Ægir - 01.08.2002, Side 8
Alþjóðlegu náttúru-
verndarsamtökin full-
yrða í nýrri skýrslu að
síðastliðin tíu ár hafi
meðalstærð fisks, sem
veiddur hefur verið í
Evrópusambandsríkj-
unum, minnkað svo
mikið að ástæða sé til
aðgerða. Samtökin
fara þess á leit við
Evrópusambandið að
lágmarksstærð fisks,
sem leyfilegt er að
veiða, verði aukin
þegar fiskveiðistefnan
verður endurskoðuð.
Veiða 6-7 milljónir tonna
Alls eru um 100.000 fiskiskip í
Evrópusambandsríkjunum. Þau
veiða árlega um 6-7 milljónir
tonna af fiski. Margar tegundanna
eru í útrýmingarhættu og auk
þess minnkar stöðugt hlutfallið af
stórum fiski í aflanum.
Til að forðast ofveiði er mikil-
vægt að allur fiskur nái að hrygna
einu sinni og þess vegna þarf
hann að ná ákveðinni stærð áður
en hann er veiddur.
Meðalstærð fisks sem veiddur
er í troll í Miðjarðarhafinu er
17,9 sentímetrar, jafnvel þótt
ESB hafi ákvarðað 20 sm lág-
marksstærð. Rauðskeggur er oft
veiddur allt niður í 8-9 sm en
hann verður ekki kynþroska fyrr
en 30 sm.
Jafnframt nemur brottkast um
helmingi þess fisks sem upp kem-
ur af því að hann er undir lág-
marksstærð. Sama gildir um
Norðursjóinn. Verst var ástandið
1996. Samkvæmt skýrslum var
þá allt að 90% af veiddum þorski
kastað fyrir borð.
Verstu syndirnar
Sólkola- og rauðsprettuveiðarnar
eru meðal hins allra versta. Af
hverjum veiddum sex kílóum af
sólkola er aðeins eitt hirt; hitt fer
aftur í sjóinn.
Athugun á stærðarsamsetningu
túnfisks sýnir að fullorðnir fiskar
eru 20% færri nú en 1970. Sama
gildir um Norðursjávarþorskinn.
Þar ákvað ESB 35 sm lágmarks-
stærð þrátt fyrir að þorskur verði
ekki kynþroska fyrr en hann hefur
náð 45 sm lengd.
Árið 2001 leyfði ESB minni
lágmarksstærð í Miðjarðarhafi en
ekki í Atlantshafi. Það þýðir að
stöðugt færri stórir fiskar verða
eftir til þess að halda stofnunum
við.
Tilraunir Spánverja
Spánverjar gera tilraunir með
nýja gerð netja í Miðjarðarhafi.
Niðurstöður hafa hingað til sýnt
að 50-70% af undirmálsfiski
sleppur. Tilrauninni stjórnar The
Sea Research Institute í samvinnu
við sjómenn. Margir fiskistofnar í
Miðjarðarhafi eru samkvæmt út-
tektum í bráðri útrýmingarhættu
og það krefst tafarlausra aðgerða.
8
E R L E N T
Fiskislóð 14 • 101 Reykjavík • Sími 5200 500
isfell@isfell.is • www.isfell.is
Við kappkostum að bjóða
gæðavörur á góðu verði
Hafðu samband við sölumenn
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Í
N
5
0
4
D
-0
2
Bindivélar
Stóri fiskurinn
á undanhaldi
Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin fullyrða í nýrri skýrslu að síðastliðin tíu ár hafi
meðalstærð fisks, sem veiddur hefur verið í Evrópusambandsríkjunum, minnkað svo
mikið að ástæða sé til aðgerða.