Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 22
Jónbjörn Pálsson
Höfundar eru
starfsmenn
Hafrannsókna-
stofnunarinnar
Gunnar Jónsson
Sjaldséðir fiskar á
Íslandsmiðum árið 2002
22
F I S K A R
Tvær tegundir, áður óþekktar á Íslandsmiðum
veiddust árið 2002. Þessar tegundir eru oddhali,
Lionurus carapinus sem veiddist í september á 1691-
1712 m dýpi djúpt suður af Stokksnesi og pálsfisk-
ur, Zenopsis conchifera sem veiddist í apríl á Sand-
vík norðan Reykjaness.
Fiskar sem borist hafa frá fiskiskipum o.fl.
Slímáll, Myxine ios
Í júlí veiddist einn 41 cm langur á um 820 m
dýpi á grálúðuslóð vestan Víkuráls (65°47´N,
27°50´V). Veiðiskip Snorri Sturluson VE.
Á árunum 1991 til 1997 veiddust margir slímálar
á Íslandsmiðum þar af 28 árið 1993. Á árunum
1998 þar til nú varð hans ekki vart svo farið var að
óttast um stofninn.
Sæsteinsuga, Petromyzon marinus
Upplýsingar bárust um sex sæsteinsugur á árinu
og veiddust þrjár þeirra í seiðavörpu á 10 metra
togdýpi í rannsóknaleiðangri á rs. Bjarna Sæmunds-
syni og ein barst frá japönsku túnfiskveiðiskipi og
veiddist hún utan 200 sjómílna fiskveiðilögsögunnar.
Hinar fimm veiddust á svæðinu frá Kötlugrunni
vestur á Fjöllin suðvestur af Reykjanesi. Þessar sæ-
steinsugur veiddust allar á tímabilinu ágúst til sept-
ember og voru þær 47-71 cm langar.
Stuttnefur, Hydrolagus affinis
Ein 136 cm löng hrygna veiddist á 1025-1120 m
dýpi á grálúðuslóð vestan Víkuráls (64°35´5N,
28°39´V) í apríl. Veiðiskip var Ýmir HF.
Brandháfur, Hexanchus griseus
Í apríl veiddist 120 cm brandháfur í net Ganda
VE á 275-366 m dýpi 20 sjómílur austur af Vest-
mannaeyjum.
Hvítaskata, Raja lintea
Í febrúar barst pétursskip með velþroskuðu fóstri
úr hvítaskötu sem veiðst hafði á Suðausturmiðum
(64°02´N, 13°12´V). Veiðiskip var Snorri Sturluson
VE. Fullvaxnar hvítaskötur veiðast alltaf af og til.
Augnasíld, Alosa fallax
Tvær bárust á árinu og veiddist önnur í byrjun
september í botnvörpu á 201-220 m dýpi í utan-
verðum Faxaflóa (Jökultúngu). Hún var 49 cm löng
hrygna. Veiðiskip Vigri RE. Hin veiddist í nóvember
og var 45 cm löng en upplýsingar um veiðistað o.fl.
vantar.
Græðisangi, Holtbyrnia anomala og njarðarangi,
Maulisia mauli
Í lok apríl veiddust þrír græðisangar 27, 28 og 33
cm langir og einn njarðarangi, 18 cm langur, á 677
m dýpi á Reykjaneshrygg (61°45´N, 27°30´V).
Veiðiskip Snorri Sturluson VE.
Í leiðangri sem farinn var á Ásgrími Halldórssyni
SF til leitar og rannsókna á laxsíldum í júní veiddust
í flotvörpu á 150-265 m dýpi djúpt suðvestur af
Reykjanesi utan 200 sjómílna fiskveiðilögsögunnar
nokkrir suðrænir silfurfiskar, Argyropelecus hemig-
ymnus og voru 9 mældir 2,4 til 3,7 cm staðallengd
(SL). Einnig voru mældir 17 norrænir silfurfiskar,
Argyropelecus olfersi, 2,2 til 5,1 cm staðallengd, 5
norrænar gulldeplur, Maurolicus muelleri, 3,7-4,7
cm SL og einn skakki silfurfiskur, Sternoptyx pseu-
dobscurus, 4,3 cm langur SL.
Hafrannsóknastofnun bárust margir sjaldséðir fiskar til rannsóknar árið
2002. Fiskar þessir veiddust flestir innan 200 sjómílna fiskveiðilögsög-
unnar en nokkrir utan hennar. Langflestir þessara fiska voru veiddir af
skipum fiskveiðiflotans en nokkrir í leiðöngrum rannsóknaskipa Haf-
rannsóknastofnunar og bar þar hæst s.k. haustrall sem farið var á rs.
Árna Friðrikssyni RE 200 dagana 6. október til 4. nóvember undir leið-
angursstjórn Jónbjörns Pálssonar og Einars Jónssonar og leiðangurs á rs.
Bjarna Sæmundssyni RE 130 til rannsókna á botndýrum á Íslandsmið-
um s.k. BIOICE verkefni undir leiðangursstjórn Sigmars A. Steingríms-
sonar dagana 30. ágúst til 13. september.
Stuttnefur, Hydrolagus affinis. Einn veiddist í apríl á grálúðu-
slóð vestan Víkuráls.