Ægir - 01.08.2002, Side 38
38
S K I PA S T Ó L L I N N
Gjörbreyttur Núpur BA
„Við erum mjög ánægðir með
breytingarnar á skipinu, þetta er
gjörbreytt skip. Okkur sýnist vel
hafa tekist til. Við erum fyrir með
tvö skip, Garðar BA – 95 tonna
skip, sem var smíðað í Kína í
fyrra, auk þess sem systurskip
Garðars, Vestri BA-63 sem er í
eigu Vestra ehf., móðurfélags
Odda hf., leggur upp hjá fyrir-
tækinu. Það er ljóst að vinnu-
brögðin eru vandaðri í Vest-
mannaeyjum við smíði og frá-
gang á Núpi en í Kína, t.d. hvað
varðar rafmagn og glussa, en stál-
ið er gott og skipin hafa reynst
mjög vel,” segir Halldór Leifsson,
útgerðarstjóri hjá Odda hf.
Núpur BA er stálskip, smíðað í
Póllandi árið 1976, en til lands-
ins kom það árið 1981. Árið
1998 var Núpur síðan lengdur á
Spáni og með þeim miklu endur-
bótum sem unnið var að á skip-
inu í Skipalyftunni í Vestmanna-
eyjum má segja að það sé eins og
nýtt.
Nýr botn og breytt lest
Fyrst skal nefna að nánast var
skipt um allan botn Núps og
jafnframt var lest skipsins dýpkuð
um 30 sentímetra, hún einangruð
og klædd upp á nýtt.
Vélarrúmið er einnig sem nýtt.
Aðalvélin er Caterpillar 3512B,
tæplega 1000 hestöfl, og tvær
ljósavélar eru einnig af Caterpillar
gerð – 3304 85 kW. Vélarnar eru
frá Heklu hf. Í tengslum við end-
urnýjun lestar og vélarrúms var
endurnýjað rafmagn, dælur og
brunnar í lest og á millidekki.
Brú Núps er sömuleiðis ný og
skipstjóraklefi fyrir aftan brúna á
aðalþilfari. Hluti af tækjabúnaði í
brúnni var endurnýjaður. Frá
Radíómiðun ehf. kom nýtt gervi-
hnattasjónvarp og myndavéla-
kerfi.
Ískrapavélar frá Ískerfum ehf.
Um borð voru settar ísþykknivél-
ar frá Ískerfum ehf. af gerðinni
LIGS B-105 og framleiðir hvor
vél 5-7 tonn af ísþykkni á sólar-
hring. Núpur BA er fyrsta línu-
skipið hér á landi sem fær slíkan
búnað. „Sú reynsla sem við höfum
þegar fengið af ísþykkninu er
mjög góð. Úr fyrsta túrnum
sendum við m.a. fersk fiskflök í
flugi á markað í Bandaríkjunum.
Í stuttu máli voru viðbrögðin
hreint frábær. Varan er einfald-
lega miklu betri með ísþykkninu.
Fiskurinn fær strax mun betri
kælingu og holdið verður stinn-
ara. Sömuleiðis gerir ísþykknið
Viðamiklar endurbætur hafa verið gerðar á línuveiðiskipinu Núpi BA-
69, en skipið varð fyrir miklum skemmdum í nóvember í fyrra í kjölfar
þess að það varð vélarvana og rak upp í fjöru. Heildarkostnaður við
viðgerðir og breytingar á skipinu nam um 100 milljónum króna.
Núpur BA-69 kemur fánum prýddur til heimahafnar á Patreksfirði eftir viðamiklar breytingar. Mynd: Halldór Leifsson.