Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.2008, Side 28

Ægir - 01.01.2008, Side 28
28 un; yfirvigt þar er gjarnan 2- 3% en starfsmanninum er ekki gefinn mikill tími til að skipta á stykkjum. Því er ljóst að unnt er að ná verulegum árangri í að auka verðmæti fisksins með nýja flokkaran- um þar sem sérstakur skynjari velur saman stykki í nákvæma fyrirframgefna þyngd – sem er þó bara aðeins einn af mörgum forritanlegum mögu- leikum sem tækni þessi býður upp á. Sextíu stykki á mínútu Afköst flokkarans eru rúmlega 60 stykki á mínútu og hefur hann því vel undan einni flökunarvél. Auk þess að velja saman bita í kassa, flokkar hann fiskinn eftir stærð og gæðum. Þar sem einungis þarf 2-4 útkastshlið fyrir hvern flokk er unnt að velja saman í kassa af mikilli ná- kvæmni í mörgum flokkum samtímis, án þess að flokk- arinn verði óhóflegur að lengd. Unnt er að aðlaga flokkarann vinnslunni á hverj- um stað með því að velja fjölda hliða. Auk þess má nýta flokkarann til að raða til- teknum afurðum beint á færi- band, t.d. inn á lausfrysti. Þannig getur flokkarinn pakk- að besta fiskinum ferskum í flug, en matað fisk af minni gæðum sjálfvirkt inn á laus- frysti. Hugbúnaðurinn sem not- aður er við flokkunina sam- valið var þróaður í samstarfi Völku og Gervigreindarseturs tölvunarfræðideildar Háskól- ans í Reykjavík – en þar er lögð mikil áhersla á samstarf með framsæknum hátæknifyr- irtækjum. Dr. Yngvi Björns- son hafði veg og vanda að þróun þeirra reikniaðferða sem notaðar eru til að lág- marka yfirvigtina. „Við þróun þessarar tækni höfum við lagt mikla áherslu á gagnvirkni og sýnileika. Allir sem koma að vinnslunni eiga að geta fylgst með stöðunni – og afstýrt til dæmis mistökum ef eitthvað slíkt er í uppsiglingu,“ segir Helgi. Sjálfvirkni í hámarki Aukin sjálfvirkni í meðhöndl- un pantana er mjög mikilvæg því afgreiðslutími er einstak- lega stuttur – allt niður í nokkrar klukkustundir – breytingar á pöntunum eru tíðar og framleiðslulotur eru stuttar. Sagði Helgi Hjálmars- son að því hefði Valka þróað hugbúnaðinn RapidTrade, sem hámarkar þá sjálfvirkni sem unnt er að ná í meðferð pantana frá viðskiptavinum. RapidTrade var upphaflega þróaður í samstarfi við HB Granda og síðar enn frekar með Nýfiski og Sjófiski. Hug- búnaður þessi hefur nú verið í notkun í HB Granda í tæp tvö ár og þróun hans bæði fyrir útflutning og útkeyrslu er mjög langt komin – og hef- ur gefið góða raun. Herferð til kynningar á RapidAligner flokkaranum er nú hefjast á Íslandi og erlendis og hafa viðbrögð hjá fiskvinnslum þegar verið mjög jákvæð. T Æ K N I „Höfum lagt mikla áherslu á gagnvirki og sýnileika,“ segir Helgi Hjálmarsson um hina nýju tækni og þróun hennar. Tæknin er langt komin með að leysa mannshöndina af hólmi í fiskvinnslunni. En þar sem fólk stendur vaktina er þó þörf á að vanda handtak. Fornubúðir 3 - 220 Hafnarfjörður - Sími 555 6677 - oli@umb.is

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.