndinni.
17 NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2011