Ægir - 01.03.2003, Blaðsíða 13
13
F R É T T I R
Árni M. Mathisen sjávarútvgsráðherra hefur
skipað níu manna nefnd sem er falið það hlut-
verk að fara ítarlega yfir hina líffræðilegu þætti
fiskveiðastjórnunarkerfisins og skila tillögum
um ráðstafanir sem leiði til betri nýtingar á afla,
meiri verðmæta, eða bætts ástands fiskistofna.
Nefndinni er jafnframt ætlað að skoða hvaða áhrif
einstaka stjórnaraðgerðir gefti haft á sókn fiskveði-
flotans, samsetningu fiskistofna og hvort æskilegt sé
miðað við núverandi þekkingu að stýra veiðum eftir
stofnhlutum. Loks er nefndinni falið að skoða reynslu
nágrannaþjóða, s.s. Færeyinga, af veiðarfærastýringu
og svæðalokunum.
Nefndin á einnig að takast á við hvernig beita
megi veiðarfærastýringu, svæðalokunum og efna-
hagslegum stjórntækjum til að bæta gæði hráefnis,
jafnframt því að vernda smáfisk og hrygningarfisk.
Nefndinni er gert að meta notagildi breytilegra
stuðla í þorskígildum ásamt almennu notagildi
mælieiningarinnar ,,þorskígildi”.
Tryggvi Þór Herbertsson er formaður nefndarinnar
en aðrir nefndarmenn eru: Árni Bjarnason, Björn
Ævar Steinarsson, Elínbjörg Magnúsdóttir, Guðrún
Marteinsdóttir, Kristján Þórarinsson, Oddur Sæ-
mundsson, Sjöfn Sigurgísladóttir og Tumi Tómasson.
Nefndin skal hafa skilað niðurstöðum sínum fyrir
áramót.
Ný nefnd á vegum sjávarútvegsráðherra:
Líffræðilegu þættir
,,kerfisins” rannsakaðir