Fréttatíminn - 19.06.2015, Blaðsíða 15
ŠKODA Octavia G-TEC sameinar kosti metans og bensíns; þú nýtir íslenska orku og lækkar
eldsneytiskostnað um allt að 35%. Með tvo metantanka og einn 50 lítra bensíntank kemstu 1.330 km
án þess að fylla á og svo færðu líka frítt í stæði. Komdu og reynsluaktu ŠKODA Octavia G-TEC.
Þú kemst lengra en borgar minna
ŠKODA Octavia G-TEC
verð frá 3.420.000 kr.
G-TEC FYRIR
NÁTTÚRUNA
OG VESKIÐ
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is
Kosningaréttur kvenna víða um heim
K onur hafa sannar-lega þurft að berj-ast fyrir kosninga-
rétti sínum. Það er kannski
undarlegt til þess að hugsa
en aðeins eru 122 ár síðan
þau merku tímamót áttu sér
stað að konur í Nýja Sjálandi
urðu þær fyrstu í heiminum
til að fá kosningarétt. Finn-
land var fyrsta Evrópu-
landið til að leyfa konum
að kjósa en þar hafði verið
stofnað kvenréttindafélag
upp úr leshring sem nokkr-
ar konur höfðu stofnað til að
ræða bókina Kúgun kvenna
eftir John Stuart Mill. Kon-
ur í Sviss fengu hins vegar
fyrst að kjósa árið 1971.
Abdullah konungur í Sádi
Arabíu gaf út árið 2011 að
konur myndu fá að kjósa í
fyrsta sinn árið 2015, en
þær mega hins vegar ekki
keyra bíl. Fréttatíminn
hefur tekið saman hvaða ár
konur víða um heim fengu
kosningarétt.
1893 Nýja Sjáland
1902 Ástralía
1906 Finnland
1913 Noregur
1915 Ísland
1915 Danmörk
1917 Kanada
1919 Litháen
1918 Aserbaídsjan
1918 Eistland
1918 Ungverjaland
1918 Kirgistan
1918 Pólland
1918 Rússneska
sambandsríkið
1920 Bandaríkin
1920 Albanía
1920 Tékkland
1920 Slóvakía
1921 Armenía
1924 Mongólía
1924 Kasakstan
1927 Túrkmenistan
1929 Rúmenía
1929 Ekvador
1930 Tyrkland
1930 Suður-Afríka
1931 Spánn
1931 Sri Lanka
1931 Portúgal
1931 Chile
1932 Brasilía
1932 Taíland
1932 Maldive-eyjar
1932 Úrúgvæ
1934 Kúba
1935 Myanmar
1941 Panama
1943 Dómíníska
lýðveldið
1944 Frakkland
1944 Jamaíka
1944 Búlgaría
1945 Króatía
1945 Slóvenía
1945 Ítalía
1945 Indónesía
1945 Senegal
1945 Tógó
1945 Japan
1947 Kína
1950 Barbados
1950 Haítí
1950 Indland
1951 Saint Lúsía
1951 Antígua og
Barbuda
1951 Grenada
1951 Dominica
1951 Saint Vincent og
1951 Grenadines
eyjur
1951 Nepal
1952 Líbanon
1960 Kýpur
1960 Gambía
1960 Tonga
1961 Malaví
1961 Máritanía
1961 Rúanda
1961 Sierra Leone
1961 Búrúndí
1961 Bahamaeyjar
1962 Mónakó
1962 Alsír
1970 Andorra
1971 Sviss
1972 Bangladesh
1973 Bahrain
1974 Sólómon-eyjar
1974 Jórdanía
1975 Angóla
1975 Svarthöfðaeyjar
1975 Mósambík
1975 Vanatu
1975 Sao Tome
1975 Principle
1976 Tímor-Leste
1980 Írak
1984 Lichtenstein
1986 Mið-Afríkulýð-
veldið
1989 Namibía
1994 Óman
2003 Katar
2005 Kúveit
2006 Sameinuðu
arabísku
furstadæmin
Bókin Subjection of Women, eða Kúgun kvenna,
eins og hún heitir í íslenskri þýðingu, hafði mikil
áhrif á kvennabaráttu víða um heim. Hún er eftir
breska heimspekinginn John Stuart Mill þar sem
hann rökstuddi réttindi kvenna út frá nytjastefnu,
en talið er að bókin sé einnig skrifuð af Harriet
Taylor Mill sem John átti í ástarsambandi við.
Bókin kom út á frummálinu árið 1869.
Kate Sheppard er ein þekktasta baráttukona fyrir kvenréttindum á Nýja Sjálandi
og var það í kjölfar baráttu hennar sem konur í Nýja Sjálandi urðu fyrstar í heim-
inum til að fá kosningarrétt árið 1893. Hún prýðir 10$ seðilinn þar í landi.
Þjóðaratkvæðagreiðslur eru algengar
í Sviss og árið 1971 kusu karlmenn um
hvort konur mættu kjósa í almennum
þingkosningum. 24% karlmanna voru
því mótfallnir en 66% sögðu já, og
fengu konur í Sviss þá loks kosningar-
rétt. Hér er dæmi um auglýsingaplakat
fyrri tíma í Sviss.
Konur í Sádi
Arabíu mega enn
ekki kjósa og ekki
einu sinni keyra
bíl. Abdullah kon-
ungur gaf út fyrir
fjórum árum að
konur þar í landi
mættu kjósa
árið 2015 en það
hefur enn ekki
orðið raunin.
14 fréttaskýring Helgin 19.-21. júní 2015