Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 81
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 81
um þau tímamót. Þegar McCartney varð 64
ára í sumar var hann orðinn einn og yfirgef-
inn, hafði engan til að kveða til „will you
still need me“ og var nýbúinn að tilkynna
að fjögurra ára hjónabandi hans og Heather
Mills væri að ljúka, með fullu samkomulagi
þeirra beggja.
Fjölmiðlar hér vita sem
er að slíkt samkomulag
stendur yfirleitt ekki lengur
en báðir sjá sér hag í því og
sem betur fer fyrir fjölmiðla
og því miður fyrir hlut-
aðeigandi er gjarnan hægt
að stóla á að þegar frægt
fólk á í hlut sjái einhver sér
hag í að kjafta frá. Það hafði
lengi verið orðrómur um að hjónabandið
væri ekki hamingjuríkt, að börn hans af fyrra
hjónabandi álitu hana hafa gifst til fjár.
Það liðu líka aðeins nokkrar vikur þegar
ljóst varð að hjónin, sem voru ekki nógu
samlynd til að vera hjón, voru heldur ekki
nógu samlynd til að skilja í kyrrþey.
Myndir af Mills með litlu dótturina við
eitt af húsum þeirra hjóna þar sem hún var
lokuð úti – búið að skipta um skrár – flugu á
forsíður slúðurblaða. Var þetta liður í baráttu
um samúð eða náðist þetta bara á mynd af
því að ljósmyndarar voru statt og stöðugt við
húsið í von um gott myndefni?
Börn McCartneys Börn McCartneys og
aðrir nákomnir honum létu í veðri vaka að
Mills hefði ekkert sinnt eiginmanninum,
heldur stöðugt verið að vekja á sér athygli,
stundað góðgerðarstarfsemi í augliti fjöl-
miðla, en látið góðverkin heima eiga sig.
Heather missti annan fótinn upp að hné
í bílslysi árið 1993 og sú reynsla varð liður í
umsvifum hennar – þau Macca, gælunafn Sir
Pauls, kynntust í gegnum
góðgerðarstarf.
Góðgerðarstarfsemi er
ekki ný bóla í fjölskyld-
unni. Linda, eiginkona
McCartneys, sem lést á
besta aldri, var á kafi í
dýraverndunarsamtökum
og McCartney hefur
haldið star f i hennar
áfram – hjónaband þeirra
var eitt af þeim endingarbetri í poppgeir-
anum.
Bæði McCartney og Mills hafa unnið
fyrir PETA, mjög harðsnúin dýravernd-
unarsamtök. Forstöðukona þeirra heldur því
fram að sama hugarfar komi fram í fólki sem
borðar kjöt og rak nasista til að útrýma Gyð-
ingum – hvort tveggja sýni virðingarleysi
fyrir öðrum. Sumsé voru McCartney-hjónin
fyrr og nú samtaka um að styðja PETA.
Mills var lúxus-gleðikona Fjölmiðlar fundu
fleira en gremjuleg ummæli vina og vanda-
manna til að gorta af. Síðdegisblöðin viðr-
uðu sögusagnir um að sem ung hefði Mills
verið lúxus-gleðikona sem tók mörg þúsund
pund fyrir ástarfundi. Klámmyndir af Mills
og karlmanni voru grafnar upp og birtar.
ÞAR SEM ÁS TIN ENDAR
TAKA LÖGFRÆÐINGARNIR VIÐ
Lengi vel var
metupphæðin í
skilnaðarmálum þær
17 milljónir punda (2,2
milljarðar króna) sem
Karl Bretaprins greiddi
Díönu prinsessu við
skilnað þeirra 1996.
L U N D Ú N A P I S T I L L S I G R Ú N A R