Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.06.2015, Síða 71

Fréttatíminn - 19.06.2015, Síða 71
Við Ævar erum gömul bekkjarsystkin og vorum meira að segja kærustupar í gamla daga.  Sjónvarp nýr Spurningaþáttur á dagSkrá rÚv í jÚní Gettu betur og Útsvarið í eina sæng RÚV mun í lok mánaðarins sýna spurningaþátt þar sem sigurliðunum úr Útsvari og Gettu betur verður att saman í einhverskonar blöndu af báð- um þáttum. Sigurlið Menntaskólans í Reykjavík úr Gettu betur mun þá mæta sigurliði Reykjavíkur sem hef- ur unnið Útvarið undanfarin tvö ár. Þátturinn verður í umsjá þeirra Björns Braga Arnarssonar og Þóru Arnórsdóttur sem hlakka til. „Ég veit voðalega lítið um þetta ennþá en ég er sannfærð um að þetta verður mjög skemmtilegt, engin hætta á öðru,“ segir Þóra. Gettu betur lið MR mun þurfa að fara í leikþrautina á meðan Útsvarsl- ið Reykjavíkur mun þurfa að svara hraðaspurningum. Þannig munu þættirnir blandast saman meðal annars. Stefán Pálsson mun semja spurningarnar og Sveinn Guð- marsson verður dómari. Þátturinn er fyrirhugaður á dagskrá RÚV 26. júní næstkomandi og er aðeins einn þáttur fyrirhugaður. Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, segir að þessi hugmynd hafi komið upp í vor. „Við ákváðum bara að kýla á þetta enda er sumarið tíminn til að slá hlutun- um upp í lauflétt grín og hæfilegt kæruleysi. Eins og stemmningin í þættinum verður... þótt liðin séu vissulega skipuð brjáluðu keppnis- fólki sem efalaust mun leggja allt í sölurnar.“ -hf Þóra Arnórsdóttir og Björn Bragi Arnarsson stýra þætti þar sem sigurliðum Gettu betur og Útvars verður att saman. Birna Hjaltalín og Pálmi Gestsson, pabbi hennar, á frumsýningu Albatross fyrir vestan á dögunum. Þau leika bæði í myndinni.  Bíó Birna Hjaltalín pálmadóttir leikur í kvikmyndinni alBatroSS Birna Hjaltalín Pálmadóttir þreytir frumraun sína í leiklist í kvik- myndinni Albatross sem frumsýnd var í vikunni. Þar leikur hún meðal annars með stórleikaranum Pálma Gestssyni – pabba sínum. Birna er ánægð með útkomuna en kærasti hennar í myndinni var kærasti hennar í gamla daga. É g var með stóran hnút og feitan í maganum á frumsýningunni en þetta var bara allt í lagi. Ég var sátt við útkomuna, þeir létu mig líta ágætlega út,“ segir Birna Hjaltalín Pálmadóttir. Birna er einn leikara í kvikmyndinni Albatross sem frumsýnd var í vikunni. Þetta er í fyrsta skipti sem Birna leikur en hún á reyndar ekki langt að sækja hæfi- leikana, hún er dóttir hins kunna leikara Pálma Gestssonar sem jafnframt leikur í myndinni. Í Albatross segir af Tómasi sem leggur framtíðarplönin á hilluna og eltir kærustu sína vestur á firði þar sem hann ræður sig í sumarvinnu hjá Golfklúbbi Bolungar- víkur. Þar kynnist hann ýmsum kynleg- um kvistum, til að mynda afar metnaðar- fullum yfirmanni sem leggur allt undir til að fá stórmót á golfvöllinn í Bolungarvík. Tómasi líst ekki beint á blikuna en lætur sig þó hafa þetta fyrir ástina. Hann verður því ekki par hrifinn þegar í ljós kemur að hann er ekki órjúfanlegur hluti af fram- tíðarplönum kærustunnar. Birna leikur kærustu Tómasar en það er Ævar Örn Jóhannsson sem leikur Tóm- as. Pálmi Gests leikur hinn afar metnað- arfulla yfirmann Tómasar á golfvellinum. Myndin var tekin upp í Bolungarvík og flestir sem komu að henni eru þaðan eða tengdir bænum. „Þetta er Víkaramynd. Við Ævar erum gömul bekkjarsystkin og vorum meira að segja kærustupar í gamla daga,“ segir Birna og hlær. Leikstjóri Albatross er Snævar Sölva- son og þetta er hans fyrsta mynd. Eftir- vinnsla myndarinnar var fjármögnuð í gegnum Karolina Fund og mun hún vera fyrsta leikna kvikmyndin sem fjármögn- uð er í gegnum síðuna. „Snævar spurði mig bara hvort ég væri til í að taka mér smá hlutverk og ég sagði bara já enda er alltaf gaman að prófa eitt- hvað nýtt,“ segir Birna um þessa frum- raun sína í leiklist. Hún hefur þó verið viðriðin kvikmyndir áður, vann bæði að kvikmynd eftir Lýð Árnason og kvik- mynd Rúnars