Ægir - 01.10.2007, Side 20
20
„Fiskneysla hefur aukist hröð-
um skrefum á undanförnum
árum sem helst í hendur við
sífellt aukna vitund almenn-
ings fyrir hollustu. En fólk í
dag gerir kröfur um annað og
meira en bara saltfisk og
soðningu, enda þótt slíkt
standi alltaf fyrir sínu. Með
auknum ferðalögum landans
erlendis hafa hverskonar salt-
fiskréttir sem matbúnir eru á
framandi máta slegið í gegn
og lasange með ýsu er einnig
orðið mjög vinsælt í verslunum
okkar,“ segir Ólafur Tryggva-
son, markaðsstjóri Fiskisögu.
Fiskisaga er nýtt og áber-
andi fyrirtæki sem hefur vax-
ið hröðum skrefum á und-
anförnum misserum, en undir
þess merkjum eru reknar ell-
efu fisk- og sælkerabúðir á
höfuðborgarsvæðinu. Fyr-
irtækið er í eigu fárfestinga-
félagsins Nordic Partners.
Fiskur, kjöt og ostar
“Hugmyndin með stofnun
Fiskisögu var að skapa nýj-
ung á íslenskum matvöru-
markaði og vera í fremstu
röð,” segir Ólafur Tryggva-
son.
„Þannig fóru eigendur fyr-
irtækisins á stúfana og keyptu
nokkrar fiskbúðir hér á
Reykjavíkursvæðinu. Í fram-
haldinu keyptum við Gallerí
Kjöt við Grensásveg og Osta-
búðina við Bitruháls fyrr á
þessu ári. Við munum áfram
keyra á þessum vörumerkjum
en hugmyndafræðin er sú að
verslanir okkar verði í fyll-
ingu tímans heildstæðar sæl-
kerabúðir þar sem fáist gæða-
kjöt, fiskmeti og úrvalsostar.
Nú þegar eru verslanir okkar
við Höfðabakka og Grens-
ásveg í Reykjavík reknar með
þessum hætti og senn bætist
verslunin við Sundlaugaveg í
hópinn. Þær verslanir sem við
höfum opnar nýjar á þessu
áru eru við Tjarnarvelli í
Hafnarfirði og Búðakór og
Dalveg í Kópavogi, en við þá
síðastnefndu erum við með
veitingastaðinn Eldhúsið.”
Þorskurinn í hávegum
Ólafur Tryggvason segir mat-
vörumarkaðinn á höfuðborg-
arsvæðinu hafa breyst mikið
á undanförnum misserum.
Lágvöruverðsverslanir á borð
við Bónus og Krónuna hafi
valdið straumhvörfum í versl-
unarháttum. „Margir fara í
lágvöruverðverslanirnar og
kaupa þar ýmiskonar þurr-
vöru og slíkt, en fara síðan í
sérverslanir og kaupa þar
F I S K B Ú Ð I R
Fiskisaga er stórveldi með ellefu verslanir á höfuðborgarsvæðinu:
Sjávarfang fyrir sælkerana
Fjárfestingafélagið Nordic Partners sem á og rekur Fiskisögu
kemur víða við. Fyrirtækið er einn stærsti eigandi fasteigna í
Lettlandi. Raunar er félagið býsna umsvifamikið þar í landi;
rekur gríðarstóra kex- og kökuverksmiðju en kemur einnig
að framleiðslu sælgætis, drykkjarvara og annara tilbúinna
matvæla. Sömuleiðis hefur félagið komið að sambærilegum
verkefnum í Póllandi og Lettlandi.
Aðaleigendur Nordic Partners eru fjórir, það er Gísli Reyn-
isson sem forstjóri, en hinir eru Jón Þór Hjaltason, Bjarni
Gunnarsson og Lettinn Daumant Vitols. Það eru þessir kapp-
ar sem keyptu danska hótelkeðju í september sl., m.a. hið
fræga Hotel D´Angleterre við Kóngsins Nýja torg í Kaup-
mannahöfn, auk þess sem þeir eiga og reka veitingastaði og
lúxusíbúðir í borginni við Eyrarsund. Viðfangsefni Nordic
Partners eru því, með öðru, Englahótelið við Eyrarsund og
íslenskur fiskur.
Englahótel og íslenskur fiskur
Hotel D´Angleterre í Kaupmannahöfn. Sömu eigendur að því og Fiskisögu.
Mynd: -sbs
„Kröfur um annað og meira en bara saltfisk og soðningu,“ segir Ólafur Tryggvason markaðsstjóri Fiskisögu.