Ægir - 01.10.2003, Blaðsíða 30
30
F I S K V I N N S L A Á N Ú T G E R Ð A R
Um fjörutíu félagsmenn eru í
Samtökum fiskvinnslu án út-
gerðar og eru flestir þeirra á
suðvesturhorni landsins. Meðal
veltumestu fyrirtækja innan
samtakanna má nefna Topp-
fisk í Reykjavík, Ný-fisk í
Sandgerði, Hamrafell í Hafnar-
firði og Ísfisk í Kópavogi, en
framkvæmdastjóri Ísfisks,
Óskar Þór Karlsson, er jafn-
framt formaður Samtaka fisk-
vinnslu án útgerðar.
Á aðalfundi samtakanna 31.
október sl. sagði Óskar Þór m.a. í
inngangsorðum sínum: „Þeir sem
stunda línuveiðar og sjá sér hag í
því að línuívilnun komist á benda
gjarnan á að botnvarpan sé mikið
skaðræðisveiðarfæri, sem skilji
eftir sig hafsbotninn eins og eyði-
mörk þar sem hvergi sé lengur
skjól að finna fyrir fisk. Þetta er
að sjálfsögðu stórlega ofsagt.
Varðandi línuveiðarnar þá hélt
maður að línan gæti nú talist
nokkuð vistvænt veiðarfæri,
a.m.k. vitum við fiskverkendur að
betra hráefni fæst ekki heldur úr
því veiðarfæri. Þeir sem hins veg-
ar stunda veiðar með troll og eru
þar með að sjálfsögðu svarnir and-
stæðingar línuívilnunar hafa aðra
sögu að segja. Að þeirra áliti er
línan hið mesta skaðræðisveiðar-
færi. Ótölulegur fjöldi af fiski
slitni af línunni og syndi síðan að
þeirra sögn um allan sjó glor-
hungraður og grindhoraður með
öngulinn langt ofan í maga.
Þannig er umræðan því miður
gjarnan um mörg fleiri mál og
ekki batnar það þegar talið berst
að byggðakvótanum.“
Fagleg mál efst á baugi
Formaður Samtaka fiskvinnslu án
útgerðar segir að efst á baugi hjá
samtökunum séu ýmis fagleg
mál. „Ég get nefnt að við vildum
sjá meiri árangur í gæðamálum
dagróðrabáta og einnig höfum við
gert athugasemdir við ýmislegt
varðandi fiskmarkaði. Í því sam-
bandi vil ég nefna að fiskur er oft
vigtaður óslægður. Síðan fer fisk-
urinn í slægingu, þvott og ísun
og er þannig seldur. Engu að síð-
ur er fiskurinn eftir sem áður
seldur óslægður. Þetta þýðir í
raun að menn hafa ekki lengur
möguleika á að fylgjast með því
hvort þeir fái rétta vigt. Menn
hafa líka verið heldur óhressir
með vigtunarreglur, sbr. það að
ekki má draga nema 3% frá
Framboð af fiski er
ákveðinn flöskuháls
- segir Óskar Þór Karlsson, formaður Samtaka fiskvinnslu án útgerðar
Óskar Þór Karlsson, formaður Samtaka fiskvinnslu án útgerðar.
Á aðalfundi Samtaka
fiskvinnslu án útgerðar.