Frjáls verslun - 01.09.2006, Side 51
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 51
viku að fá vöru frá því við pöntum hana úr
vöruhúsi úti í Noregi þar til hún er komin í
verslunina hér heima. Það gefur okkur miklu
meiri möguleika til lækkunar vöruverðs að
geta flutt vöruna inn sjálfir. Ísland er bara
ekki lengur svona afskekkt eins og áður var,
sem betur fer.“
Finnst þér verslunarrekstur ennþá jafn-
skemmtilegur og áður fyrr?
„Ég hafði alltaf gaman af því að vinna
með ferskvöru en Europris er líka mjög
skemmtilegt verkefni. Ég er að vinna með
ungu og hressu fólki og það er ánægjulegt.
Við höfum verið að stækka búðirnar eftir
kröfu viðskiptavina okkar og fjölga þeim.
Það mun svo skýrast á næstu dögum hvar við
byggjum á Akureyri og við erum komnir með
lóð á Völlunum í Hafnarfirði. Ég á von á því
að Europris verði á öllum stærstu stöðunum
á Íslandi áður en langt um líður. Svo skiptir
auðvitað máli að vera með gott starfsfólk í
kringum sig. Ég hef verið heppinn með versl-
unarstjóra í búðunum og þeir vinna mjög
sjálfstætt, sjá sjálfir um að panta vörur í versl-
anirnar og passa að ekkert vanti. Gott starfs-
fólk skiptir miklu máli í svona rekstri.“
Mörg hundruð loftpressur seldar
Eru Íslendingar kaupglaðari en þeir voru?
„Ég held að fyrst og fremst sé breyting á
verslunarrekstri. Það eru reyndar meiri pen-
ingar í umferð en áður tíðkaðist en vöruverð
hefur lækkað umtalsvert og það hefur áhrif.
Við höfum til dæmis selt loftpressur í hundr-
aðavís því við getum boðið þær á svo ótrúlega
lágu verði. Það er náttúrlega vöruverðið
sem skiptir öllu máli þegar upp er staðið.
Fólk getur leyft sér að kaupa hluti sem það
dreymdi ekki um að geta keypt fyrir 20 árum
eða svo. Við seljum t.d. mikið í gegnum
Netið út á land og ég finn fyrir þrýstingi,
sérstaklega frá Akureyri, að koma þar upp
Europris-verslunum.“
Matthías brosir kankvís þegar blaðamaður
spyr hvort hann sé orðinn ríkur af þessum
rekstri.
„Nei, það get ég ekki sagt, en ég hef atvinnu
og sæmileg laun og það skiptir miklu máli
að vera að gera eitthvað sem maður hefur
gaman af. En ríkidæmi mitt liggur auðvitað
í því að ég á samhenta fjölskyldu; fjögur
börn og góða konu, Selmu Skúladóttur,
sem alltaf hefur staðið við bakið á mér eins
og klettur.
Ég finn fyrir mjög góðum móttökum
á markaðnum og það er gefandi. Ég er
bjartsýnn á framhaldið og sé fyrir mér að
efla þessar verslanir enn frekar á næstu
árum. Ég nýt mín vel í þessum rekstri,“
segir kaupmannssonurinn Matthías, en þeir
sem eru komnir til vits og ára muna eftir
honum sem smápjakk að afgreiða kjötfars
í Starmýrinni. Kaupmennskan hlýtur að
liggja í genunum!
Hjónin Matthías Sigurðsson og Selma Skúladóttir í nýju Europris-versluninni við Dalveg í Kópavogi sem opnuð var í síðasta mánuði.
Með þeim á myndinni er sonur þeirra, Davíð, og tengdasonurinn, Leifur Arason.