Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2006, Page 79

Frjáls verslun - 01.11.2006, Page 79
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6 79 100 BESTU GRÆJUR ÁRINS 2006 Tímaritið PC World hefur útnefnt bestu græjur ársins í rúm 20 ár og er topp 100 listi þeirra yfir bestu vörurnar alger skyldulesning fyrir áhugamenn um allt sem snýr að tækninýjungum. Frjáls verslun skoðar hér þennan merka lista. 100 BESTU VÖRUR ÁRSINS 2006 TEXTI: KRISTINN JÓN ARNARSON • MYNDIR: ÝMSIR SKYLDULESNING TÆKNIÁHUGAMANNSINS: Þ ar er enda farið yfir víðan völl og ekki bara verið að leita að því tæki sem er með flest blikkandi ljós, heldur hugað að notagildi og gildir þá einu hvort varan er áþreifanleg eða í formi hugbúnaðar eða netþjónustu. Það er við hæfi nú í síðasta blaði Frjálsrar verslunar á árinu að líta yfir það besta sem borið var á borð fyrir tækniáhugamenn árið 2006. Blaðamenn PC World fá ábendingar um þúsundir stafrænna tækja og vefsíðna ár hvert sem allar eiga að vera „bestar á sínu sviði“ ef marka má framleiðendur og þá sem markaðssetja vörurnar. Flestar eru þessar fullyrðingar ansi langt frá hinu sanna, en engu að síður finnast ár hvert fjölmargar vörur sem án nokkurs vafa standa upp úr. Og þær eru allar hér á topp 100 listanum. Dæmt var út frá hönnun, frammistöðu og eiginleikum varanna, en ekki var sérstaklega dæmt út frá verði. Engu að síður var í sumum tilvikum ekki hægt að líta fram hjá því ef verð vöru var langt undir því sem keppinautarnir buðu. Jafn- framt var hverri vöru gefin sérstök einkunn fyrir áhrif á tækniheim- inn til að láta þær græjur sem skipta verulegu máli fyrir framþróun tækninnar njóta þess. Að endingu var svo tekinn saman heildarstigafjöldi og þannig raðað upp í 100 bestu vörur ársins. Nefna verður að listinn er gerður í Bandaríkjunum og því slæðast inn vörur sem fást ekki á Evrópumarkaði, en það er þó tekið fram við uppröðun græjanna í 50 efstu sætunum. Græjurnar má þó að sjálfsögðu kaupa á ferðum erlendis eða með aðstoð erlendra netverslana. Verð sem birt er í greininni er fengið hjá íslenskum verslunum eða er áætlað út frá verði vestanhafs að viðbættri tollálagningu og virðisaukaskatti við flutning til lands- ins. Nánari upplýsingar, tengla og ítarefni má finna í upprunalegri umfjöllun PC World á slóðinni find.pcworld.com/53158. 1. INTEL CORE DUO Fartölvu/borðtölvuörgjörvi (frá u.þ.b. 30.000 kr.; fæst í flestum helstu tölvuverslunum). Core Duo örgjörvinn frá Intel skilar öfl- ugustu fjölvinnslu sem nokkurn tímann hefur þekkst í fartölvum en er jafnframt ótrúlega sparneytinn, sem lengir líftíma rafhlaðanna. Core Duo örgjörvinn er svo góður að hann er ekki einungis lang- besti kosturinn fyrir PC fartölvur, heldur einnig fyrir nýjustu far- og borðtölvurnar frá Apple (sem geta nú keyrt Windows). Í haust kom svo á markað Core 2 Duo, sem er kröftugasti borðtölvuör- gjörvi sem hannaður hefur verið. Core Duo hefur veitt Intel umtalsvert forskot á fartölvumarkaðnum og þótt Athlon 64 X2 DualCore (sem er hér í næsta sæti á lista- num) sé verulega góður hefur framleiðandanum, AMD, ekki tekist að ná sömu gæðum í fartölvuörgjörvunum og Intel. 2. AMD ATHLON 64 X2 DUAL-CORE Borðtölvuörgjörvi (frá u.þ.b. 20.000 kr.; fæst í flestum helstu tölvuverslunum). Þetta var fyrsti borðtölvuörgjörvinn sem byggði á tvíkjarnatækni og var sá öflugasti þar til Intel gaf út Core 2 Duo örgjörvann í haust. Ef þið þurfið verulegt afl til að keyra kröfuhörð forrit og þurfið ekki að flakka um með tölvuna er X2 engu að síður frábær kostur. 3. CRAIGSLIST.ORG Smáauglýsingar á Netinu (að mestu leyti ókeypis). Nú er búið að stofna Craigslist í yfir 200 borgum um allan heim, enda ekki að furða, því að þessi smáauglýsingaþjónusta hefur sýnt hve hressilega TOPP 100 LISTINN • (1-50)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.