Ægir - 01.08.2002, Side 33
33
E R L E N T
Merk nýjung í togveiðum
Fyrir um það bil 40
árum komu skuttog-
ararnir í stað síðu-
togaranna og síðan
hafa togveiðar verið í
grundvallaratriðum
óbreyttar þótt ný
tækni hafi að sjálf-
sögðu komið til.
Í Fiskaren er sagt frá nýjung í
togveiðum sem Fiskerstrand Verft
í Noregi kynnti á blaðamanna-
fundi í tengslum við Nor-Fishing
sýninguna í Trondheim.
Um er að ræða flotkví aftan á
skipinu sem pokinn fer inn í og
flýtur inn á dekkið í stað þess að
vera dreginn upp rennuna og inn
á dekk.
Aukið öryggi sjómanna og
betri meðferð afla
„Þessi nýja tækni veitir sjómönn-
unum aukið öryggi og stuðlar
einnig að bættri meðferð aflans,”
segir talsmaður Fiskerstrand
Verft, sem hefur þróað kvína í
samvinnu við Rolls-Royce Marine
AS, SINTEF Fiskeri og havbruk
og CR Seafood PRC útgerðina í
Costa Rica, sem Norðmenn eiga
aðild að. Nýja skipið á að fiska
sunnan miðbaugs.
Flotkvíin er ætluð fyrir meðal-
stóra og stóra togara en í sjálfu sér
er ekkert því til fyrirstöðu að laga
hana að annars konar skipum og
veiðiaðferðum.
Aðalkosturinn við flotkvína er
að pokinn flýtur inn á dekkið og
síðan er henni lokað og aflinn
flokkaður sjálfvirkt áður en hann
fer í sjókælitankana.
Í þróun í meira en ár
Flotkvíin hefur verið þróuð í
meira en eitt ár og hefur kostað
tæplega 46 milljónir ísl. króna.
Norska rannsóknaráðið styrkti
þróunarstarfið.
Kvíin á að tryggja sjómönnum
betra og tryggara vinnuumhverfi
á dekki og minnka álag á togbún-
að.
Auk þess fullyrða framleiðend-
ur að gæði aflans aukist vegna
þess að þrýstingur í pokanum
verði minni og minna blóð fari út
í hold fisksins. Allur afli nýtist
sem fyrsta flokks hráefni og í ljósi
þess verða togveiðar umhverfis-
vænni en um leið arðbærari, að
sögn framleiðenda.
Áhugavert fyrir þá sem veiða
neyslufisk
Þeim sem veiða neyslufisk er
mestur akkur í kvínni. Færeying-
ar hafa sýnt henni áhuga og
hyggjast nota hana við veiðar
stórra skipa á kolmunna til
manneldis. Auk þess má ætla að
kvíin nýtist ekki síður á rækju-
togurum en þeim sem veiða hvít-
fisk.
Á að fiska við Máritaníu
Fyrsti togarinn með flotkví á að
veiða uppsjávarfisk úti fyrir
Máritaníu í Vestur-Afríku. Hann
verður gerður út af CR Seafood
PRC útgerðinni, sem fyrr var
nefnd. Hún hefur þegar tryggt
sér leyfi til að veiða þar meðal
annars sardínur og hyggst sýna
fram á fyrirmyndarmeðferð aflans.
Fiskaren hefur áður vakið at-
hygli á veiðum írska skipsins
„Atlantic Dawn“, sem er stærsta
veiðiskip í heimi. Það veiðir á
sömu slóðum og eyðileggur
sennilega mikið af fiski þegar
pokinn er dreginn inn.
Útgerðin vísar þessu á bug og
segir að á skipinu sé ekki verk-
smiðja til að hægt sé að nýta
skemmdan fisk.
Fiskislóð 14 • 101 Reykjavík • Sími 5200 500
isfell@isfell.is • www.isfell.is
Við kappkostum að bjóða
gæðavörur á góðu verði
Hafðu samband við sölumenn
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Í
N
5
0
4
C
-0
2
Hnífar
Þorskinum ógnað
Breska veitingahúsakeðjan „Little Chef“ býður nú gestum sínum upp á
ódýrari fisk en hinn hefðbundna þorsk. Það er fiskur sem nefnist hoki og
er veiddur við Nýja Sjáland. Hann er sagður líkjast þorski á holdið og
vera bragðgóður. Auk þess eru afurðir unnar úr hoki merktar
umhverfisvænar og neytandinn getur verið viss um að þeir sem veiða
hann séu ábyrgir gagnvart umhverfinu. Þeir sem láta sig það eitthvað
varða geta því borðað hoka með góðri samvisku.
Umhverfismerkið sem hoki fiskurinn fær er gefið samkvæmt stöðlum
sem stofnunin Marine Stewardship Council (MSC) hefur þróað. Þorskur
hefur ekki slíkt merki og hann líka dýrari.