Ægir - 01.10.2007, Side 19
1
S A G A N
af menningarlegum toga
meðal innlendra og erlendra
ferðamanna, að þeim for-
sendum gefnum að uppbygg-
ingaráætlanir sem lagðar hafa
verið fram standist. „Unnið
verður markvisst að því með
því að vanda til verks alveg
frá byrjun og vinna vel að
markaðssetningu staðarins
innanlands sem utan.“
Áfangaskipt uppbygging
Í viðskiptaáætlun, sem unnin
var af Kristínu Sóleyju er gert
ráð fyrir að uppbyggingin á
Gásum verði áfangaskipt.
Í fyrsta áfanga verði Gása-
kaupstaður gerður aðgengi-
legur. Leið um fornleifarnar á
Gásum verði mörkuð. Gengið
verði þannig frá uppgraft-
arsvæðinu að hluti af búða-
leifunum verði hafður sýnileg-
ur. Sett verði upp upplýsinga-
skilti og frá svæðinu þannig
gengið að gestir geti á sem
auðveldastan hátt sett sig í
þau spor hvar járnsmiðjan
hafi verið, hvar brennisteinn-
inn var hreinsaður og hvar
matur og verslunarvörur voru
geymdar, svo dæmi séu tekin.
Í öðrum áfanga verði kom-
ið upp svokölluðu tilgátu-
svæði, þ.e.a.s. myndað lítið
“þorp” á svæðinu eins og sér-
fræðingar sjá fyrir sér að hafi
verið á Gásum á miðöldum.
Handverksfólk verði á svæð-
inu íklætt klæðnaði með skír-
skotun til miðalda.
Gestir sem koma á svæðið
geti sett sig inn í hvernig fólk
klæddist á þessum tíma,
hvernig fólk skemmti sér á
þessum tíma, hvernig járn-
smíðin fór fram, hvernig
hreinsun á brennisteininum
var háttað o.s.frv.
Í þriðja áfanga sér Kristín
Sóley ásamt samstarfshópi
verkefnisins fyrir sér bygg-
ingu þjónustuhúss á svæðinu
þar sem verði sett upp upp-
lýsandi sýning um Gásakaup-
stað. Þar yrði einnig veitinga-
sala, minjagripaverslun, fjöl-
nota salur o.fl.
Leitað til áhugasamra
fjárfesta
Hér er um stór og metnaðar-
full áform að ræða, sem ljóst
er að kosta munu umtalsverða
fjármuni. Í viðskiptaáætluninni
er gerð gróf kostnaðaráætlun,
sem tekur mið af upplýsing-
um sérfræðinga um kostnað
við einstaka verkþætti. Heild-
arkostnaður vegna uppbygg-
ingarinnar á Gásum er í þess-
ari áætlun talinn vera um 330
milljónir króna, auk þess sem
leggja þurfi töluverða fjármuni
í rekstur verkefnisins fyrstu
árin. Horft er til þess að ríkið
komi að verkefninu og það
sama má segja um sveitarfé-
lög í Eyjafirði, en ljóst er að
verkefnið mun einnig þurfa
að treysta á að fá þolinmótt
fjármagn frá fjárfestum til þess
að ná endum saman. Kristín
Sóley væntir þess að unnt
verði að fá áhugasama fjár-
festa og/eða styrktaraðila að
þessu spennandi verkefni og
auglýsir hér með eftir slíkum
aðilum til samstarfs.
Spennandi nýjung í flóru
íslenskrar menningar
Í lokaorðum Kristínar Sóleyjar
í „Gásir – lifandi miðalda-
kaupstaður“ segir orðrétt:
„Ljóst er af rannsóknum í
ferðamálafræðum að áhugi
fólks á menningu og sögu er
mikill og að fjöldi ferðamanna
eykst með hverju árinu sem
líður. Þörf er á fjölbreyttri af-
þreyingu, ekki bara á Norð-
urlandi heldur landinu öllu,
til þess að dreifa álaginu ef
heldur fram sem horfir hvað
varðar fjölda erlendra ferða-
manna sem koma til landsins.
Með því er verið að koma í
veg fyrir að náttúrulegum,
félagslegum og menning-
arlegum þolmörkum ákveð-
inna svæða verði náð. Nú er
tækifæri til þess að byggja
upp þennan mikla sögustað
hérna í Eyjafirði þar sem m.a.
afstaða ríkisins til menning-
artengdrar ferðaþjónustu er
jákvæð sem sjá má í áherslum
þess á kynningu landsins á
erlendri grundu.
Hugmyndirnar að upp-
byggingunni eru mótaðar til
þess að vernda fornleifarnar
og miðla með skemmtilegum
og fróðlegum hætti sögu og
náttúru staðarins á faglegan
hátt þar sem m.a. niðurstöður
rannsóknaverkefnisins um
Gásir eru nýttar við uppbygg-
inguna og sannleiksgildið
vegur þungt. Viðburðir þeir
sem fram hafa farið á Gásum
sýna svo ekki verður um villst
að íbúum í héraðinu og inn-
lendum jafnt sem erlendum
ferðamönnum þykir þetta
spennandi nýjung í flóru ís-
lenskrar menningar og sem
nýr afþreyingarmöguleiki í
Eyjafirði/Norðurlandi/Íslandi.
Sérstaða staðarins eru ein-
stakar fornleifar og miðlun
miðaldatímabils Íslandssög-
unnar, með skýrri skírskotun
í verslun, viðskipti, iðnað og
handverk þar sem áhersla er
m.a. lögð á sviðssetningu á
miðaldalífinu eins og það er
talið hafa verið á Gásum. En
lifandi miðlun menningararfs-
ins er tiltölulega nýtt kynn-
ingarform sem dregið hefur
til sín fjölda áhorfenda.”
Hér má sjá Gásasvæðið við vestanverðan Eyjafjörð úr lofti. Svæðið hefur í tímans rás tekið nokkrum breytingum. Kraftur sjáv-
arins hefur gengið á landið og breytt ásýnd þess. Mynd: Hörður Geirsson.
Gásakaupstaður hugsanlega um 1300. Teikning: Gagarín.