Ægir - 01.07.2003, Blaðsíða 52
52
Elvar Thorarensen er rekstrar-
fræðingur af stjórnunarsviði
rekstrarbrautar Háskólans á
Akureyri, en hluti af því námi
tengist gæðastjórnun í fyrir-
tækjum. Elvar hafði starfað hjá
ÚA í nokkur ár áður en hann
fór í háskólann og sömuleiðis
hafði hann unnið í fiski úti í
Hrísey. Árið 1999 hóf Elvar
störf sem gæðastjóri hjá Út-
gerðarfélagi Akureyringa.
Gæðastjórnun í fiskvinnslu er
víðtækt hugtak, sem í stórum
dráttum snýst um að tryggja að
gæði vörunnar haldist alla leið frá
veiðum í gegnum vinnsluna og
til kaupenda..“Ef viðskiptavinur-
inn biður um ákveðin gæði vör-
unnar er grundvallaratriði að geta
orðið við þeim óskum,“ segir El-
var Thorarensen.
Hjá Útgerðarfélagi Akureyr-
inga er gæðastýring byggð á
svokölluðu GÁMES-kerfi (grein-
ing áhættuþátta á mikilvægum
eftirlitsstöðum). „Vinnslunni er
þannig skipt upp að á ákveðnum
stöðum í vinnsluferlinu er sett
upp eftirlit, teknar prufur og
þannig fylgst náið með fram-
leiðslunni. Við erum með virkt
inntökueftirlit á því hráefni sem
við tökum inn í vinnsluna, í flök-
uninni, eftir að varan hefur verið
snyrt og síðan að lokinni pökkun
og frystingu. Við tökum gríðar-
lega mörg sýni og til marks um
það skoðuðum við yfir eitt hund-
rað tonn af snyrtu hráefni í fyrra.
Tveir starfsmenn eru einungis í
því að skoða sýnin og leita eftir
hugsanlegum göllum í snyrting-
unni - hvort bein/ormar séu í
fiskinum, hvort hann sé blóðmar-
inn o.s.frv. Í það heila eru fjórir
starfsmenn auk mín í gæðaeftir-
litinu hjá ÚA.“
Strangar kröfur
- Gera viðskiptavinir strangar
kröfur til gæða vörunnar?
„Já, þeir gera það. Fulltrúar
stærri viðskiptavina koma að
jafnaði einu sinni á ári í heimsókn
og erum við að fá fjóra til fimm
slíka aðila yfir árið til að taka út
vinnsluna hjá okkur. Í þessum
heimsóknum fara þeir í gegnum
gæðahandbókina, sem við vinn-
um eftir, og sannþrófa að við
fylgjumst nákvæmlega með ferli
vörunnar í gegnum vinnsluna og
uppfyllum kröfur viðskiptavin-
anna. Við förum jafnframt með
þessum fulltrúum kaupenda í
gegnum vinnslusalina og þeir
punkta hjá sér þá hluti sem þeir
telja að megi færa til betri vegar.
Meðal þess sem þeir líta eftir er
hvort starfsfólkið fari eftir settum
reglum varðandi hreinlæti, hvort
hitastigið í fiskinum sé það sem
við gefum upp í okkar gæðahand-
bókum o.s.frv. Fulltrúar kaup-
enda athuga líka hvort þrif í
vinnslusölum séu eins og reglur
kveða á um. Í þeim efnum setjum
við okkur mjög stífar reglur.
Þrifalýsingar eru reglulega yfir-
farnar og þannig viljum við
tryggja að hreinlæti sé alltaf
fyrsta flokks.“
Keðja þar sem hver hlekkur
er jafn mikilvægur
Til þess að gæðamál séu í lagi í
fiskvinnslufyrirtæki verða allir
starfsmenn í vinnslunni að vera
þess vel miðvitaðir hvernig eigi
Virkt gæðaeftirlit
er lykilatriði
Hjá Norðanfiski á Akra-
nesi, sem er hluti af
Brims-samstæðunni, er
fiskur brauðaður. Þessi
vinnslulína var hjá ÚA
á Akureyri, en var flutt
til Akraness og er nú
starfrækt undir merkj-
um Norðanfisks.
G Æ Ð A E F T I R L I T