Ægir - 01.08.2002, Side 25
25
O D D I H F. Á PAT R E K S F I R Ð I
Samstarf við Tálknfirðinga
Oddi hf. hefur átt farsælt og náið samstarf við ná-
granna sína í Þórsbergi ehf. á Tálknafirði. Sigurður
Viggósson segir að fyrir nokkrum árum hafi komið
til tals að sameina þessi fyrirtæki, en frá því hafi ver-
ið horfið og ákveðið að fyrirtækin myndu vinna náið
saman. Sú niðurstaða hafi verið farsæl fyrir bæði fyr-
irtæki. „Samstarfið er báðum fyrirtækjum mikill
styrkur. Það segir sína sögu um samvinnuna að sömu
menn eru í stjórnum beggja fyrirtækja,” segir Sig-
urður.
Hann segist ekki sjá fyrir sér stórar breytingar í
rekstri Odda hf. á næstu árum. „Ég hef ekki trú á því
að við förum á markað, eins og mörg sjávarútvegsfyr-
irtæki hafa farið. Ég tel það algjört lykilatriði að
Oddi hf. er að stórum hluta í eigu heimamanna og
það tryggir ákveðinn stöðugleika í rekstri fyrirtækis-
ins og fyrir byggðina hér á Patreksfirði. Staðreyndin
er sú að byggðarlag eins og Patreksfjörður stendur
eða fellur með burðarfyrirtæki eins og Odda hf. Við
erum auðvitað stórir í atvinnulífinu á þessu svæði og
finnum því til ákveðinnar ábyrgðar gagnvart fólkinu
sem hér býr. Ég hef oft skilgreint okkur sem lítið
heimafyrirtæki, sem hefur það að markmiði að halda
uppi jafnri og stöðugri atvinnu allt árið með arðsöm-
um hætti,” segir Sigurður.
Byggjum mikið á þorskinum
„Við settum okkur það markmið á sínum tíma að
stækka um 10% á ári. Við verðum að sjá hvort það
takmark næst, en vissulega erum við mjög háðir
stjórnvaldsákvörðunum með kvótann. Við byggjum
mjög mikið á þorskinum og því hefur samdrátturinn
í þorskúthlutunum komið illa við okkur. Ef marka
má vísindamenn, er þó ástæða til þess að vona að
þorskaflinn muni aftur aukast. Ég tel að til framtíðar
sé lykilatriði fyrir okkur hjá Odda hf. að halda okkar
sérkennum í fiskvinnslu og sömuleiðis er mikilvægt
fyrir hráefnisöflunina að smábátarnir geti áfram róið
af krafti á þessu svæði. Almennt þarf þetta kerfi að fá
að búa við stöðugleika frá einu árinu til annars. Það
gengur ekki að stjórnmálamennirnir séu ár eftir ár að
koma með nýja lagasetningu um veiðarnar. Við þær
aðstæður er erfitt að reka sjávarútvegsfyrirtæki og
gera raunhæfar áætlanir. Ég tel að við óbreytt eignar-
hald á Odda hf. muni rekstur fyrirtækisins áfram
verða í svipuðum farvegi og verið hefur og við mun-
um vaxa smám saman. Við förum varlega, en leggj-
um eftir sem áður mikla áherslu á gæðaímyndina. Í
þeim efnum hefur okkur tekist vel upp og það tel ég
að muni hjálpa okkur til framtíðar,” segir Sigurður
V. Viggósson.
Hjá Odda hf. á Patreksfirði starfa um 70 manns, þar af eru um 40 manns í landvinnslunni. Mynd: Halldór Leifsson.
Vinnsla í fullum gangi. Mynd: Halldór Leifsson.