Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 27
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 27
Grensásvegi 3 • 108 Reykjavík
Sími: 520 9900 • Fax: 520 9901
Netfang: rts@rts.is • Netsíða: www.rts.is
araháskólinn og á Austfjörðum er í gangi eftirlit með rafmagns-
hluta Lagarfossvirkjunar ásamt Ufsastíflu og Hraunaveitu austan við
Snæfell.
Horft fram á veginn
RTS verkfræðistofa er í útrás og það hafa opnast ýmsir möguleikar
fyrir fyrirtækið, meðal annars í samstarfi við norska fyrirtækið
Alstom, en RTS hefur verið að hanna stjórnbúnað fyrir álverið Aluar
í Argentínu: „Sá samningur skiptir RTS verulegu máli,“ segir Brynjar:
„Ekki aðeins vegna verkefnisins og þeirra tekna sem því fylgir heldur
einnig til frambúðar þar sem við teljum að með þessu verkefni geti
opnast ýmsir fleiri möguleikar erlendis.“
RTS gerði samning við Alstom um nýtt verkefni við álver í Dubai.
Vinna RTS í þessu verki er umfangsmikil og þríþætt, hönnunar-
stjórnun á staðnum, hönnun á millispennubúnaði og lágspennudreif-
ingu og hönnun rafkerfis fyrir hreinsivirki.
Þá má geta þess að hér á landi hefur RTS unnið að mörgum verk-
efnum á Austurlandi meðal annars fyrir fiskvinnslufyrirtæki og sveit-
arfélög og er með starfstöðvar á Seyðisfirði og á Reyðarfirði.
Brynjar er bjartsýnn fyrir hönd RTS verkfræðistofu: „Fyrirtækið
er orðið átján ára og er góður stígandi í vexti þess. Fjölgun starfs-
manna hefur verið í takt við þá þenslu sem er í þjóðfélaginu og
hefur starfsmönnum fjölgað mest síðustu tvö árin og eru nú um
40 talsins. Okkar markmið er að horfa til lengri framtíðar og koma
fleiri stoðum undir reksturinn. Verkefnaöflun erlendis er liður í
þeirri skipulagningu. Við ætlum okkur að vera í stöðugri uppbygg-
ingu um leið og við höldum í það markmið að öll sú þekking og
reynsla sem RTS verkfræðistofan býr yfir nýtist viðskiptavinum
hennar á sem bestan og hagkvæmastan hátt.“
• Samfelld uppbygging á 18 árum.
• RTS hefur unnið fjölmörg erlend
verkefni. Núna eru stór verkefni í
gangi í Argentínu og í Dubai.
• RTS verkfræðistofa var fyrst
íslenskra verkfræðistofa á raf-
magnssviði til að fá faggilda
gæðavottun samkvæmt
ISO 9001:2000 staðlinum.
Lofthreinsivirkið í Dubai sem er í uppbyggingu. Smáraturninn í Kópavogi, hönnuðir: Arkís, Ferill
og RTS.
Þjónustukrani við ofn í anóðuframleiðslu frá
Lanzhou í Kína.