Ægir - 01.11.2003, Blaðsíða 8
8
S Ö F N
Saltfisksetur Íslands í Grinda-
vík hefur slegið í gegn. Það er
ekki hægt að orða það öðruvísi.
Setrið var opnað viku af sept-
ember í fyrra og síðan hefur
aðsóknin verið prýðileg. Áætl-
anir gerðu ráð fyrir um 15-16
þúsund gestum á ári og flest
bendir til þess að þær áætlanir
gangi eftir strax á þessu fyrsta
ári. Í sumar voru gestir á bil-
inu 6-8 þúsund, bæði Íslend-
ingar og erlendir ferðamenn.
Fjölgað ferðamönnum í
Grindavík
Kjartan Kristjánsson, forstöðu-
maður Saltfiskseturs Íslands, sem
jafnframt er ferða- og markaðs-
fulltrúi í Grindavík, segist ekki
annað hægt en að vera ánægður
með þetta fyrsta ár og þær vænt-
ingar sem Grindvíkingar hafi
gert til setursins hafi gengið eftir.
„Ég held að sé óhætt að segja að
ferðamönnum hérna í bænum
hafi fjölgað verulega í sumar mið-
að við fyrra ár og þeir hafa skilað
sér til þjónustuaðila, t.d. á veit-
ingastaði og í verslanir. Saltfisk-
setrið hefur því mikið að segja
fyrir bæjarfélagið, það er nú þegar
komið vel í ljós,” segir Kjartan,
en auk setursins er undir sama
þaki rekin upplýsingamiðstöð
bæjarfélagsins fyrir ferðafólk og
þá eru „rúllandi” sýningar á efri
hæð hússins. Skipt er um sýningu
á u.þ.b. tveggja mánaða fresti. Á
haustdögum var t.d. boðið upp á
sýningu á verkum Daða Guð-
björnssonar, myndlistamanns.
Fyrir augað
Það þótti vissulega stórhuga
verkefni þegar Grindvíkingar
ákváðu að koma á fót safni um
saltfiskverkun á Íslandi. Saltfisk-
urinn á sterkar rætur í Grindavík,
þar hefur í gegnum tíðina verið
öflug saltfiskverkun og svo er
enn. Það fór því vel á því að setja
slíkt safn niður í Grindavík. Salt-
fisksýningin var hönnuð af Birni
G. Björnssyni og þykir vel
heppnuð. Saga saltfisksins er sögð
með stórum myndum, hnitmið-
uðum texta og fáum en lýsandi
Saltfiskbær Íslands
Frá liðinni tíð.
Saltfiskur hengdur upp
til þerris.
Aðsókn að Saltfisksetrinu hefur verið mjög góð á fyrsta starfsári þess. Í sumar komu á
bilinu 6-8 gestir í setrið.
Saltfiskurinn á sterkar rætur í Grindavík, þar hefur í gegnum tíðina verið öflug
saltfiskverkun og svo er enn.
Myndir: Saltfisksetur Íslands.