Litli Bergþór - 01.06.2013, Síða 32
32 Litli-Bergþór
um kvöldið. Chevrolet bifreiðin lá beint út frá
fljótsbakkanum og stóð á hjólunum. Hafði hún lent í
dálítilli gjótu og skorðast og hallaðist töluvert. Þarna
er þriggja til fjögurra metra dýpi, en rétt við hliðina er
dýpið miklu meira. Einungis metersdýpi var niður á
bílinn þar sem hann var skorðaður að sögn blaðamanns
Morgunblaðsins svo gera má ráð fyrir að
efsti hluti hans hafi verið á þessu dýpi.
Um klukkutíma síðar er Ársæll
búinn að græja sig upp og kafa niður að
bílnum. Líkin þrjú voru öll í aftursæti
bifreiðarinnar og festi Ársæll fyrst
taug í Guðrúnu Valgerði og var hún
dregin að landi. Þar er hún lögð í kistu
og borin upp að bíl þar sem læknarnir
skoða líkið. Ársæll batt næst taugina um
lík Guðrúnar Lárusdóttur og að lokum
utanum lík Sigrúnar dóttur hennar. Báðar
voru þær dregnar að landi og lagðar
í kistu áður en þær voru bornar upp
að bílnum til skoðunar líkt og Guðrún
Valgerður. Líkin reyndust ósködduð og
voru þau því næst flutt til Reykjavíkur.
Gerð var tilraun til að ná bílnum einnig
upp en það tókst því miður ekki þar sem
aðstæður þóttu of erfiðar. Var bifreiðin dregin upp
tveim dögum síðar til frekari rannsóknar.
Guðrún Lárusdóttir
Móðirin í bílnum hét Guðrún Lárusdóttir og var
mönnunum í vegavinnutjöldunum sennilega vel
kunn. Hún fæddist 8. janúar 1880 á Valþjófsstað í
Fljótsdal, dóttir Lárusar Halldórssonar (1851-1908)
alþingismanns og prests og konu hans Kirstínar
Katrínar Pétursdóttur Guðjohnsen (1850-1940)
húsmóður, dóttur Péturs Guðjohnsens alþingismanns.
Hún giftist Sigurbirni Ástvaldi Gíslasyni (1876-1969)
27. júní 1902 og eignuðust þau saman börnin Lárus
(1903), Halldór (1905), Kristínu Guðrúnu (1906),
Gísla (1907), Kristínu Sigurbjörgu (1909), Friðrik
Baldur (1911), Kirstínu Láru (1913), Guðrúnu Valgerði
(1915), Sigrúnu Kristínu (1920) og Gústaf (1924).
Ekki nóg með það heldur var hún rithöfundur, sem
ekki var algengt hjá konum á þessum tíma. Guðrún var
fátækrafulltrúi í Reykjavík 1930—1938. Húsmóðir
og rithöfundur og samdi skáldsögur og smásögur
og sat í bæjarstjórn Reykjavíkur 1912—1918. Hún
var landskjörinn alþingismaður 1930—1934, önnur
konan á eftir Ingibjörgu H. Bjarnason, landskjörinn
alþingismaður í Reykjavíkurkjördæmi 1934—1938
fyrir Sjálfstæðisflokkinn fyrst kvenna. Guðrún var
sömuleiðis mikill templari og um tíma formaður
K.F.U.K. og Kristniboðsfélags kvenna þar sem hún
tók við formennsku af móður sinni og móðursystur,
Önnu Thoroddsen.
Þegar Guðrún var kosin fyrst til setu í bæjarstjórn
Reykjavíkur var hún ekki í framboði heldur voru
einfaldlega allir kjörgengir. Guðrún nýtti sér hins vegar
undanþágu í lögum sem gerðu henni kleift að skorast
undan kjöri en sú undanþága var hugsuð heimilum til
varnar ef barnamæður áttu í hlut. Sú undanþága var
aftur á móti numin úr lögum á næsta þingi og þá gat
Guðrún ekki skorist lengur undan og hlaut þá kjör í
bæjarstjórnina.
Persónu Guðrúnar var hampað í umfjöllun dagblaða
um slysið. Þannig segir í Fálkanum:
Brekkan niður að Tungufljótsbrúnni. Krossinn sýnir hvar bíllinn rann nið-
ur í fljótið. Mynd úr dagblaðinu Fálkanum.
Uppdráttur af aðstæðum við Tungufljótsbrúna sem
birtur var í Morgunblaðinu 23. ágúst 1938.