Frjáls verslun - 01.07.2006, Síða 105
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6 105
Áslaug María Friðriks-dóttir, MSc. í vinnusál-fræði og framkvæmda-
stjóri Sjá ehf., var ein af stofn-
endum Sjá viðmótsprófana
ehf. árið 2001. Áslaug er einnig
varaborgarfulltrúi í Reykjavík
síðan í vor. Sjá hefur frá upp-
hafi notendaprófað fjöldann
allan af vefsíðum og hug-
búnað fyrir ýmis fyrirtæki en
notendaprófanir, úttektir og
mat á viðmóti vefja er það
sem fyrirtækið sérhæfir sig í.
Að auki hefur Sjá lagt áherslu
á að þeir sem halda úti vefjum
móti sér stefnu og framtíð-
arsýn svo að ná megi enn
betri árangri og býður upp á
ýmiss konar þjónustu þeim til
aðstoðar.
„Þegar Sjá var stofnað
vissu fáir hvert við vorum að
fara með þessari þjónustu og
ekki margir sem spáðu okkur
löngum lífdaga,“ segir Áslaug,
„en síðan þá finnst mér skiln-
ingurinn hafa aukist verulega á
mikilvægi þess að vefsíður séu
auðveldar í notkun ekki síður
en þær líti vel út og hafi upp
á eitthvað gagnlegt að bjóða.
Íslenskir vefir eiga samt ennþá
langt í land og stundum finnst
mér fyrirtæki vera ótrúlega sein
að taka við sér og nýta það sem
vefurinn getur fyrir þau gert.
Enn eru mörg fyrirtæki sem
taka þessi mál ekki alvarlega
og hjá fjölda fyrirtækja er vef-
urinn aðeins afgangsstærð og
vefumsjón er dembt á starfs-
menn sem hafa ekki tíma og
jafnvel engan áhuga á að skoða
þessi mál af alvöru.“
Innri vefirnir eru helsta
áhugamál Áslaugar: „Ég hef
fengið tækifæri til að koma að
þróun og gerð innri vefja nokk-
urra íslenskra stórfyrirtækja
og tel að þarna geti verið um
afar áhrifamikið tæki að ræða.
Bæði til að auðvelda upplýs-
ingaflæði og til að varðveita
öðruvísi þekkingu en hingað til
hefur verið skráð í skjalasöfnin,
þ.e. um aðferðir og ábendingar
sem skipta svo miklu máli til
að auka samvinnu milli starfs-
manna.“
Áslaug segist hafa numið
vinnusálfræði á sínum tíma
þar sem henni fannst það vera
mjög hagnýtt fag sem hún getur
staðfest nú. „Margir spyrja
hvort ég ætli ekkert að fara að
hagnýta mér menntun mína en
átta sig ekki á því að ég er að
því í mínu starfi. Einn þáttur
vinnusálfræðinnar eru sam-
skipti manns og tölvu og það
er einmitt það sem við hjá Sjá
erum alltaf að skoða. Með mér
starfar frábær hópur, flestir úr
sálfræði og mannfræði, verk-
efnin eru fjölbreytt og halda
okkur vel við efnið. Þjónusta
Sjá hefur aðeins breyst á síð-
ustu árum, við höfum reynt
að laga okkur að þörfum við-
skiptavina, vinnum hratt og
reynum að hafa sveigjanleik-
ann í fyrirrúmi – þó auðvitað
aldrei á kostnað gæðanna.“
Nafn: Áslaug María Friðriksdóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík, 20. júlí 1969.
Foreldrar: Friðrik Sophusson og Helga
Jóakimsdóttir.
Maki: Hjálmar Edwardsson.
Börn: Jóhanna Þórkatla Eiríksdóttir, 14
ára, Hjálmar Friðrik Hjálmarsson, 4 ára,
og Jóakim Hjálmarsson, 3 ára.
Menntun: Masterspróf í vinnusálfræði frá
University of Herfordshire í Englandi og
BA próf í sálfræði frá Háskóla Íslands.
FÓLK
Áslaug María Friðriksdóttir:
Einn þáttur vinnusálfræðinnar
eru samskipti manns og tölvu
og það er einmitt það sem við
hjá Sjá erum alltaf að skoða.
framkvæmdastjóri Sjá ehf.
ÁSLAUG MARÍA FRIÐRIKSDÓTTIR
FV.07.06.indd 105 7.9.2006 13:01:35