Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 60
58
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Icelandic umbúðir
Héðinsgötu 2
105 Reykjavík
Sími: 560 7881
Fax: 581 4215
Veffang: www.icelandic.is
Einar Már Guðmundsson, deildarstjóri Icelandic umbúða.
Leiðandi í sölu á umbúðum
„Icelandic umbúðir, sem áður hét
SH umbúðir, hefur um árabil verið
leiðandi í sölu umbúða og rekstrar-
vara til sjávarútvegsfyrirtækja á Ís-
landi. Meðal þess sem fyrirtækið
býður upp á eru ytri kassar, öskjur,
plastpokar, hnífar, sjófatnaður og
fleira,“ segir Einar Már Guðmunds-
son deildarstjóri Icelandic umbúða.
„Fyrir nokkrum árum var reksturinn tekinn
til endurskoðunar og upp úr því voru
nokkrar breytingar gerðar, sem að mínu
mati hafa skilað fyrirtækinu ánægðari við-
skiptavinum. Icelandic umbúðir hætti eigin
lagerhaldi og kaupir í dag þá þjónustu af
öðrum aðila. Með því að gera lagerhaldið
að breytilegum kostnaði hefur tekist að
lækka þann kostnað umtalsvert, sem hef-
ur skilað sér til viðskiptavina í lægra vöru-
verði.“
Á undanförnum árum hefur áherslan á
þjónustuna aukist. Viðskiptamenn
Icelandic umbúða vilja liggja með sem
minnstan lager, en panta þess í stað oftar
að sögn Einars: „Þá er mikilvægt að rétt
vara berist á réttum tíma. Þetta er sér-
staklega mikilvægt þegar verið er að af-
henda umbúðir um borð í frystiskip, en
það segir sig sjálft að þar þarf að vanda til
verka, þar sem erfitt er að bæta fyrir mis-
tök þegar skipin eru komin út á sjó.“
Starfsmenn Icelandic umbúða eru sex
talsins og allir með áratuga áratuga
reynslu hjá fyrirtækinu í því að þjónusta
viðskiptavini hér heima og erlendis. Við-
skiptavinir Icelandic umbúða eru 50
frystihús, 20 íslenskir frystitogarar og 25
erlendir frystitogarar. „Nokkur þessara
skipa landa einungis erlendis, í Noregi,
Kanada og í Busan í Kóreu, og eru um-
búðir þá ýmist sendar að utan eða frá Ís-
landi. Hlutur erlendra viðskiptamanna
hefur aukist jafnt og þétt síðastliðin þrjú
ár og þar virðast gæði okkar umbúða og
verð vega þungt.“
„Það eru stöðugt í gangi hjá okkur
vöruþróunarverkefni, þar sem leitast er
við að þynna umbúðir, án þess að það
bitni á styrk þeirra. Dæmi um vöruþróun
er þegar við, í samvinnu við dótturfélög
SH og fiskframleiðendur, unnum að því
að allri frystri loðnu var pakkað í poka í
stað öskju. Áður fyrr sendum við um 40
gáma af öskjum út á land á loðnuvertíð-
inni, en í dag sendum við ekki nema um
English Summary:
IFPC Packaging handles purchasing and sales of packaging materials and various
other operation goods for the fishing industry. The division´s objective is to provide
high quality services based on the needs of seafood producers, both on land and
out at sea. The main emphasis is placed on high quality, competitive prices and
secure deliveries.
IFPC Packaging sells packaging material and operation goods to freezing plants
and fishing vessels in Iceland and abroad.
5 gáma af loðnupokum út á land, þar
sem pokarnir taka mun minna pláss.
Jafnframt er mun auðveldara er að end-
urvinna plastið en öskjurnar. Öskjurnar
eru húðaðar með vaxi sem ekki er hægt
að ná af og því verður að brenna þær,“
segir Einar Már Guðmundsson að lokum
um leið og hann minnir á glæsilegan 80
fermetra bás fyrirtækisins, númer A-070,
þar sem lögð er áhersla á að kynna nýtt
vörumerki SH og starfsemi dótturfélaga
þess á 60 ára afmælisári fyrirtækisins.