Neytendablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 10
Markaðskönnun
Í markaðskönnun Neytendablaðsins, sem
gerð var 13.–18. febrúar, reyndust um
140 gerðir þvottavéla vera til sölu hér á
landi og voru þær á verðbilinu um 30–220
þús. kr. Ódýrust var Matsui MWM 1000
N á 29.995 kr. hjá Elkó en sú dýrasta var
Miele W 3923 WPS á 221.850 kr. hjá
Eirvík.
Könnunin er á vef Neytendasamtakanna
www.ns.is
Val á þvottavél
Val á þvottavél ætti að miðast við notkun og
fjölskyldustærð. Séu notendurnir barnlaust
par er lítil ástæða til að kaupa háþróaða og
dýra vél; séu aðeins einn eða tveir í heimili
má t.d. mæla með Bosch WAE 2416 Classic,
sem fæst á 57.900 hjá Elkó. Og ef fólk sér
fram á að flytja innan tveggja ára og vill
taka þvottavélina með sér er ekki endilega
ráðlegt að kaupa stóra og þunga vél.
En fyrir barnafjölskyldu, sem þvær kannski
oft á dag, og fólk sem óhreinkar föt mikið
í vinnu eða tómstundum er hins vegar lítið
vit í að kaupa ódýrustu gerðirnar.
Gæðakannanir International Consumer
Research and Testing (ICRT) hafa oft sýnt
að Miele kemur einna best út í gæðum á
þvottavélamarkaðnum. Nefna má gerðir eins
og Miele 3741 NDSLW, sem fæst á 134.995
kr. hjá Elkó, og Miele W 1514, sem fæst
á 94.995 kr. hjá Elkó og á 105.500 kr. hjá
Eirvík. Einnig má þó mæla með Whirlpool
AWO/D 6730, sem fæst á 69.989 kr. hjá
Max, og til eru ágætar þvottavélar frá AEG,
Bosch, Zanussi og fleiri framleiðendum.
Ódýrar vélar og ódýrt vinnuafl
ICRT kannaði nokkrar af ódýrustu
þvottavélunum á markaðnum og margar
þeirra stóðu sig furðanlega vel. Slóvensku
Gorenje-vélarnar, sem fást hér í Rönning
og Raftækjaverslun Íslands á um 55–112
þús. kr. hreinsa burt fitu-, rauðvíns-, kakó-,
olíu-, sót-, blóð- og blekbletti næstum eins
og vel Miele- og AEG-vélar. Margar ódýru
vélanna frá smærri og minna þekktum
framleiðendum skjótast í gæðakönnuninni
fram fyrir ódýrar gerðir frá frægu
framleiðendunum með fínu vörumerkin.
Samt sem áður vilja margir kaupendur
frekar frægt merki. Sumir fullyrða reyndar
að með því að kaupa Gorenje fáist mest
fyrir peningana.
Merkjavörur eru og verða merkjavörur, en
hér býr ýmislegt að baki sem fólk áttar sig
oft ekki á. Sannleikurinn er sá að fyrirtæki
hafa sameinast og fræg þýsk, ítölsk og
sænsk merki eru nú framleidd á Spáni og
í Tyrklandi og Austur-Evrópu, þar sem
launakostnaður er lægri. Ítölsku Zanussi-
þvottavélarnar eru nú framleiddar í sömu
verksmiðjum og þýsku AEG-vélarnar og
sænsku Electrolux-vélarnar. Oft eru aðeins
dýrustu og fínustu gerðir þvottavélanna
framleiddar í Norður-Evrópu.
Ókostirnir við sumar ódýru þvottavélarnar
eru að þær nota tvöfalt meira vatn og miklu
meira rafmagn en hinar dýrari. Dæmi um
slíka vél er Indesit SIXL 149 S, sem fannst
reyndar ekki á markaði hér.
Aðferðirnar
Rannsóknin á því hve vel vélarnar þvo er
byggð á athugunum á bómullarþvotti við
40 stiga hita. Þvegið var með venjulegu 40
gráðu þvottakerfi, hraðkerfi og „easy-care“
-kerfi (eða 40 gráðu kerfi fyrir gerviefni).
Ástæða þess að aðeins eru prófuð 40 gráðu
þvottakerfi er sú að þetta hitastig hentar
best til að bera saman þvottagæði. Notaðar
voru sömu tegundir af þvottaefnum við öll
gæðaprófin.
Margar þvottavélar geta einfaldlega ekki
þvegið þvottinn alveg hreinan og margar
vélanna þvo best með hraðþvottakerfi.
Ráðlagt þvottamagn í kg. við notkun
hraðkerfanna er nefnilega minna en við
hin kerfin, þannig að þvottaáhrifin verða
meiri þótt þvottatíminn sé styttri. Sum
hraðþvottakerfi eru samt ekki sérlega
fljót. Hægvirkasta vélin var 90 mínútur
með „hraðþvottinn“ en sú hraðvirkasta
lauk honum á 39 mínútum. Hægvirkustu
vélarnar skila hins vegar að jafnaði
hreinasta þvottinum.
Þar eða þvottavirknin er mikilvægasti
eiginleiki vélanna fengu þær vélar sem ekki
gátu skilað hreinum þvotti sérstakan mínus.
Með því móti er girt fyrir að slíkar vélar geti
fengið háa og villandi meðaleinkunn vegna
góðrar útkomu í öðrum þáttum.
LG og Asko-vélar lentu í neðstu sætum
gæðakönnunarinnar vegna þess að þær
skiluðu þvottinum ekki hreinum.
Þvottur og þvottur....
Margar nýjar þvottavélar þvo ekki vel,
sérstaklega ef þær eru fylltar eins mikið
og ráðlagt er. Ástæðan er umhverfisvernd;
kröfur eru gerðar um minni notkun á
rafmagni og vatni en áður.
Engar vélanna í gæðakönnuninni hreinsuðu
sápuna alveg úr þvottinum. Ástæðan er sú
að framleiðendur takmarka vatnsrennsli til
að fá háa einkunn fyrir orkunýtingu. Til
þess að ná síðustu sápuleifunum þarf að
keyra skolkerfið aftur. Sumar vélar eru með
sérstakan takka til að vélin skoli sjálfvirkt
tvisvar og er sjálfsagt að nota hann.
Vatnsnotkun mun aukast um á bilinu 8–
32 lítra en rafmagnseyðsla sáralítið; innan
við hálfa kílóvattstund. Sápan minnkar og
hverfur að öllum líkindum. Skástum árangri
í skolun náði Ariston-þvottavél (AVL 145
SK).
En vélarnar þvo sennilega betur í
heimahúsum en á rannsóknarstofum. Fólk
fyllir vélarnar sjaldan af því þvottamagni
sem gefið er upp að þær geti tekið. Til
að koma ráðlagðri hámarksþyngd fyrir
Ódýrar þvottavélar hafa hátt
Fáar þvottavélar skola sápuna alveg úr þvottinum.
Ekki sjálfgefið að þekkt vörumerki séu best.
10 NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2008