Ægir - 01.02.2001, Síða 31
anna 4 klst, en aðra 30 mínútur.
Merkin voru forrituð þannig að
helmingur þeirra gat mælt í hálft
ár, hinn helmingurinn í tæpt ár.
Endurheimtur merkja
Í lok árs 2000 höfðu 35 rafeinda-
merki fengist aftur (56% heimt-
ur). Þau veita miklar upplýsingar
um lifnaðarhætti skarkolans,
einkum á tímabilinu frá apríl til
ágúst. Skráningardagar fyrir dýpi
á tímabilinu apríl-desember 1998
eru alls 3400, auk 4800 skráning-
ardaga fyrir hitastig frá apríl 1998
til mars 1999. Bilun í dýpisnema
merkja olli því að engar skráning-
ar fengust á dýpi seinni hluta
vetrar.
Atferli á hrygningartíma
Skráningar rafeindamerkja í apríl
sýna greinilegan mun á hegðun
kynja á hrygningarslóð. Á 2.
mynd eru dýpisferlar 6 hrygna og
6 hænga bornir saman. Hrygn-
urnar héldu sig oft á sama dýpi
svo dögum skipti. Á ferlum
hrygna kemur sveifla sjávarfalla
vel fram sem hlykkjóttur ferill,
sem bendir til þess að þær hafi að
mestu verið botnlægar. Þó koma
öðru hverju fram allt að 100 m
breytingar á dýpi, sem geta stafað
af ferðum upp í sjó (tindar á
ferlunum) eða ferðum upp og nið-
ur kanta. Dýpisferlar hænga eru
ólíkir ferlum hrygna að því leyti
31
F I S K I R A N N S Ó K N I R
0
50
100
150
200
35886 35891 35896 35901 35906 35911 35916
Hængar _
0
50
100
150
200
35886 35891 35896 35901 35906 35911 3591
Hrygnur _
2. mynd. Dýpisferlar 12 skarkola á hrygningartíma í apríl 1998. Hver ferill sýnir dýpi
fyrir einn kola. Hér eru sýndar mælingar með 4 klst. millibili.
D
ýp
i (
m
)
D
ýp
i (
m
)
1. apríl 6. apríl 11. apríl 16. apríl 21. apríl 26. apríl 1. maí
1. apríl 6. apríl 11. apríl 16. apríl 21. apríl 26. apríl 1. maí
Lengsta samfellda skráningin sem fengist
hefur úr merkingum á Flákakanti gaf 9 mán-
aða feril hitastigs og dýpis. Það merki var
borið af 39 cm hæng sem veiddist á Vest-
fjarðamiðum í ágúst 1999. Hitastig í um-
hverfi kolans var líkt og búast má við á
grunnslóð vestan Íslands. Sjávarhitinn var
um 2°C í byrjun apríl, hækkaði síðan jafnt
og þétt um sumarið og náði 9°C í byrjun
september. Vetrarkólnun hófst ekki að marki
fyrr en um miðjan október og í lok desember
var sjávarhitinn um 5.5°C.
Dýpisskráningum kolans má skipta í 4
hluta. Á hrygningartíma frá apríl fram í miðj-
an maí heldur kolinn sig einkum á 60-100 m
dýpi og dýpisbreytingar eru tíðar. Seinni
hluta maí grynnkar kolinn stöðugt á sér og
líklega er hann þá í göngum til fæðuslóða. Í
lok maí er kolinn á um 50 m dýpi og segja má að hann haldi
sig á því dýpi allt fram í miðjan nóvember. Allt sumarið og
haustið er kolinn mjög botnlægur og nær ekkert verður vart
við ferðir upp í sjó. Um miðjan nóvember verður breyting á
atferli kolans og má þá sjá nokkra tinda á ferlinum sem
benda til ferða upp í sjó. Líklega markar þessi breyting á at-
ferli lok aðal fæðuöflunartímans.
Lengsti ferillinn
0
20
40
60
80
100
35886,2 35917 35947,8 35978,7 36009,5 36040,3 36071,2 36102 36132,8
0
1
2
3
4
5
6
7
8
9Hiti
D_pi
Hængur 39 cm
Dýpi
1. apríl 1. maí 1. júní 2. júlí 2. ágúst 2. sept. 3. okt. 2. nóv. 3. des.
Hrygning Göngur Fæðuslóð Göngur