Ægir - 01.08.2002, Blaðsíða 24
24
O D D I H F. Á PAT R E K S F I R Ð I
framleiðslunnar er flök með roði og beinum fyrir
Bretland og um 20% framleiðslunnar eru flök fyrir
Bandaríkjamarkað.
Ferskfiskinn selur Oddi hf. fyrst og fremst í gegn-
um sölunet Sæmarks – sjávarafurða.
„Þessi þáttur í rekstri Odda hf. hefur gengið ágæt-
lega. Við erum búnir að vera í þessu í nokkur ár og
umfangið hefur aukist töluvert, líklega hefur árleg
aukning verið um 20%. Flugið er óneitanlega tölu-
vert viðkvæmt, tíminn er skammur til þess að koma
vörunni ferskri á markað og því verðum við að vanda
okkur í öllu ferlinu, frá veiðum og þar til varan er
komin á borð neytenda erlendis. Þess vegna er mikil-
vægt að skipin séu í stuttum túrum þannig að hrá-
efnið sé sem ferskast og best,” segir Sigurður V.
Viggósson, framkvæmdastjóri Odda hf.
Margir Pólverjar í vinnu
„Við höfum ekki getað mannað alla vinnsluna hjá
okkur með heimafólki – um helmingur vinnuaflsins
er útlendingar. Hér vinna Pólverjar, sumir þeirra eru
búnir að vera hér í mörg ár og hafa sest að á staðnum.
Þetta er út af fyrir sig ekki ólíkt því sem var þegar ég
var strákur því þá vann hér verkafólk frá Ástralíu,”
segir Halldór Leifsson. „Patreksfjörður er vissulega
þjónustukjarni fyrir nágrannabyggðir; sveitina,
Tálknafjörð og Bíldudal. Hér er heilsugæsla, sýslu-
manns- og lögregluembætti og bæjarskrifstofur fyrir
Vesturbyggð. Í þessum störfum er heimafólk og því
höfum við þurft að leita eftir erlendum vinnukrafti í
fiskvinnsluna,” segir Halldór.
Ekki tekið þátt í fjölmiðlaumræðunni
„Það er rétt að fyrirtæki okkar hefur ekki verið áber-
andi í umræðunni. Við höfum valið að vera ekki
mikið í fjölmiðlaumræðunni,” segir Sigurður, fram-
kvæmdastjóri Odda hf. „Reksturinn hefur gengið
ágætlega á síðustu árum. Við höfum farið varlega í
fjárfestingum, í stórum dráttum höfum við haft það
að leiðarljósi að fjárfestingarnar skili okkur arði inn-
an árs. Við leitumst við að hafa reksturinn sveigjan-
legan, að því leyti að við tökum púlsinn á markaðn-
um á hverjum degi og högum vinnslunni eftir því.
Við verðum á hverjum tíma að framleiða þær vörur
sem seljast á markaðnum, annað gengur ekki upp.
Ég tel að eins og er sé fyrirtækið hæfilega stórt til
þess að unnt sé að hafa sýn yfir alla þætti reksturs-
ins,” segir Sigurður.
Mikilvægt að hafa ekki öll eggin í sömu körfu
Velta Odda hf. var nálægt einum milljarði króna á
síðasta ári og var rekstrarhagnaður um 40 milljónir
króna. Næstu tvö ár á undan var sömuleiðis hagnað-
ur af rekstrinum.
„Við höfum unnið með kvótakerfinu, en ekki á
móti. Það hefur ekkert upp á sig að vera að berja
hausnum við steininn. Kerfið er eins og það er og þá
þarf að vinna út frá því,” segir Halldór útgerðarstjóri.
Hann telur afar mikilvægt í rekstri Odda að hafa
ekki öll eggin í sömu körfu. Ef miður gengur í einni
grein, er aukin áhersla á aðrar. „Við leggjum sem
sagt áherslu á að dreifa áhættunni og það hefur verið
að skila sér,” segir Halldór og getur einnig um þá
miklu áherslu sem Oddi hf. hefur alltaf lagt á gæði
hráefnisins.
„Hér vinna Pólverjar, sumir þeirra eru búnir að vera hér í mörg ár og hafa sest að á
staðnum. Þetta er út af fyrir sig ekki ólíkt því sem var hér þegar ég var strákur því þá
vann hér verkafólk frá Ástralíu,” segir Halldór Leifsson, útgerðarstjóri Odda hf.