Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 63
skýr er sett niður á blað hverju þurfi að breyta fyrir
hvaða tíma og hver sé ábyrgur fyrir hverjum verkþætti
í umbótastarfinu. „Starfið byggist samkvæmt mínum
áherslum á virkum aðgerðum en ekki skýrsluskrifum,
eins og oft hefur viljað loða við ráðgjafastörf,“ segir
Páll og bætir við að algengt sé að starf hans með
hverju fyrirtæki spanni tólf til átján mánuði.
Þó að markviss stjórnun og stefnumótun séu
mikilvægir þættir í rekstri fyrirtækja verða þeir oft
afgangsstærð í önn rúmhelgra daga. „Margir telja
stefnumótun aðeins á færi sérfræðinga og óttast
vafstur, skýrsluskrif og háa reikninga frá ráðgjöfum.
Þessi hræðsla er slæm fyrir alla aðila og varð meðal
annars kveikjan að því að ég ákvað að skrifa þessa
bók, þar sem ég reyni að setja fram helstu og mik-
ilvægustu atriðin í stefnumótun og stjórnun á skýran
og aðgengilegan hátt,“ segir Páll, sem hefur unnið að
bókarskrifunum síðastliðin tvö ár.
Rekstur er töff
Páll segir mikla viðhorfsbreytingu hafa orðið í íslensku
atvinnulífi undanfarin ár. Fyrirtækin séu í sífellt ríkari
mæli markaðsdrifin eins og vera þurfi. „Það er mikil
hætta á ferðum þegar stjórnendur fara að ergja sig yfir
breyttum ytri aðstæðum og telja að þær öðru fremur
séu orsök erfiðleika í rekstri. Þannig má ekki hugsa.
Vissulega ráða ytri aðstæður miklu, en menn mega
ekki lifa í slíkum blekkinga heimi að kenna til dæmis
ríkisstjórninni um ófarir sínar. Rekstur er oft virkilega
töff og ef þú rekur fyrirtækið fyrst og fremst sem
hugsjónamaður verður sjálfsagt farið illa með þig. En
svona er heimur viðskiptanna. Hæfustu fyrirtækin,
sem leggja áherslu á að þekkja og uppfylla þarfir
markaðarins, ná lengst og þess njóta neytendur.“
Þú byggir kaflann um siðferði í viðskiptum meðal
annars á frásögn sr. Halldórs Reynissonar, sem
á ráðstefnu fyrir nokkrum misserum sagði
mikilvægt að ekki giltu önnur siðferðislögmál
í viðskiptalífinu en í tilverunni almennt. Er
raunin hins vegar sú?
„Í einhverjum tilvikum er það svo, eðlilega.
Engu að síður þarf fólk að vera samkvæmt
sjálfu sér. Það er ótrúverðugt ef maður er fullur
siðferðiskenndar í vinnunni og síðan allt annar
persónuleiki í einkalífi, eða heilagur fjölskyldufaðir
sem situr í sóknarnefnd, en veður í starfi sínu út fyrir
alla þá ramma sem viðskiptalífinu eru settir. Í hinu
fræga Enron-máli í Bandaríkjunum ánetjuðust menn
græðgi af offorsi, sem á sér varla hliðstæður. Það mál
var siðlaust græðgisflipp með afleiðingum sem allir
þekkja.“
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 63
„Margir telja stefnumótun
aðeins á færi sérfræðinga
og óttast vafstur, skýrslu-
skrif og háa reikninga frá
ráðgjöfum. Þessi hræðsla
er slæm fyrir alla aðila,“
segir Páll Kr. Pálsson, hér
með bókina góðu.
AÐ KOMA
REYNSLUNNI
TIL SKILA
„Heilagur fjölskyldufaðir
sem situr í sóknarnefnd,
en veður í starfi sínu út
fyrir alla þá ramma sem
viðskiptalífinu eru settir.“