Ægir - 01.08.2002, Qupperneq 31
31
H L Ý R A E L D I
Að nú skuli hafa tekist að
frjóvga hlýrahrogn er mikilvægur
áfangi í tilraunaeldi því sem unn-
ið er að hjá Hlýra ehf., en eitt af
stærri vandamálum í hlýraeldi er
sá hluti sem snýr að hrygningu
og klaki.
Áfangasigur
Sindri Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Hlýra ehf., segist gera sér
vonir um að það takist að frjóvga
um 10 lítra af hrognum hjá fyrir-
tækinu í þetta sinn og hann seg-
ist mjög ánægður ef það takist.
Tíu lítrar gefa um 50-60 þúsund
hrogn. „Þetta er það sem tilraunir
okkar hér snúast fyrst og fremst
um, að ná að frjóvga hrogn og ala
upp hlýra í kjölfarið. Hrygningin
kostar mikla yfirlegu og ég er bú-
inn að vaka yfir þessu heilu og
hálfu næturnar undanfarið, líkt
og bóndi á sauðburði.“
Einn helsti vandinn við hlýra-
eldi eru mikil afföll í hrognum,
en hrygningarferlið er stutt og
mjög áríðandi er að vakta fiskinn
á meðan á hrygningu stendur því
annars er hætta á að hrognin glat-
ist. Eftir að hrygningu lýkur líða
þrír til fjórir mánuðir þar til
hrognin klekjast út. „Auðvitað
veit ég ekki á þessari stundu hvað
lifir af þessu, en þetta er talsverð-
ur sigur miðað við stöðuna. Nú
höfum við náð ákveðnum tökum
á þessu og vitum hvaða aðferðum
á að beita við hrygningu og
frjóvgun hérna í stöðinni,” segir
Sindri.
200 fiska hrygningarstofn
Hlýri ehf. er í eigu Síldarvinnsl-
unnar hf., Nýsköpunarsjóðs At-
vinnulífsins, Hönnunar hf. og
Eignarhaldsfélags Austurlands.
Frá því í byrjun sumars 2001 hef-
ur verið unnið að því að byggja
upp aðstöðu til hlýraeldis og
rannsókna í húsnæði sem áður
hýsti hraðfrystihús Síldarvinnsl-
unnar hf. í Neskaupstað.
Nú er í eldisstöðinni kominn
upp 200 fiska hrygningarstofn í
fjórum eldiskerjum, sem í er dælt
ferskum sjó með afkastamiklum
dælubúnaði, og búið er að byggja
upp hrognaaðstöðu. Hlýrinn hef-
ur komið frá norðfirskum sjó-
mönnum sem sýnt hafa verkefn-
inu mikinn áhuga og veitt hlýra
og komið með lifandi að landi.
Merkur áfangi í hlýraeldi Hlýra hf. í Neskaupstað:
Tekist hefur að frjóvga
hlýrahrogn í eldisstöð
Frá því í byrjun sumars 2001 hefur, hjá Hlýra ehf. í Neskaupstað, verið
unnið að tilraunum með hlýraeldi í húsnæði sem áður hýsti hraðfrysti-
hús Síldarvinnslunnar hf. Hlýrinn er mjög hagstæður eldisfiskur en
hrygningarferlið er sérlega viðkvæmt. Sá merki áfangi hefur nú náðst
hjá fyrirtækinu að tekist hefur að frjóvga hlýrahrogn í eldisstöðinni.
„Þetta er það sem tilraunir okkar hér snúast fyrst og fremst um, að ná að frjóvga hrogn og ala upp hlýra í kjölfarið,” segir Smári
Sigurðsson. Myndirnar eru teknar út úr myndbandi.
Hrogn kreist úr kvenfiskinum. Svil kreist úr karlfiskinum.