Rúnarssonar, Þrestir, sem tekin var fyrir vestan í fyrra. „Annars er ég í fjarnámi í sálfræði við HA og á þrjá stráka sem ég er í kapphlaupi um að sinna sem best. „Svo er ég að byrja með smá ferðaþjónustu í litlu húsi sem við maður- inn minn vorum að kaupa og hef verið að „gæda“,“ segir Birna þegar hún er spurð um dagleg viðfangsefni sín. Hvernig var svo að leika á móti pabba gamla? „Það var ótrúlega skemmtilegt að fá að vera í mynd með honum þó ég hafi nú ekkert leikið á móti honum. Það kemur kannski einhvern tímann. Það var sannar- lega gaman að sjá hann vinna vinnuna sína. Svo var þetta auðvitað frábært fólk sem var að vinna að þessari mynd og frá- bær stemning í hópnum.“ Hvað segir þitt heimafólk um myndina og þína frammistöðu? „Það voru allir mjög ánægðir og ég hef verið kölluð stórstjarna og fleira í búðinni og sundlauginni. Þetta eru stór komment og ég bara roðna og blána. Hér erum við auðvitað á heimavelli og allir þekkja alla en fólk er rosa sátt,“ segir Birna sem nú er komin til Reykjavíkur í stutt frí. Hún ætl- ar einmitt að nota tækifærið og sjá mynd- ina aftur – í stórum bíósal og er forvitin að sjá viðbrögð hlutlausra. „Ég lauma mér inn í salinn svo enginn þekki mig,“ segir hún og hlær. Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Kölluð stórstjarna meðal heimamanna í Bolungarvík Barnadagur í Viðey á sunnudag Bríet blómálfur og Skringill skógarálfur bjóða gesti Viðeyjar velkomna á náttúru- jógasýningu sunnudaginn 21. júní klukkan 13.30. Tilefni sýningarinnar er að Skringill er í vandræðum. Hann þarf á hjálp sem flestra að halda. Bríet kann nokkur ráð, jógadýrin fleiri og amma Bríetar lumar á einhverju í pokahorninu. Allt virkar þetta betur ef allir sem koma hjálpa til. Eina sem þarf að gera er að greiða í ferjuna og koma út í Viðey. Mælt er með því að fólk taki með sér teppi til að sitja á og koma sér þægilega fyrir á grasinu, hægra megin við Viðeyjarstofu. Sama dag er barnadagur í Viðey og því frítt að taka þátt í öllum viðburðum á eyjunni. Stórskemmtileg skemmtun fyrir börn og fullorðna. Prins Póló á Norðurlandi Norðanmenn og -konur eiga góðar stundir í vændum því hljómsveitin Prins Póló heldur tvenna tónleika þar um slóðir um helgina. Í kvöld, föstudagskvöld, verður sveitin á Kaffi Rauðku á Siglufirði og á laugardaginn á Græna hattinum á Akur- eyri. Aðalmaðurinn í Prins Póló er sem fyrr Svavar Pétur Eysteinsson en hina konunglegu hirð skipa þau Kristján Freyr Halldórsson, Berglind Häsler, Benedikt Hermann Hermannsson og Axel Árnason. Prins Póló hyggst leika sín allra bestu lög á tónleikunum fyrir norðan sem hefjast báðir klukkan 22. Blur á íslensku Útvarpsmaðurinn og skemmtikrafturinn Freyr Eyjólfsson sagði frá því á facebook síðu sinni í vikunni að hann hefði skellt sér á tónleika með með bresku sveitinni Blur í Zenith höllinni í París í vikunni. Það sem telst til tíðinda er að á meðan Blur fluttu lagið To The End birtist á risaskjá setningin „Ástin er best“, já á íslensku. Damon Al- barn hefur því enn ekki læknast af Íslands- bakteríunni sem hann fékk á seinni hluta tíunda áratugarins. Hljómsveitin Of Monsters and Men fer vel af stað með aðra plötu sína, Beneath the Skin. Platan kom út í síðustu viku og skaust beint í þriðja sæti Billboard-metsölulist- ans í Bandaríkjunum. Samkvæmt upplýsingum frá Records Records, útgefanda sveitarinnar á Íslandi, seldust 61.000 eintök af plötunni í síðustu viku, og þar af voru 57.000 heilar plötur. Þetta er besti árangur sveitarinnar á Billboard- listanum og flest seldar plötur á einni viku fyrir sveitina til þessa. Fyrsta plata OMAM, My Head Is an Animal, sem kom út árið 2012 utan Íslands náði hæst í 6. sæti listans með 55.000 eintök seld. OMAM í þriðja sæti á Billboard 70 dægurmál Helgin 19.-21. júní 2015 kauptúni 3 | sími 564 4400 | vefverslun á www.tekk.is Opið mánudaga–laugardaga kl. 11-18 og sunnudaga kl. 13-18 ÚTSALA! 20–60% AfSLáTTur Af öLLum vörum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.