Fréttatíminn - 19.06.2015, Qupperneq 61
NÝR BÆKLINGUR STÚTFULLURAF SPENNANDI TÖLVUBÚNAÐI
4BLS
Mögnuð HQ1600 heyrnartól frá Creative
snillingunum. Tilvalin í að skila sumarsmellunum í kristaltærum hljóm með þéttum bassa :)8.925
FERÐAHÁTALARI
2
DAGA
TILBOÐ
VERÐ ÁÐUR 1
1.900
2
LITIR
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
T ónlistarhátíðin Reykjavík Midsummer Music stendur nú yfir í Hörpu og nágrenni.
Hátíðin stendur fram á sunnudag
en þetta er í fjórða sinn sem hún er
haldin. Hátíðin, sem lýtur listrænni
stjórn Víkings Heiðars Ólafssonar
píanóleikara, hefur fyrir löngu
skipað sér sess sem einn skemmti-
legasti viðburður tónleikaársins
og hefur meðal annars unnið til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna.
Þema hátíðarinnar í ár er Imita-
tion og eftirhermur úr ýmsum
áttum verða áberandi í efnisskrá
sem geymir fjölmörg óvænt stefnu-
mót. Listin hermir eftir lífinu og
lífið hermir eftir listinni þangað til
enginn veit lengur hvort er hvað,
tónskáld og flytjendur herma mis-
kunnarlaust hverjir eftir öðrum
– en líka eftir fuglum, hvölum og
jafnvel moskítóflugum, og for-
tíð og nútíð mætast í gáskafullri
hermiröddun. Meðal annars verður
leikin tónlist eftir Bach, Stravinsky,
Schnittke, Crumb og Adams, auk
þess sem spunameistararnir Skúli
Sverrisson og Davíð Þór Jónsson
spinna sinn glóandi þráð í gegnum
alla hátíðina.
Eins og fyrri ár státar Reykjavík
Midsummer Music af sannkölluðu
einvalaliði spennandi hljóðfæra-
leikara af hinu alþjóðlega sviði.
Þar má til dæmis nefna japanska
fiðluvirtúósinn Sayöku Shoji, sem
heillaði hátíðargesti í fyrrasumar
og snýr nú aftur með Stradivarius-
fiðlu sína (sem eitt sinn var í eigu
sjálfs Napóleons).
Nánari upplýsingar um flytj-
endur, efnisskrá og miðasölu má
finna á vefsíðu hátíðarinnar, www.
reykjavikmidsummermusic.com.
M öskvi er að hluta til byggður á þátttöku áhorfenda, en þátt-taka áhorfenda hefur áður
verið mikilvægur hluti gjörninga Gjörn-
ingaklúbbsins, nú síðast á Listasafni
Íslands og í Kunsthistorisches Museum
í Vínarborg. „Það er gert ráð fyrir að
gjörningurinn taki um klukkustund og
það er hægt að koma og horfa einhvern
tímann á þeim tíma,“ segir Eirún Sigurð-
ardóttir frá Gjörningaklúbbnum. „Það er
ekki nauðsynlegt að vera frá byrjun til
enda, þó það sé auðvitað mesta upplif-
unin. Það er hægt að taka þátt í þessum
gjörningi, en bara ef maður vill,“ segir
hún. „Það er alveg hægt að vera passífur
áhorfandi, eða taka þátt. Engum er ýtt í
það að vera með. Gjörningurinn er undir
áhrifum af 100 ára afmælinu og einnig af
þeim sex upphafskonum sem eiga verk
í garðinum,“ segir Eirún. „Það leynast
þarna áhrif frá 100 ára tímabili.“
Gjörningaklúbburinn hefur verið starf-
ræktur frá árinu 1996 af þeim Eirúnu,
TónlisT Reykjavík MidsuMMeR Music í HöRpu í fjóRða sinn
Fiðla Napóleóns í Hörpu
Sayöku Shoji
HljóMskálagaRðuRinn gjöRninguRinn Möskvi
Gjörningaklúbburinn heiðrar
kvenfrumkvöðla á kosningaafmælinu
Gjörningaklúbburinn stendur fyrir
gjörningi, með þátttöku almenn-
ings, í höggmyndagarðinum
Perlufesti í Hljómskálagarðinum
í dag, 19. júní. Verkið sem nefnist
Möskvi, er unninn í samstarfi við
Listasafn Reykjavíkur og fluttur í
tilefni af 100 ára afmæli kosninga-
réttar kvenna og á árs afmæli
höggmyndagarðsins. Eirún Sigurð-
ardóttir, einn meðlima Gjörninga-
klúbbsins, segir verkið byggjast á
þátttöku almennings en segir þó
enga kvöð á gestum að taka þátt.
Gjörningaklúbburinn fagnar 20 ára afmæli á næsta ári.
Jóní Jóndóttur og Sigrúnu Hrólfsdóttur. Eirún
segir að þær hefðu ekki getað ímyndað sér
að vera enn að, tæpum tuttugu árum síðar,
en segir hún verkefnin vera misjöfn og marg-
breytileg. „Undirbúningur verkefnanna er
mjög mismunandi,“ segir hún. „Það getur
tekið allt frá einu ári og stundum er þetta hug-
detta sem er framkvæmd. Það var kannski
meira þegar við vorum að byrja. Í dag er þetta
lengra ferli. Okkur hefði ekki órað fyrir því
árið 1996 að þetta mundi endast í þennan
tíma og við erum enn að,“ segir Eirún. „Við
erum nýkomnar frá Genóa á Ítalíu þar sem
við vorum að frumflytja verk og fram undan
eru sýningar á Cycles hátíðinni í Kópavogi í
ágúst og stórt verkefni í Basel í Sviss, þar sem
við verðum með heila villu undir okkar verk,“
segir Eirún.
„Við erum ekki bara í gjörningunum, líka
útilistaverkum og listaverkum af öllum stærð-
um og gerðum, þó það hafi verið gjörningur-
inn sem sameinaði okkur í byrjun,“ segir
Eirún Sigurðardóttir listakona. Möskvi hefst
í Hljómskálagarðinum klukkan 12 í dag og
er fólki bent á að klæða sig eftir veðri. Allar
nánari upplýsingar um Gjörningaklúbinn má
finna á heimasíðunni www.ilc.is
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
60 menning Helgin 19.-21. júní 2015