Ægir - 01.08.2002, Síða 20
L A N D H E L G I S A F M Æ L I
Jafnvel þótt ekki séu nema þrír
áratugir síðan landhelgin var færð
út í 50 mílur og innan við þrír
áratugir frá útfærslu landhelginn-
ar í 200 mílur, er farið að fenna
verulega í sporin. Yngsta kyn-
slóðin á Íslandi man takmarkað
eftir þessum atburðum sem á sín-
um tíma leiddu til þess að stjórn-
málasamband milli Íslands og
Bretlands rofnaði um tíma og
kannski þykir fólki það allt að því
sjálfsagður hlutur að hafa lögsögu
yfir auðlindum hafsins 200 mílur
frá landi. En það er síður en svo
eðlilegur og sjálfsagður hlutur,
baráttan fyrir þessum rétti þjóð-
arinnar var erfið og tók á. Ís-
lensku varðskipsmennirnir urðu
þjóðhetjur, enda voru þeir í hlut-
verki Davíðs að berjast við Golíat
– stórveldið Bretland. Guðmund-
ur Kjærnested, skipherra hjá
Landhelgisgæslunni, fór þar
fremstur í flokki og varð smám
saman tákn fyrir baráttuglaða Ís-
lendinga sem létu sig ekki fyrr en
í fulla hnefana.
Enginn fiskur er óhultur
í sjónum
Ægir hringdi í Guðmund, skip-
herra, á þrjátíu ára afmæli út-
færslu landhelginnar í 50 mílur.
Greinilegt er að Guðmundur
veltir töluvert vöngum yfir því á
þessum tímamótum hvort menn
hafi verið að berjast til einskis á
sínum tíma til að ná yfirráðum
yfir auðlindunum við Ísland.
Þrátt fyrir að skipin séu mun
færri á miðunum við landið en
þegar Bretar og fleiri þjóðir sóttu
grimmt á Íslandsmið, sé greini-
lega minni fiskur við Ísland en í
þá daga.
„En kannski má segja að þetta
sé ósköp eðlilegt. Á Íslensku sjáv-
arútvegssýningunni í Kópavogi
mátti sjá að gífurlegar framfarir
hafa orðið í tækni við veiðarnar.
Mér liggur við að segja að enginn
einasti fiskur sé óhultur í sjónum
og menn geta talið þá fiska og
vigtað sem fara inn í trollin. Sölu-
menn á sjávarútvegssýningunni
sögðu mér að ef þessi tækni bilaði
um borð í skipunum kæmu þau
einfaldlega í land vegna þess að
menn gætu ekki fiskað án hennar.
Ég tel að skipin hafi verið tölu-
vert fleiri í gamla daga á Íslands-
miðum, en þau eru bara miklu af-
Guðmundur Kjærnested, fyrrv. skipherra, undrast núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi:
Ég hefði ekki staðið
í þessu öll þessi ár ...
Um þessar mundir eru liðin þrjátíu ár síðan landhelgin var færð út í 50
mílur. Af því tilefni komu saman til skrafs og ráðagerða nokkrir af
þeim mönnum sem stóðu í eldlínunni hjá Landhelgisgæslunni á þess-
um tíma. Margs er að minnast frá þorskastríðinu við Breta á síðustu
öld, þegar landhelgin var færð út í 12 mílur árið 1958, í 50 mílur árið
1972-73 og 200 mílur árið 1975-76.