Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 30

Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 30
28 F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G Eimskip Pósthússtræti 2 101 Reykjavík Sími: 525 7000 Fax: 525 7009 Veffang: www.eimskip.net Matthías Matthíasson, forstöðumaður sjávarútvegsþjónustu Eimskips. Í forystu í flutningaþjónustu Í hartnær níu áratugi hefur verið byggð upp afburða þekking hjá starfsfólki Eimskip á öllu sem snýr að þjónustu við útflytjendur sjávar- afurða. Segja má að útflutningur á sjávarafurðum hafi gjörbreyst með gámavæðingunni um miðjan níunda áratuginn og frá þeim tíma hafa kröfur viðskiptavina um hraða, vörumeðferð og aðra þjónustuþætti stóraukist. „Eimskip leggur metnað sinn í að vera í forystu í flutningaþjónustu fyrir sjávarút- vegsfyrirtæki hér á landi og reyndar á öllu Norður Atlantshafssvæðinu,“ segir Matth- ías Matthíasson, forstöðumaður sjávarút- vegsþjónustu Eimskips. „Við stefnum að því að vörumeðferð sé ávallt eins og best verður á kosið og í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til þeirrar gæða- matvöru sem sjávarafurðir frá Íslandi eru.“ Eimskip hefur á undanförnum árum sniðið siglingakerfi félagsins að þörfum útflytjenda. Siglingakerfið hefur verið þró- að með það fyrir augum að sá tími sem líður frá því varan er sótt til framleiðanda þar til hún er afhent kaupanda á markaði erlendis sé eins stuttur og mögulegt er. „Sem dæmi má nefna að þegar gámur er lestaður í Reykjavík á miðvikudegi er hann kominn á markað í Bretlandi á mánudagsmorgni. Vara sem kemur að norðan og austan er flutt með Mánafossi til Vestmannaeyja þar sem gámunum er umhlaðið í annað tveggja skipa á svokall- aðri Suðurleið og fer þaðan áleiðis til Bretlands og Hollands. Í þessu sambandi má einnig geta þess að Mánafoss er eina skipið á Íslandi í dag sem er í reglulegum strandsiglingum og gegnir því mjög mikil- vægu hlutverki fyrir landsbyggðina í hag- kvæmum forflutningi til útflutningshafnar,“ segir Matthías. „Einnig má geta þess að tvö nýjustu skipin okkar, Dettifoss og Goðafoss sem taka nærri 1.500 gáma- einingar, þar af ríflega 400 frystitengla, hafa reynst mjög vel. Þau sigla á svokall- aðri Norðurleið og þjóna þannig bæði meginlandi Evrópu, Norðurlöndunum og Færeyjum ásamt því að vera með við- komu á Eskifirði á útleið. Eimskip hefur byggt upp fullkominn húsa- og tækjakost sem miðar að því að þjónusta við útflytj- endur sé eins og best verður á kosið. Sundafrost, sem er ríflega 2.000 bretta frystigeymsla Eimskips, er vottuð af Gámes vottunarkerfinu og þar er einnig boðið upp á fullkomna skoðunaraðstöðu fyrir viðskiptavini félagsins. Geymslan er einnig löggild landamærastöð þar sem Fiskistofa getur vottað vöru fyrir við- skiptavini félagsins.“ Viðskiptavinir Eimskips eru oftar en ekki á fjarlægum mörkuðum með marg- víslegar kröfur. Áhersla er lögð á að veita heildarþjónustu og alhliða flutningalausnir á sjávarafurðum á heimamarkaði Eim- skips á Norður-Atlantshafi. Allar erlendar starfsstöðvar Eimskips hafa á að skipa fulltrúum sjávarútvegsþjónustu og eru þannig mikilvægur hlekkur í keðju ráð- gjafa sem sérhæfa sig í flutningalausnum fyrir sjávarútveg. Matthías segir að sjáv- arútvegssveit Eimskip samanstandi af af- burða mannskap með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af útflutningi sjávar- afurða. „Við leggjum mikla áherslu á persónu- leg tengsl og úrvals þjónustu við við- skiptavini okkar. Að mínu mati er það besta leiðin til að átta sig á þörfum þeirra og væntingum til þjónustunnar. Sjávarút- vegssveit Eimskips leggur metnað sinn í að þjóna viðskiptavinum við útflutning sjávarafurða á sem skilvirkastan hátt,“ segir Matthías að lokum. English Summary Eimskip specialises in the transporta- tion and handling of temperature- controlled cargo and services to the fishing industry. Fishing vessels oper- ating in the North Atlantic can rely on full agency services, discharging services and transport of their catches from all main ports to buyers around the world. The dedicated team that services the fishing industry is committed to offering high quality, value-added services tailored to customers’ requirements.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.