Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 21
19
Í S L E N S K A S J Á V A R Ú T V E G S S Ý N I N G I N - A U K A B L A Ð Æ G I S
komu í Vestmannaeyjum á föstudögum
og síðan er komið til Immingham á
Englandi á mánudögum, til Rotterdam í
Hollandi á þriðjudögum, Cuxhaven í
Þýskalandi á miðvikudögum, Århus í
Danmörku á fimmtudögum, Varberg í
Svíþjóð á föstudagsmorgnum og Moss í
Noregi á föstudagskvöldum. Til Reykja-
víkur er svo komið aftur á þriðjudögum.
Einar Þór segir að af þessum höfnum
séu Immingham, Rotterdam og Cux-
haven langstærstar. Þorskurinn og ýsan
eru afgerandi tegundir inn á Bretland,
karfinn hefur sterka stöðu á Þýskalands-
markaði í gegnum Cuxhaven. Rotterdam
er sterkasta tengihöfnin fyrir flutninga til
mið- og suður Evrópu og einnig fyrir vöru
sem fer áfram til Bandaríkjanna, niður til
Afríku eða austur til Asíu.
Landflutningar ganga vel
Fyrirtæki jafnt innanlands og erlendis krefj-
ast æ styttri flutningstíma og hafa Sam-
skip lagt áherslu á mæta þeim kröfum.
Strandferðaskipi Samskipa var lagt fyrir
tveimur árum og eru nú allir innanlands-
flutningar í bílum. Styttir þetta flutnings-
tíma vöru frá Íslandi, í sumum tilvikum, allt
upp í 6 daga. Einnig hefur verið lögð mikil
vinna í samtengt þjónustunet sem byggist
á virkri flutningastjórnun, samræmdum
starfsaðferðum og samtengdu upplýs-
ingakerfi.Einar Þór segir að þessi flutn-
ingamáti hafi gefið góða raun. Með þessu
móti sé í flestum tilfellum hægt að tryggja
að sjávarafurðir af öllu landinu séu komnar
á markað í Evrópu ekki eldri en viku gaml-
ar. Einar Þór segir að Landflutningar-Sam-
skip leggi mikið upp úr því að standast all-
ar gæðakröfur viðskiptavina í þessu sam-
bandi og liður í því var að fá landflutninga-
kerfið vottað af GÁMES.
Þjónusta alla leið
Kröfur sjávarútvegsfyrirtækja hafa breyst
mikið á síðustu árum og áratugum. Nú á
tímum vilja flest fyrirtæki heildræna þjón-
ustu þannig að Samskip tekur við vör-
unni við dyr framleiðanda á Íslandi og
skilar henni aftur við dyr móttakanda,
hvar sem er í veröldinni.
Umtalsvert magn af sjávarafurðum er
flutt frá Íslandi vestur um haf. Þó segir
Einar Þór Guðjónsson að flutningar á
sjávarafurðum til USA hafi minkað veru-
lega síðustu ár og standi ekki undir fastri
áætlun skipa Samskipa vestur. Þess í
stað flytja Samskip sjávarafurðir til Rott-
erdam og tryggja síðan flutning þeirra
vestur um haf með öðrum skipafélögum.
Tækifæri erlendis
Einar Þór Guðjónsson telur mikil tækifæri
vera erlendis í flutningi á matvælum og
þá sérstaklega ferskum og frystum sjáv-
arafurðum enda fá fyrirtæki í heiminum
komin eins framarlega í flutningum, vöru-
meðferð og eftirliti með sjávarafurðum.