Fréttatíminn - 19.06.2015, Qupperneq 9
Siminn.is/spotify
MEÐ SPOTIFY RUNNING
ER TÓNLISTIN Í TAKT VIÐ
ÞIG – OG HJÁLPAR ÞÉR
AÐ KOMAST LENGRA
6
SPOTIFY PREMIUM ÁSKRIFT
SÍMANS
SNJALLPÖKKUM
ENDALAUST
B úast má við því að þúsundir Ís-lendinga, eða jafnvel tugþús-undir, leggi leið sína í miðbæ
Reykjavíkur í dag til að fagna hundr-
að ára kosningarafmæli kvenna.
Reykjavíkurborg hefur gefið
öllu sínu starfsfólki frí og eins
hefur ríkið hvatt atvinnurek-
endur til að gefa frí eftir há-
degi. „Kosningarétturinn er
sérstaklega mikilvægt skref
í kvenréttindabaráttunni því
þá fengu konur aðgang að lýð-
ræðinu og gátu þannig byrjað
að hafa raunveruleg áhrif inn-
an stjórnkerfis landsins,“ seg-
ir Fríða Rós Valdimarsdóttir,
formaður Kvenréttindafélags
Íslands. Hún hvetur fólk til
að fara niður í bæ, taka þátt
í hátíðarhöldunum og fagna þessum
merku tímamótum kvenréttinda.
Þingfundur skipaður aðeins
kvenþingmönnum
Sjálf ætlar Fríðar Rós að byrja dag-
inn í húsi Kvenréttindafélagsins að
Hallveigarstöðum. „Þaðan fer ég
á alþingi til að vera viðstödd sögu-
legan þingfundi sem skipaður verð-
ur aðeins kvenþingmönnum. Ég
mæli sérstaklega með opnu húsi
á Hallveigarstöðum og spennandi
dagskrá ungra, femínískara bylt-
ingakvenna í Ráðhúsinu. Hátíðar-
dagskráinni á Austurvelli
milli 4 og 5 ætla ég ekki að
missa af og þar mun ég líka
halda barátturæðu samkom-
unnar. Um kvöldið mun ég
ávarpa messu Kvennakirkj-
unnar áður en ég skunda á
Kítón tónleikana í Hörpu.“
Hátíðardagskráin
Á slaginu 12 hefst gjörning-
ur Gjörningaklúbbsins við
Perlufestina í Hljómskála-
garðinum, en það er högg-
myndagarður tileinkaður
brautryðjendum í höggmyndalist
úr röðum kvenna. Að loknum gjörn-
ingi verður gengið frá Perlufestinni
í Hólavallakirkjugarð þar sem for-
seti borgarstjórnar, Sóley Tómas-
dóttir, mun leggja blómsveig á leiði
Bríetar Bjarnhéðinsdóttur klukkan
13.30. Á eftir fylgja fjölbreyttir við-
burðir þangað til sjálf hátíðarat-
höfnin hefst á Austurvelli klukkan
16 þar sem Vigdís Finnbogadóttir
mun tala frá svölum Alþingishússins.
Eftir ávarpið verður afhjúpuð högg-
mynd af Ingibjörgu H. Bjarnason al-
þingismanni, fyrstu konunni sem var
kjörin til setu á alþingi, eftir Ragn-
hildi Stefánsdóttur myndhöggvara.
Klukkan 20 verður kvennamessa
Kvennakirkjunnar á Klambratúni og
klukkan 20.30 hefjast tónleikarnir
„Höfundur óþekktur“ í Hörpunni þar
sem höfundaverk kvenna verða flutt
af körlum.
Sjá frekari dagskrá á vefnum;
www.kosningarettur100ara.is
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Kvenréttindi Búist við fjölmenni í miðBorginni
Vigdís talar frá svölum
Alþingishússins
Það verður nóg um að vera í miðbæ Reykjavíkur af tilefni 100
ára kosningarafmælis kvenna í dag, föstudaginn 19. júní. Búast
má við margmenni í bænum þar sem bæði ríki og borg hafa
hvatt atvinnurekendur til að gefa starfsfólki frí frá hádegi. Fríða
Rós Valdimarsdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands, sem
mun halda barátturæðu á Austurvelli í dag, mælir með því að
fólk fagni þessum merku tímamótum og mælir hún sérstaklega
með dagskrá ungra byltingakvenna í Ráðhúsinu.
Flest öll bæjarfélög landsins hafa gefið út hátíðardagskrá af tilefni 100 ára kosningaréttar kvenna. Búist er við að fjöldi fólks
leggi leið sína í miðbæ Reykjavíkur í dag, föstudag, þar sem skipulögð dagskrá er frá klukkan 11 til 20. Sjálf hátíðarathöfnin
hefst klukkan 16 á Austurvelli þar sem Vigdís Finnbogadóttir mun tala frá svölum Alþingishússins. Myndin er frá Kvennafrídeg-
inum 24. október árið 1975, þar sem 25 til 30 þúsund manns, aðallega konur, komu saman. Mynd/Myndasafn Mbl.
Fríða Rós Valdi-
marsdóttir,
formaður Kven-
réttindafélags
Íslands
8 fréttir Helgin 19.-21. júní 2015