Frjáls verslun - 01.11.2006, Qupperneq 80
80 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6
100 BESTU VÖRUR ÁRSINS 2006
er smurt á smáauglýsingasölu dagblaðanna. Craigslist er ekki enn
kominn til Íslands, en þangað til er þetta frábær byrjunarreitur fyrir
Íslendinga sem eru að flytja til útlanda.
4. APPLE IPOD NANO
Tónlistarspilari (u.þ.b. 21.000 – 35.000 kr.; www.apple.is). Hér
fæst allt að 8 GB geymslupláss í örsmáu tæki sem engu að síður er
með pláss fyrir bjartan litaskjá. Nanó-inn á það til að rispast, en er
svalur engu að síður.
5. SEAGATE 160GB PORTABLE HARD DRIVE
Utanáliggjandi harður diskur (u.þ.b. 28.000 kr.; t.d. www.direct.
is). Þessi harði diskur var einn af þeim fyrstu til að nota svokallaða
PMR-tækni til að troða enn meira gagnamagni á lítið svæði. Annar
harður diskur frá Seagate sem nýtir PMR, Barracuda 7200.10 er
fyrsti harði diskurinn fyrir borðtölvur sem nær 750 GB markinu.
6. GOOGLE EARTH
Gervihnattaforrit (ókeypis; earth.google.com). Fréttastöðvar nota
Google Earth til að skoða átakasvæði í Írak, en við getum notað
það til að skoða hús nágrannanna eða ferðast til annarra heimshluta
í heimilistölvunni.
7. ADOBE PREMIERE ELEMENTS 2
Vídeóvinnsluforrit (u.þ.b. 7.500 kr.; www.adobe.com). Þetta öfl-
uga og örugga vídeóvinnsluforrit kostar um það bil einn áttunda af
verði stóra bróður, Premiere Pro, sem er forrit Adobe fyrir atvinnu-
menn í vídeóklippingum. Og það er svo vel hannað að maður sér
varla muninn á þessum tveimur.
8. CANON EOS 30D
Stafræn SLR myndavél (159.900 kr.; t.d. www.hanspetersen.is).
Hér býður Canon 8,2-megapixla myndavél sem inniheldur fjöl-
marga háþróaða eiginleika Canon EOS 5D, en á mun betra verði.
Þess myndavél stóð sig að auki einstaklega vel í gæðaprófunum PC
World.
9. YOUTUBE.COM
Vídeóvefur (ókeypis). Hér má finna myndskeið af öllum stærðum
og gerðum frá áhugafólki um allan heim og hægt er að senda inn
sitt eigið framlag án nokkurs kostnaðar.
10. APPLE BOOT CAMP
Ræsiforrit fyrir Makka (ókeypis; www.apple.com/macosx/boot-
camp). Þótt ótrúlegt megi virðast hefur Apple loksins gefið leyfi
fyrir því að keyra Windows-stýrikerfið á Makka með þessu ókeypis
forriti. Næst: Keyrum Mac OS stýrikerfið á Windows tölvum – eða
fylgjumst með svínum fljúga um himinhvolfið.
11. ADOBE PHOTOSHOP ELEMENTS 4
Myndvinnsluforrit (9.900 kr.; t.d. www.tolvulistinn.is). Nýj-
asta útgáfan af Elements er flottasta og öflugasta myndvinnslu- og
myndskipulagningarforrit sem fæst fyrir minni fjárhæð en 100.000
krónur (sem er verðið á Photoshop CS2 myndvinnsluforritinu fyrir
fagmenn).
VEFFYRIRTÆKI ÁRSINS
Yahoo hefur þróast langt umfram það að vera bara leitarvél, því
fyrirtækið hefur nú umbreytt sér í eitt mesta þróunarfyrirtækið á
Vefnum. Þetta má t.d. sjá á frábærum endurbótum á Yahoo Mail
(nr. 30) og Yahoo Maps (nr. 56), skynsamlegum yfirtökum á spenn-
andi veffyrirtækjum á borð við Del.icio.us (nr. 93) og Flickr (nr. 78)
og þróun Yahoo 360 vefsvæðanna og Yahoo Music Engine (nr. 73).
Google fær e.t.v. mun meiri athygli, en Yahoo hefur komið meiru í
verk upp á síðkastið.
1. SÆTI: Vara ársins:
Intel Core Duo
14. OG 18 SÆTI: Toshiba HD-A1,
fyrsti HD-spilarinn á markaðnum
og Sonos ZonePlayer 80.
6. SÆTI: Tjörnin,
Ráðhúsið og
Austurvöllur með
augum Google
Earth.