Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 91
leiðandann Jerry Bruckeimer, en allt frá því þeir gerðu hina vinsælu
Top Gun fyrir tuttugu árum hafa þeir sent frá sér nokkrar stórmyndir
sem hafa gert það gott. Tony Scott og Denzel Washington þekkjast
vel og er Déjà vu þriðja kvikmyndin sem þeir gera saman, hinar eru
Crimson Tide og Man on Fire.
Déjà vu er sakamálamynd sem gerist í nútíð og fortíð. Wash-
ington leikur lögreglumann hjá FBI sem kemur að hryðjuverki þar
sem hundruð hafa látist, þar á meðal unnusta hans. Þegar hann
fær tækifæri til að fara aftur í tímann og reyna að koma í veg fyrir
hryðjuverkið hikar hann ekki þótt það geti kostað hann lífið.
Hermannsfjölskylda Sjö ára aldursmunur er á Ridley Scott og Tony
Scott. Ridley er fæddur 1937 og Tony 1944. Mikið flakk var á fjöl-
skyldunni þegar þeir bræður voru að alast upp þar sem faðir þeirra
var foringi í breska hernum. Eldri bróðir þeirra, Frank, fetaði í fót-
spor föður síns og gekk í herinn, en lést úr krabbameini 1980. Ridley
lærði hins vegar grafíska listhönnun sem leiddi til þess að hann fór
að starfa fyrir BBC, þar fékk hann áhuga á kvikmyndagerð og árið
1966 gerði hann sína fyrstu kvikmynd, stuttmyndina Boy and Bicycle
(1965) og lék bróðir hans, Tony, aðalhlutverkið, drenginn á hjólinu.
Faðir þeirra lék einnig í myndinni. Hann leikstýrði síðan í nokkur
ár hjá BBC og vann við eigið fyrirtæki áður en hann gerði fyrstu
kvikmynd sína í fullri lengd, The Duellists (1977), sem hlaut meðal
annars dómnefndarverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Í
einu aðalhlutverkanna þar var Albert Finney, sem leikur frændann í
A Good Year.
Tony fór í kjölfar bróður síns og skráði sig í listnám og ætlaði sér
að verða listmálari. Leið hans til kvikmyndanna lá í gegnum auglýs-
ingar, en fyrsta fyrirtæki þeirra bræðra var einmitt auglýsingafyrirtæki
KVIKMYNDIR RIDLEY OG TONY SCOTTS
sem óx jafnt og þétt og var um tíma eitt eftirsóttasta fyrirtækið í þeim
bransa. Á sama hátt og The Duellists Ridleys var fyrstu kvikmynd
Tonys í fullri lengd, The Hunger (1983), mjög vel tekið af gagnrýn-
endum en áhorfendur létu sig vanta. Báðir slógu þeir síðan í gegn
með kvikmynd númer tvö. Ridley gerði hina klassísku Alien (1979)
og Tony hina vinsælu Top Gun (1986), sem gerði Tom Cruise að stór-
stjörnu. Má segja að munurinn á þeim bræðrum sjáist strax í þessum
myndum, Ridley fór strax í hlutverk frumkvöðulsins á meðan Tony
hélt sig við vinsælar formúlur. Þannig hefur það alla tíð verið og Tony
Scott þurft að sætta sig við að vera í skugganum af Ridley Scott þegar
kemur að hinum listræna þætti.
Eitt sem er ólíkt með þeim bræðrum og tekið hefur verið eftir er
að í myndum Tonys eru oft löng kynlífsatriði, en slík atriði er varla að
finna í myndum Ridleys. Þegar Ridley var inntur eftir þessu sagði hann
einfaldlega: „Kynlíf er leiðinlegt nema verið sé að stunda það.“
Denzel Washington leikur FBI-löggu sem fer aftur til fortíðar til að
hindra hryðjuverk.
RIDLEY SCOTT
A Good Year (2006)
Kingdom of Heaven (2005)
Matchstick Men (2003)
Black Hawk Down (2001)
Hannibal (2001)
Gladiator (2000)
G.I. Jane (1997)
White Squall (1996)
1492: The Conquest of Paradise
(1992)
Thelma & Louise (1991)
Black Rain (1989)
Someone to Watch Over Me (1987)
Legend (1985)
Blade Runner (1982)
Alien (1979)
The Duellists (1978)
TONY SCOTT
Déjà Vu (2006)
Domino (2005)
Man on Fire (2004)
Spy Game (2001)
Enemy of the State (1998)
The Fan (1996)
Crimson Tide (1995)
True Romance (1993)
The Last Boy Scout (1991)
Days of Thunder (1990)
Revenge (1990)
Beverly Hills Cop II (1987)
Top Gun (1986)
The Hunger (1983)
Ridley Scott hefur leikstýrt 16 kvikmyndum á 28 árum og Tony
bróðir hans 14 kvikmyndum á 23 árum þannig að afköstin eru
nokkuð svipuð, en auk þessa hafa þeir framleitt fjöldann allan af
kvikmyndum og þar liggur samvinna þeirra. Meðal frægra leikara
sem hafa aukið hróður sinn til muna í kvikmyndum þeirra bræðra
má nefna Tom Cruise, Harrison Ford, Val Kilmer, Sigourney
Weaver, Geena Davis, Susan Sarandon, Brad Pitt og Russell
Crove.