Frjáls verslun - 01.07.2006, Blaðsíða 94
94 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6
K
Y
N
N
IN
G
HAUSTIÐ ER TÍMINN
Eignaumboðið:
Hús á Spáni er góð fjárfesting
Áhugi fólks á fasteigna-kaupum á Spáni er mik-ill og fer stöðugt vax-
andi. Um leið og íbúðarhúsnæði
hefur hækkað hefur eigið fé fólks í
húsnæðinu hækkað, svo að margir
geta keypt sér annað hús og velja þá
oft að kaupa hús í öðru landi og í
hlýju loftslagi. Spánn er vinsælasta
landið sé fólk í slíkum húsakaupa-
hugleiðingum, enda aðstæður þar
mjög hagstæðar fyrir kaupendur,“ segir Aðalheiður Karlsdóttir hjá
Eignaumboðinu.
Margir eru að velta fyrir sér hvort þeir eigi að kaupa sumarbústað í
sveit eða hús á Spáni og nú er svo komið að Spánarhúsið reynist oftar
en ekki ódýrara en íslenski sumarbústaðurinn. Auðvelt er að fá raðhús á
Spáni fyrir 14 til 15 milljónir en sumarbústaðir eru iðulega seldir á um
og yfir 20 milljónir. Við þetta bætist að húsnæðið á Spáni er hægt að
leigja út hluta úr ári til að standa straum af afborgunum. Fjármögnunin
er einnig auðveld á Spáni þar sem menn fá allt að 80% lán með aðeins
4,3% vöxtum og ekki hrellir verðtrygging menn þar syðra.
Kaupendahópurinn er alltaf að stækka og verða fjölbreyttari, en
Eignaumboðið hefur selt hús og íbúðir á Spáni í 10 ár. Mikill áhugi
á húsakaupum er hjá fyrirtækjum sem geta umbunað góðum starfs-
mönnum með því að gefa þeim kost á að gista í góðu húsi í sumarfríinu
og það þarf ekki endilega að vera yfir hásumarið sem gerir rekstur
fyrirtækjanna auðveldari þegar menn taka sér frí á ýmsum og ólíkum
tímum.
Fjárfestar áhugasamir
„Fjárfestar hafa einnig sýnt mikinn áhuga á fasteigum á Spáni. Eftir
góðærið í byggingariðnaði undanfarin ár hefur hægt á öllu hér heima og
menn eru farnir að leita á önnur fjárfestingarmið. Þá er Spánn nokkuð
öruggur kostur því auðvelt er að fá spænska banka til að aðstoða við
fjármögnun. Góð ávöxtun getur fengist á eigin fé með þessu móti þar
sem húsnæði hefur verið að hækka um 15% á ári og gert er ráð fyrir
að hækkanirnar haldi áfram vegna stöðugrar eftirspurnar og stækkandi
markaðar. Fjárfestar velja gjarnan að festa sér húsnæðið á meðan það
er enn á teikniborðinu. Með því móti er verðið fastsett og hækkar ekki
fram að þeim tíma þegar gengið er frá fyrstu greiðslum. Að sjálfsögðu
þarf alltaf að velja eignina vel sem keypt er, staðsetningu og annað sem
skiptir máli, en við höfum frá byrjun lagt áherslu á að bjóða einungis
það besta,“ segir Aðalheiður sem er ein þriggja löggiltra fasteignasala hjá
Eignaumboðinu. Þess má geta að Euromarina, sem Eignaumboðið á
viðskipti við á Spáni, er með íslenskan starfsmann sem sér um frágang
mála fyrir Íslendinga, samninga og annað.
„Stór hópur traustra viðskiptavina er okkar besta auglýsing,“ segir
Aðalheiður og bætir við að margir hafi jafnvel keypt fleiri en eina eign
af Eignaumboðinu bæði til eigin nota og sem fjárfestingu. „Það myndi
ekki gerast nema fólk væri fullkomlega ánægt.“
Aðalheiður Karlsdóttir er löggiltur fasteignasali.
Raðhús í hverfinu Manuela. Því fylgir sérgarður og einnig
sameiginlegur sunlaugargarður.
Hús sem Euromarina hefur byggt og Eignaumboðið selur.
Eignaumboðið hefur átt
mjög gott samstarf við
Euromarina, spænska
verktakafyrirtækið sem
byggir húsin sem Eigna-
umboðið selur á Spáni.
Euromarina er meðal
virtustu fyrirtækja á
þessum markaði.
FV.07.06.indd 94 7.9.2006 13:00:32