Neytendablaðið - 01.04.2008, Page 12
Sérþarfir
Kannað var hversu gott notendaviðmót
þvottavélarnar höfðu, t.d. dæmis gagnvart
öldruðu fólki og fólki með sjónskerðingu
eða aðra fötlun. Allar vélarnar koma vel út
í þessum efnum. Ef fatlaðir, sjónskertir eða
hreyfihamlaðir eiga að nota þvottavélina
eru eftirfarandi atriði mikilvæg til athugunar
við kaup:
• Einföld og hagkvæm hönnun.
• Upplýstir eða stórir og greinilegir stjórn-
takkar.
• Gott bil milli stjórntakka.
• Þægilegt fyrir sitjandi manneskju að
setja í vélina og stjórna henni.
• Auðvelt fyrir manneskju með lélegt grip
að ná taki á stjórntökkum og höldum.
• Auðvelt að nota hurðina.
• Stjórntakkar séu snertitakkar.
Nýjungar á leiðinni
Þvottasiðir og þvottavélar eru að breytast.
Hingað til hefur verið algengt að það taki
þvottavél um tvær klst. að klára þvott við
40 gráðu hita. Ýmsir stórir framleiðendur,
t.d. Bosch, Indesit og Zanussi-Electrolux,
eru þessi misserin að setja á markað nýjar
gerðir þvottavéla sem þvo hratt við lægri
hita, t.d. 30 gráður. Föt notenda nú til dags
eru yfirleitt ekki skítug, bara með ögn af
svita, og kannski notuð einu sinni milli
þvotta og í þannig tilfellum geta þessar
nýju vélar hentað. Nýjar vélar af þessu tagi
frá Bosch eru allt að 45 mín. fljótari með
lághitaþvott en aðrar vélar.
Nauðsynlegt að sjóða
Ef alltaf er þvegið við lágan hita er hætta
á því að bakteríum fjölgi, óhreinindi sitji
föst í vélinni og vond lykt komi úr henni.
Þetta getur líka stafað af því að nýjar gerðir
þvottavéla nota minna vatn á kg. en áður
tíðkaðist, auk þess sem mild þvottaefni ráða
kannski ekki við óhreinindin. Lausnin er sú
að nota suðukerfið með reglulegu millibili.
Sumir ráðleggja fólki að nota þá í leiðinni
dálítið af bleikiefni eins og klóri. Gott er að
ljúka þessari aðgerð með því að láta vélina
skola eina umferð aukalega og þegar vélin
er ekki í notkun ætti hún að standa opin og
sápuskúffan einnig. Ef óviðkunnanlegt lykt
er komin af þvottinum er ráðlegt að leggja
hann í bleyti í hálftíma í fötu með vatni og
tveimur desilítrum af ediki. Athugið að þessi
meðferð getur haft áhrif á lit þvottarins.
ÞVOTTUR AÐRIR ÞÆTTIR NOTKUN
VÖRUMERKI GERÐ VERSLUN VERÐ
HEILDAR-
EINKUNN
Hrein-
þvottur,
40° bómull
Hrein þvottur,
40° EasyCare
Hrein-
þvottur
í heild Skol Tími
Þvottur
í heild Þeyti vinda
Orku-
nýting
Vatns-
notkun Hljóð
Hleðsla og
tæming
Sápu-
skúffa Við hald
Leiðbein-
ingar
Þægindi í
notkun
AEG L 54609 Elkó 64,995 3.8 4.1 5.1 4.5 1.8 3.6 3.9 3.2 4.1 3.8 3.3 4.0 4.0 3.5 4.0 4.0
Siemens
WM 14S
460 FG
Smith &
Norland 97,464 3.8 2.3 3.0 2.3 3.3 5.5 2.3 3.3 4.2 4.1 3.5 3.8 4.2 3.9 4.6 4.1
Candy AQ 1000 Elkó 49,995 3.5 2.9 2.9 2.9 1.0 0.5 2.3 2.7 4.0 3.9 2.5 3.4 3.3 3.4 4.1 3.7
Gorenje WA 73141 Rönning 89,900 3.3 5.3 4.4 5.0 1.4 4.0 4.2 3.1 3.3 3.7 2.5 3.8 3.8 3.7 4.3 4.0
ASKO W 6132 Fönix 99,800 3.2 2.6 4.5 3.4 0.7 5.2 3.0 2.4 4.2 3.6 2.4 3.3 3.3 3.5 3.9 3.6
Candy GO4 1264D Elkó 54,995 3.2 2.6 3.1 2.8 2.6 5.5 3.0 3.4 3.5 3.6 2.4 3.8 3.2 3.0 3.6 3.7
Gorenje WA 50120 Rönning 54,900 3.2 3.4 4.9 4.0 2.7 2.1 3.5 3.4 3.8 3.6 2.9 3.4 3.9 3.6 4.0 4.0
Blomberg WAF 7340 A Elkó 59,995 3.1 4.4 4.7 4.5 1.6 3.7 3.9 3.2 3.5 4.1 2.3 3.7 4.1 3.7 3.8 3.9
Á rannsóknastofunni voru brúnir tilraunastrimlar
úr bómull og pólýester óhreinkaðir með barnaolíu,
blóði, bleki og fleiru. Margir strimlar voru settir í
hverja þvottavél og hún síðan fyllt með taui svo að
þvotturinn næði ráðlagðri þyngd.
©ICRT og Neytendasamtökin 2008. Gefin er einkunn á kvar›anum 0,5-5,5 flar sem 0,5 er lakast og 5,5 best og einkunnin 3,0 er um mi›jan kvar›ann.
Miele 85
ASKO Vølund 61
AEG 57
Siemens 51
Bosch 38
Bauknecht 34
Electrolux 32
Gorenje 28
Whirlpool 27
Zanussi 23
Blomberg 22
Zanussi 93
Miele 92
Electrolux 91
Siemens 89
Bosch 88
AEG 87
Whirlpool 86
ASKO Vølund 83
Gorenje 78
Blomberg 76
Bauknecht 76
Vörumerkin sem
mælt er með
Hlutfall notenda sem mæla með
vörumerki þvottavélar sinnar við aðra
(í %).
Endingarbestu
merkin
Hlutfall þvottavéla sem voru keyptar
síðan 2004 og hafa ekki farið í viðgerð
(í %).
Heimild: Forbrugerraadet / Tænk, Danmörku.
12 NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2008