Ægir - 01.08.2002, Qupperneq 11
11
S K I PA S T Ó L L I N N
var máluð í litum Samherja í
Slippstöðinni hf. og þar voru
gerðar breytingar á vinnsludekki
skipsins og nýr löndunarkrani
settur á það. Skipið lítur mjög vel
út, þrátt fyrir háan aldur. Það var
smíðað í Sjövikgrend í Noregi
árið 1968, en keypt til Útgerðar-
félags Akureyringa árið 1973.
Árið 1987 var skipið lengt og því
breytt í frystiskip. Eftir breyting-
arnar var burðargetan 902 lestir,
en var áður 781 brúttólest.
Sr. Svavar blessaði skipið
Áður en Akureyrin lét úr höfn
17. september sl. kom áhöfn sam-
an í borðsal skipsins til stuttrar
helgistundar ásamt stjórnendum
Samherja og gestum. Sr. Svavar
Alfreð Jónsson, sóknarprestur í
Akureyrarkirkju, flutti stutta
hugvekju og blessaði skipið, en
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri, lét þau orð falla við þetta
tækifæri að fyrir því væri hefð hjá
Samherja að áður en skip færi í
fyrstu veiðiferð undir merkjum
félagsins væri kallaður til prestur
til þess að blessa það.
Þorsteinn Már sagði að útgerð
þessa skips markaði ákveðin
tímamót hjá Samherja. Gamla
Akureyrin EA, fyrsta skip Sam-
herja, færi brátt til annarra verk-
efna erlendis þar sem það fengi
annað nafn, en gamla nafnið færð-
ist yfir á gamla Sléttbak EA. „Ég
treysti því að þetta nafn fari vel á
þessu skipi og að það verði far-
sælt,” sagði Þorsteinn Már Bald-
vinsson.
„Afburða gott sjóskip”
Meðal þeirra sem voru á bryggj-
unni þegar Akureyrin EA lét úr
höfn, var Áki Stefánsson, skip-
stjóri hjá Útgerðarfélagi Akureyr-
inga til margra ára. Áki þekkir
vel til þessa skips, því hann kom
með það á sínum tíma til landsins
og var skipstjóri á því í tólf ár, frá
1973 til 1985. „Þetta er afburða
gott sjóskip,” sagði Áki þegar
hann horfði á eftir Akureyrinni út
Eyjafjörðinn. „Við settum okkur
strax strangar reglur um um-
gengni um borð og eftir þeim
reglum var í hvívetna farið. Mér
þótti vænt um að heyra að skipið
færi ekki frá Akureyri, ég er viss
um að útgerð þess hjá Samherja á
eftir að ganga vel,” sagði Áki
Stefánsson.
Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson við skipshlið ásamt Áka Stefánssyni,
sem kom á sínum tíma með skipið til Akureyrar og var þar skipstjóri tólf fyrstu árin sem ÚA
gerði skipið út undir nafninu Sléttbakur EA-304.
Gamla Akureyrin í höfn á Akureyri eftir að hafa komið úr síðustu veiðiferðinni fyrir
Samherja hf. Leið skipsins liggur til Skotlands þar sem það verður gert út af Onward
Fishing Company.
Guðmundur Freyr Guðmundsson (t.v.), skipstjóri á Akureyrinni EA, og Sigurbjörn
Reimarsson, fyrsti stýrimaður.
Skipverjar á Akureyrinni klárir í slaginn.
Sr. Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur í Akureyrarkirkju, flytur
hugvekju í borðsal Akureyrarinnar. Með honum á myndinni er
Sigurbjörn Reimarsson, fyrsti stýrimaður og afleysingaskipstjóri.