Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.2011, Page 18

Neytendablaðið - 01.09.2011, Page 18
Félagsmaður hafði samband og vildi hrósa verslunum sem hafa til taks svokallaðar tvíburainnkaupakerrur. Konan, sem á tvö lítil börn, 2 og 3 ára, segist iðu lega lenda í vandræðum í verslunum þar sem ein ungis er boðið upp á hefðbundnar kerrur. Til tekur kon an nokkrar verslanir sem bjóða upp á tvíbura inn kaupa kerrur en þær eru Bónus í Ögur hvarfi, Ikea og Fjarðarkaup. Margir komast ekki hjá því að taka börnin með í búðina og því er það góð þjónusta hjá matvöru versl unum að hafa til taks innkaupa kerru sem rúmar tvö börn. Með börnin að versla Á vefsíðunni túristi.is má finna ýmsar upplýsingar um ferðamál. Á síðunni segir m.a. frá því að á Leifsstöð sé öllum farþegum gert að fara úr skóm við öryggisleit en slíkt sé ekki venja á flestum flug­ völlum í nágrannalöndunum. Ástæða þessa stranga eftirlits hér á landi mun vera sú að bandarískir farþegar fara í gegnum sömu öryggis leit og aðrir en skv. bandarískum reglum er gert ráð fyrir handa hófskenndri leit í skóbúnaði farþega á leið vestur um haf. Leitin í Leifsstöð er þó ekki handahófskennd því hingað til hefur öll um verið gert að fara úr skóm með tilheyrandi veseni. Lengi vel var ekki einu sinni boðið upp á stóla þannig að fólk gæti sest á með an það reimaði aftur á sig skóna. Samkvæmt könnun á turisti. is telja 75% aðspurðra að öryggisreglur um skóbúnað eigi ekki að vera strangari í Leifsstöð en í flugstöðvum nágrannaríkjanna. Túristi.is hefur einnig tekið saman upplýsingar um stundvísi flug­ félag anna Icelandair og Iceland Express. Nýjustu tölur sýna að bæði flug félögin hafa bætt sig og var stundvísi Icelandair með besta móti en Iceland Express á enn nokkuð í land. Öryggisleit og seinkanir flugfélaga Í framhaldi af ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að óheimilt sé að forverðmerkja matvörur svo sem kjöt og osta hefur það færst í vöxt að kjötiðnaðarstöðvar staðli þyngdir á vörum sínum. Þetta á meðal annars við um niðursneitt álegg og pylsur. Neytendasamtökunum hafa borist efasemdir frá neytendum um að þetta sé ekki mögulegt og að ekki geti verið um nákvæma vigtun að ræða. Það mun víst einfalt að staðla þyngd og minnt er á að vogir eiga að vera löggiltar. Nýleg könnun Neytendastofu leiddi hins vegar í ljós að nokkuð er um ónákvæma vigtun. Mikilvægt er því að hafa eftirlit með þessum markaði. Er hægt að staðla þyngd á kjötvörum? 18 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2011

x

Neytendablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.